Málfregnir - 01.04.1989, Page 30
jafngildir 60-80 símtölum á dag. Pví er
oft á tali. þegar hringt er og margir segj-
ast þurfa að hringja oftar en einu sinni.
I öllum löndunum hringja mun fleiri
konur en karlar nema í Noregi; þar eru
karlar duglegri að hringja en konur.
Pegar fyrirspyrjendum er skipt í aldurs-
hópa reynist sá stærstur sem í er fólk á
aldrinum 36-50 ára, það er um 40%,
nema í Noregi. Þar er aldurshópurinn
20-35 ára stærstur.
Hér er margt fleira að finna unt fólkið
sem spyr, t.d. um störf þess og búsetu,
og einnig hvað það spyr um (stafsetn-
ingu, beygingu, orðmyndun, framburð
o.s.frv.).
Auk sérstakrar greinargerðar frá
hverri nefnd, sem að könnuninni stóð,
eru stuttar greinargerðir frá öllum hinum
nema grænlensku nefndinni. Um síma-
ráðgjöf Islenskrar ntálnefndar skrifar
Sigurður Konráðsson. Loks er í bókinni
mjög gagnlegt heildaryfirlit, sem Catha-
rina Grúnbaum hefir tekið saman.
30