Málfregnir - 01.04.1989, Page 24

Málfregnir - 01.04.1989, Page 24
tuba og tubulus. Ekki cr alltaf skýr munur á merkingu þessara orða, en orða- nefndin hefur ákveðið að í íslensku skuli notuð orðin götig, smuga, rás, sytra, pípa og pípla. Ductuli biliferi heita því nú gallsytrur (áður gallpíplur), en tubuli seminiferi heita áfram sáðpíplur. Samræming af þessu tagi er mjög mikilvæg því hún auðveldar alla notkun verksins. Notendur geta treyst því að til- tekið latneskt orð samsvari tilteknu íslensku orði og öfugt. Þessi samræming verður einnig látin ná til vefjafræði- og fósturfræðiheitanna og raunar alls orða- safnsins eins og framast er kostur. Lokaorð Að lokum mætti spyrja: Munu læknar nota þau orð sem orðanefndin smíðar eða leggur til? Þeirri spurningu getur raunar enginn svarað að svo stöddu. I.íklega er of mikil bjartsýni að búast við því að stéttarslangrið hverfi með tilkomu Iðorðasafns lœkna, en safnið mun samt gefa læknum kost á íslenskum orðum ef þeir vilja gera sig skiljanlega öðrum en sérfræðingum. Vegna lesenda sem kynnu að vilja ná sambandi við ritstjórann, skal ítrekað að vinnustaður hans er í íslenskri málstöð, Aragötu 9, Reykjavík. Sími hans þar er 69 44 44. 24

x

Málfregnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Málfregnir
https://timarit.is/publication/1146

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.