Kópavogsblaðið - 01.11.2005, Page 2

Kópavogsblaðið - 01.11.2005, Page 2
Menningarstyrkir Á fundi lista- og menningarráðs Kópavogs nýverið hlutu eftirtaldir styrk: Gallerí Lind - tillaga um stofnun sjóðs til niðurgreiðslu á vöxtum listaverkalána. Samþykkt að leggja til 250 þúsund krónur og verður nánari útærsla í samvinnu við Sparisjóð Kópavogs. Tillögurn- ar verða síðan kynntar fyrir ráðinu. Jóhann Nardeau - styrkur v/hljóðfærakaupa 50.000 krónur. Bryndís Bragadóttir - styrkur v/sýningar á listbókum sem nú er í Amtsbókasafninu og kemur síðar í Bókasafn Kópavogs, 150.000 krónur. Stefán Helgi Stefánsson - styrkur v/tónleika í anda Sigurveigar Hjaltested og Stefáns Íslandi í Salnum mars/maí 2006, 145.000 krónur. Karlakór Kópavogs - styrkur v/þátttöku á Landsmóti ísl. karla- kóra í Hafnarfirði í október 2005, 100.000 krónur. Tónlistarskóli Kópavogs - styrk- ur v/tónleikaferðar til Spánar í maí 2006, 400.000 krónur. Myndlistarskóli Kópavogs - styrkur v/vorsýningar 2005, 100.000 krónur. Irma Gunnarsdóttir - styrkur v/ danssýninga, 150.000 krónur. Samkór Kópavogs - styrkur v/starfsemi kórsins, 100.000 krónur. Auglýsingaskilti Á fundi skipulagsnefndar 4. sept- ember 2005 var lagt fram erindi Handknattleiksfélags Kópavogs, dags. 24. ágúst sl. varðandi leyfi til að setja upp flettiskilti í hljóðmön austan Hafnarfjarðarvegar. Skipu- lagsnefnd óskaði umsagnar um- hverfisráðs. Umhverfisráð gerði ekki athugasemdir við staðsetn- ingu auglýsingaskiltis við Hafnar- fjarðarveg að því tilskyldu að þess sé gætt að skiltið sé utan veghelg- unarsvæða og lóða á Lundar- svæði. Menningarhús Framkvæmdir við menningar- hús unga fólksins eru hafnar. Hús- ið mun rísa gegn Gerðarsafni. Fyrstu skólflustunguna að húsinu tók Gunnar I. Birgisson bæjar- stjóri. Húsið verður um 300 fer- metrar að grunnfleti. Á hátíðar- fundi Bæjarstjórnar Kópavogs 11. maí sl. á 50 ára afmælisdegi bæjar- ins, var samþykkt að gefa bæjar- búum þessa gjöf. Húsið verður íverustaður fyrir ungt fólk sem vill vinna á menningarlegum nótum, t.d. viðmyndlist, tónlist eða kvik- myndalist. Framkvæmdir á Lundstúni Framkvæmdir eru hafnar í Lundi, sem er nýtt íbúðarhverfi við Nýbýlaveg. Gömlu húsin í Lundi hafa flest verið rifin. Í fyrsta áfanga þessara framkvæmda rísa tvö fjölbýlishús. Gert er ráð fyrir að fyrstu íbúðirnar verði afhentar síðari hluta ársins 2006. Tré ársins í Kópavogi Tré ársins hjá Skógræktarfélagi Íslands stendur handan Digranes- vegar, gegnt Digraneskirkju. Tréð stóð við sumarhús Kristjönu Fen- ger, sem síðar varð eign sona hennar. Það er þakkarvert þegar Skógræktarfélag Íslands sér ástæðu til þess að vernda einstök tré, ekki síst ef þau eru hluti af byggingarsögu, eins og raun ber vitni í þessu tilviki í Kópavogsdal. Rekstrarsamningur milli Kópavogsbæjar og skátafélagsins Kópa Nýlega var undirtaður rekstrar- samningur milli Kópavogsbæjar og skátafélagsins Kópa í Kópavogi. Kveður samningurinn á um að Kópavogsbær greiðir Kópum þriggja milljóna króna verðbættan rekstrarstyrk árlega og skal styrk- urinn renna til greiðslu launa starfsmanna Kópa og til reksturs skátaheimilisins Bakka í Kópavogi. Einnig er gert ráð fyrir því að skát- arnir geti sótt um niðurfellingu fasteignagjalda vegna skátaheimil- isins. Samninginn undirrituðu Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri og Þorvaldur J. Sigmarsson skátafor- ingi í Kópum. Sundlaug Kópavogs breytt Bæjarstjórn Kópavogs hefur sam- þykkt að ráðist verði í miklar breyt- ingar á sundlauginni við Rútstún. Framkvæmdir eru þegar