Málfregnir - 01.04.1989, Síða 31
s
Islensk málnefnd 25 ára
Á þessu ári verða liðin 25 ár frá stofnun
Islenskrar málnefndar. Aðalhvatamaður
að stofnun hennar og fyrsti formaður var
Halldór Halldórsson prófessor. Nefndin
var stofnuð 30. júlí 1964 með bréfi
þáverandi menntamálaráðherra, Gylfa
P. Gíslasonar. í bréfinu segir að ráðu-
neytið hafi ákveðið að setja á stofn
málnefnd, sem hafi þessi meginverkefni:
1. Að annast nýyrðastarfsemi þá, sem
hingað til hefur farið fram á vegum ráðuneyt-
isins með atbeina orðabókarnefndar Háskól-
ans.
2. Að gegna svipuðu leiðbeiningar- og
málverndarhlutverki og málnefndirnar ann-
ars staðar á Norðurlöndum og hafa samstarf
við þær.
Reglur um starfsemi íslenskrar mál-
nefndar voru fyrst settar í mars 1965, og
þar var henni fengið víðtækt hlutverk.
En lengst af hefir hún verið fáliðuð og
fátæk og ekki haft neina aðstöðu til að
rækja hlutverk sitt sem skyldi.
Úr því tók að rætast með setningu
málnefndarlaganna 1984 og þar með
stofnun íslenskrar málstöðvar, sem tók
til starfa við gildistöku þeirra í ársbyrjun
1985. Öllu fyrr verður varla sagt að
nefndin hafi haft skilyrði til að láta
eitthvað að sér kveða. En mikið vantar á
að hún sé nógu öflug. Enn þarf hún á
miklu meiri fjárveitingum eða fjárstuðn-
ingi að halda, og hún þarf að fá fleiri vel
menntaða og áhugasama málræktar-
menn til liðs við sig. Verkefni hennar eru
fleiri og stærri og vandasamari en flesta
grunar.
Nefndin hefir ekki uppi ráðagerðir um
að gera mikið úr aldarfjórðungsafmæli
sínu. f>ó vonast hún til að geta á þessu
eða næsta ári gefið út ofurlítið rit þar
sem rakin verður saga hennar þessi 25
ár. Þá má geta þess að um það leyti sem
verið var að ganga frá efni þessa blaðs til
prentunar efndi nefndin til málþings
undir heitinu „íslenskt mál og menning á
öld gervitungla“. Með því framtaki vildi
hún minnast afmælis síns og jafnframt
leggja lið málræktarátaki menntamála-
ráðuneytisisns, sem frá hefir verið skýrt
opinberlega í fréttatilkynningu frá 28.
mars sl.
Einn liður þessa átaks, sem ríkisstjórn-
in hefir samþykkt, er stofnun málræktar-
sjóðs í vörslu íslenskrar málnefndar. Hug-
myndinni um hann var fyrst varpað fram
á fundi nefndarinnar 14. júní 1983, og
síðan hefir ýmislegt verið gert til að
vekja áhuga á henni.
Nú hefir menntamálaráðherra, Svavar
Gestsson, tekið þetta mál upp sem einn
lið í málræktarátaki sínu, og eru miklar
vonir við það bundnar. Þegar er farið að
ræða í alvöru undirbúning löggjafar um
stofnun slíks sjóðs sem yrði bæði fram-
kvæmda- og verðlaunasjóður. Ef myndar-
lega og skynsamlega verður á málum
haldið er vart hægt að hugsa sér betri
afmælisgjöf handa Islenskri málnefnd en
stofnun málræktarsjóðs, sem henni yrði
trúað fyrir. - BJ
31