Kópavogsblaðið - 01.11.2005, Side 14
NÓVEMBER 200514 Kópavogsblaðið
Stórt rússalerki í Kópavogsdal
útnefnt Tré ársins 2005
Myndarlegt rússalerki sem er að finna í
Kópavogsdalnum austanverðum við Digranes-
veg, gegnt Digraneskirkju, hefur verið útnefnt
Tré ársins 2005. Það er Skógræktarfélag Ís-
lands sem velur tré ársins og er útnefningunni
ætlað að beina sjónum almennings að grósku-
miklu starfi í trjá- og skógrækt um land allt.
Sérstakur skjöldur verður settur upp við téð.
Tréð er 8,76 metrar og ummál trésins í brjóst-
hæð 105 sentimetrar. Tréð hefur verið gróður-
sett fyrir 1940 að sögn þeirra systra Kristjönu og
Hjördísar Fenger, en afi þeirra og amma, John og
Kristjana Fenger hófu rækt á þessu svæði upp úr
1936 og reistu þarna sumarhús. Foreldrar þeirra
nýttu svo húsið árum saman svo þær systur
þekkja þetta svæði vel úr bernsku. Þær segja að
undir þessu stóra lerkitré hafi afi þeirra, og síðar
fleiri úr fjölskyldunni iðulega drukkið morgun-
kaffið. Og ekki megi gleyma að á þeim árum var
alltaf sól í Kópavogi!
Það segjir kannski mest um öra stækkun Kópa-
vogsbæjar að ekki skuli vera nema liðlega 30 ár
síðan þarna var sumarbústaður en fjölskyldan
dvaldi á þessum árum og allt fram yfir 1960 oft
sumarlangt í bústaðnum og fjöldi annarra frum-
herja hóf ræktun á þessu svæði sem Kópavogs-
búar njóta í dag. Þetta rússalerkið má þó muna
tímana tvenna þar sem því var í raun bjargað á
síðustu stundu frá eyðileggingu árið 1992 þegar
Digranesvegurinn var lagður niður í Kópavogs-
dalinn. Það verður nú prýði og perla Kópavogs.
Kór Hjallakirkju með aðventu-
tónleika á 2. sunnudegi aðventu
Fyrsti sunnudagur aðventu er
sunnudaginn 27. nóvember, og
því fer að styttast í jólaundirbún-
inginn. Kirkjukórarnir í Kópavogi
taka að sjálfsögðu þátt í þeim
undirbúningi með margvíslegum
hætti.
Aðventan hefst með fjórða
sunnudegi fyrir jól. Fjórði og síð-
asti sunnudagur aðventu getur
því verið aðfangadagur jóla. Litur
aðventu er fjólublár, litur iðrunar-
innar. Fjólublátt er blandaður lit-
ur, samsettur af bláu, sem er
táknlitur himinsins, og trú-
mennsku og sannleika, svörtu
sem er litur sorgar og rauðu sem
er litur kærleikans.
Aðventa er tími vonar. Þegar
skuggar skammdegisins þéttast,
kveikjum við aðventuljós, sem
vitna um komu ljóssins eilífa sem
rýmir burt öllu myrkri. Aðventu-
ljósin í gluggunum og aðventu-
kransarnir eru í raun bæn: „Kom,
Drottinn Jesús.“
Aðventutónleikar
Árlegir aðventutónleikar Kórs
Hjallakirkju verða í Hjallakirkju
sunnudaginn 4. desember kl.
20.00. Á efnisskránni eru aðventu
og jólalög frá ýmsum tímum og
ýmsum löndum í fjölbreyttri blön-
du. Einsöngvarar koma úr röðum
kórfélaga. Undirleikari verður
Lenka Mátéová og söngstjóri er
Jón Ólafur Sigurðsson.
Þessir jólatónleikar eru orðnir
fastur liður hjá mörgum, ekki
bara þeim sem tilheyra Hjalla-
sókn í Kópavogi, og hafa verið
mjög vel sóttir. Aðgangur er
ókeypis og boðið verður upp á
kakó og piparkökur í lokin.
Systurnar Kristjana og Hjördís Fenger við Tré ársins
2005, en það og næsta nágrenni þess geymir margar
ljúfar æskuminningar þeirra.