hafnar. Um er að ræða elsta hluta sundlaugar- mannvirkjanna, sem í daglegu tali ganga undir nafninu „barnalaugin“. Á þessu ári eru áætlaðar 100 millj- ónir í verkið. Rífa á gömlu timbur- klefana við laugina og byggja nýja búningsklefa, útiklefa, eimbað og heita potta. Nauðsynlegt er að ráð- ast í þessar endurbætur því í ljós hefur komið að 40 ára gamalt lauga- kerfi gömlu laugarinnar þarf að end- urbæta. Sama gildir um búninga- klefana, þeir eru orðnir gamlir og fúnir. Aðal sundlaugin verður opin áfram og reynt verður að halda truflunum í lágmarki. NÓVEMBER 20052 Kópavogsblaðið Útgefandi: Borgarblöð ehf. Vesturgötu 15 • 101 Reykjavík Sími: 511 1188 • 561 1594 Fax: 561 1594 Auglýsingasími: 511 1188 • 561 1594 • 895 8298 Netfang: borgarblod@simnet.is Ritstjóri: Geir A. Guðsteinsson, Sími 564 5933, 898 5933 Netfang: geirgudsteinsson@simnet.is Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Kristján Jóhannsson Umbrot: Valur Kristjánsson Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Dreifing: Íslandspóstur 1. tbl. 1. árgangur Kópavogsblaðinu er dreift frítt í öll hús í Kópavognum. S T U T T A R B Æ J A R F R É T T I R Rekstarafgangur notaður til nið- urgreiðslu skammtímaskulda Fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar 2005 hefur verið endurskoðuð. Áætlaður rekstrarafgangur sam- stæðureiknings A og B hluta Kópavogsbæjar eykst úr 1056 milljónumkróna í 2210 milljónir króna, eða um rúm 100%. Sem hlutfall af skatttekjum eykst því rekstrarafgangurinn úr því að vera 13% í 28% en þetta hlutfall endurspeglar svigrúm Kópavogs- bæjar til að fjárfesta og greiða nið- ur skuldir. Þessi rekstrarbati skýrist aðallega af hagnaði af út- hlutun byggingarréttar. Kópa- vogsbær hefur á undanförnum árum gjaldfært allan kostnað vegna landakaupa og samninga við lóðahafa á óskipulögðum svæðum, án þess að tekjur hafi komið á móti. Má segja að þessar fjárfestingar séu nú að bera ávöxt með úthlutun lóða í nýjum hverfum. Gert er ráð fyrir að heildarskuld- ir Kópavogsbæjar muni lækka um 2,1 milljarð króna miðað við upp- runalega áætlun 2005 eða úr 12,8 í 10,7 milljarða króna. Með þessum umsnúningi verður heildarskuld á íbúa með lífeyrisskuldbindingum komin niður úr 531 þúsund krónur á íbúa, í 480 þúsund krónur á íbúa og verður það með því lægsta sem gerist á höfuðborgarsvæðinu. Sterk staða Kópavogsbæjar í samanburði við önnur sveitarfélög endurspeglast líka í endurskoðuðu eiginfjárhlutfalli sem hækkar úr 34% í 42% eða úr 7.9 milljörðum króna í 9,4 milljarða króna. Við þetta má svo bæta að efnahags- reikningurinn er ekki íþyngdur af skuldbindingum vegna einkafram- kvæmda eins og tíðkast víða. En Kópavogsbær hefur löngum álitið slíka fjármögnunarleið slæman kost og telja má víst að fjár- hagstaða bæjarins er sterkari fyrir vikið. Rekstrar- og framkvæmda- kostnaður hefur hækkað Þrátt fyrir góðan rekstrarbata, þá hefur rekstrar- og fram- kvæmdakostnaður hækkað um- fram væntingar. Launakostnaður í grunn- og leikskólum reyndist um 150 milljónir króna hærri en ráð var fyrir gert, en kjarasamninga- gerð við leikskólakennara var ekki lokið þegar vinnu við fjárhagsá- ætlun 2005 lauk á árinu 2004. Framkvæmdakostnaður fór um 300 milljónir króna fram úr áætl- un við einstök verk þar sem samið var um að flýta fram- kvæmdum vegna örrar uppbygg- ingar. Þetta á við um eftirfarandi framkvæmdir: Leikskólann Baugakór, Salaskóla, Kóraskóla, Sundlaug Sölum, Unglingahús, Gatnagerð á hafnarsvæði, breikk- un Smárahvammsvegar, gatna- gerð Kórahverfi, gerð Vatnsenda- og Rjúpnavegar og innlausn lóða. Þessum frávikum hefur að hluta verið mætt með hagræðingu í rek- stri og framkvæmdum þar sem því verðu við komið, en að hluta með aukafjárveitingu.B laðaútgáfa á Íslandi er margslunginn, en jafnframt fjöl-breytt. Fjögur dagblöð koma út sem berast sum hver tillandsmanna hvort sem þeir vilja eða ekki. Nokkur blöð sem ekki koma út daglega, jafnvel mánaðarlega, koma út og oft- ast er efni þeirra og dreifing bundið við ákveðið landsvæði eða sveitafélag. Í Kópavogi koma út nokkur blöð sem gefin eru út af stjórnmálaflokkunum. Þau eru ekki fréttablöð í þess orðs fyll- stu merkingu þar sem þau beina augunum fyrst og fremst að því sem bæjarfulltrúar eða þingmenn viðkomandi flokks eru að gera, eða vilja láta fara frá sér á prenti til „síns fólks.“ Slíkar langlokugreinar eru oftar en ekki fjarri því að vera skemmilestr- arefni. Trúverðugleiki skrifa í slíkum blöðum ristir oft ekki djúpt hjá póltitískum andstæðingum, og reyndar fleirum sem taka því sem þar er á borð borið fyrir lesendur með miklum fyrirvara. Í Kópavogi búa 27 þúsund manns og löngu orðið tímabært að hér sé gefið út fréttablað sem flytur fréttir af því sem er að gerast á líðandi stund. KÓPAVOGSBLAÐIÐ, sem nú kemur út í fyrsta sinni, mun í framtíðinni flytja fréttir af því sem er að gerast í því bæjarfélagi landsins sem örast hefur vaxið og einna mestu þjónustu hefur veitt sínum íbúum og þeim sem hingað vilja flytja. KÓPAVOGSBLAÐIÐ verður einnig gagnrýnin fjölmið- ill, hvort heldur sem það eru bæjaryfirvöld, fyrirtæki, félaga- samtök eða einstaklingar sem eiga í hlut. Sú gagnrýni verður þó ekki einhliða, þ.e. þeir sem taldir eru gagnrýni verðir fá að bera hönd fyrir höfuð sér, halda uppi vörnum. KÓPAVOGS- BLAÐIÐ verður einnig opið öllum þeim sem vilja tjá sig um hvaðeina sem þeim liggur á hjarta. Ábendingum, efni, aðfinnsl- um eða öðru er rétt að beina beint til ritstjóra. Ritstjóri blaðsins býr í Kópavogi og hefur starfað við blaða- mennsku í aldarfjórðung. Hér er því byggt á mikilli reynslu sem vonandi skilar sér inn á síður blaðsins. Útgefandinn, BORGAR- BLÖÐ, hefur einnig langa reynslu í útgáfu, m.a. í útgáfu á blöð- um í Reykjavík sem byggja á svipuðum grunni og KÓPAVOGS- BLAÐIÐ fer af stað á. Blaðinu verður dreift í öll hús í Kópavogi. Þetta blað ber eðlilega nokkurn keim af því að framundan er prófkjör hjá Framsóknarflokknum. Vinstri grænir eru með forval 26. nóvember nk. en ekki er vitað nú hverjir sækjast þar eftir setu á framboðslista. Sjálfstæðisflokkurinn verður með prófkjör 21. janúar og þá mun efni blaðsins eflaust bundið að einhverju leiti því sem frambjóðendur flokksins vilja koma á framfæri. Það sama verður uppi á teningunum þegar lokað prófkjör Samfylkingarinnar verður á þorranum. Kópavogsbær varð 50 ára á þessu ári. Því hefur verið fagnað með ýmsum hætti. Menningarstarfsemi er mikil og vaxandi í bænum, og nægir að nefna mikið og metnaðfullt sýningar- og tónleikahald Gerðarsafns og Salarins. Hér skal einnig minnt á mikla og óeigingjarna starfsemi kóra í bænum, s.s. Samkórs Kópavogs, Kvennakórs Kópavogs, Karlakórs Kópavogs auk fjölda barna- og unglingakóra að ógleymdum kirkjukórunum. Það ætti að vera metnaður bæjaryfirvalda að styðja myndar- lega við bakið á starfsemi þeirra. En betur má ef duga skal. Geir A. Guðsteinsson Fyrir alla Kópavogsbúa Fjárhagsstaða Kópavogsbæjar traust

x

Kópavogsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kópavogsblaðið
https://timarit.is/publication/1117

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.