Aðeins liðlega tvær vikur í aðventu:
Áætlar að fram til ársins
2012 verði hafin bygging
1.500 íbúða til viðbótar
Fasteignasalan RE/MAX í
Bæjarlind 12, sem hóf starfsemi
árið 2003, er hluti af alþjóðlegri
sérleyfiskeðju í yfir 58 löndum og
er samnefnari fyrir þá sem eru
að selja mest í fasteignasölugeir-
anum. RE/MAX er stærsta fast-
eignasölukeðja í heimi. Þarna
geta þeir komið sem vilja nýta
sína hæfileika sem fasteignasalar
en þurfa ekki að hafa áhyggjur af
rekstrinum, það er séð um það
fyrir þá. Þeir þurfa ekki að stofna
eigin fasteignasölu.
Konráð Konráðsson, fram-
kvæmdastjóri RE/MAX í Bæjar-
lindinni segir að ef veitt sé góð
þjónusta komi fólk aftur, og á
þeim nótum starfi þeir. Fyrirtækið
sé einnig vel staðsett í Bæjarlind-
inni, þar sé fyrirtækjum að fjölga
og þar sé næg bílastæði. Einnig
njóti þeir auðvitað nálægðarinnar
við Smáralindina.
„Aðalskipulag Kópavogs til 2012
gerir ráð fyrir 3000 nýjum íbúðum
og við erum hálfnaðir með það
tímabil svo ætla má samkvæmt
því að enn séu um 1.500 íbúðir
óbyggðar. Það er mikil aukning og
bjart framundan í Kópavogi. Við-
skiptavinir okkar eru ekki síður
fólk sem býr jafnvel úti á landi en
er að leita að íbúð í Kópavogi. Við
höfum kynnt okkur vel allar áætl-
anir um skóla og aðra þjónustu
sem koma okkur viðskiptavinum
vel. Hér er góð þjónusta og við
verðum vör við að í þetta sækir
fólk þegar leitað er að íbúð. Þetta
er nánast fólk á öllum aldri. Sumir
vilja vera í nágrenni Smáralindar
en aðrir vilja njóta nálægðarinnar
við Elliðavatn. Svo er enn einn
hópur sem vill flytja í gömul og
gróin hverfi. Við veitum einnig
ráðgjöf ef fólk er óákveðið með
stærð og staðsetningu.
Samstarf okkar við bygginga-
verktaka kemur aðallega á seinni
stigum þegar nálgast sölu og af-
hendingu íbúðar, en raunar er all-
ur gangur á því. Stundum eru hús
þrívíddateiknuð áður en þau rísa
svo kaupendur geti betur áttað sig
á þeim. Lögum samkvæmt þurfa
allar íbúðarsölur að fara gegnum
löggilta fasteignasala,“ segir Kon-
ráð Konráðsson, framkvæmda-
stjóri RE/MAX í Kópavogi.
Fasteignasalan RE/MAX í Kópavogi:
Konráð Konráðsson, framkvæmdastjóri RE/MAX í Bæjarlind 12.
Kópavogsbær hefur stækkað og
dafnað undir öruggri leiðsögn
Framsóknarflokksins. Hér hefur
uppgangurinn verið slíkur að ótrú-
legt má telja. Sigurður heitinn Geir-
dal bæjarstjóri Kópavogs, oddviti
okkar Framsóknarmanna, átti með
dugnaði sínum og góðum sam-
skiptum mikinn heiður að upp-
gangi bæjarfélagsins. Andlát Sig-
urðar hefur haft mikil áhrif á flokk-
inn okkar í Kópavogi, við syrgjum
Sigurð og erum ekki söm eftir. Ég
veit að margir bæjarbúar vilja að
Framsóknarflokkurinn verði hér
áfram við stjórn og laugardaginn
12. nóvember munum við stilla
upp nýjum lista þegar prófkjörið
verður haldið í Smáraskóla. Próf-
kjörið er öllum opið sem verða
orðnir 18 ára hinn 27. maí 2006 og
eiga lögheimili í Kópavogi. Þess er
ekki krafist að menn séu flokks-
bundir framsóknarmenn.
Ég veit að ég er bæjarbúum í
Kópavogi nokkuð kunn, þar sem
ég hef verið formaður Íþrótta- og
tómstundaráðs Kópavogs í næst-
um 8 ár, varabæjarfulltrúi þetta
kjörtímabil og formaður Lands-
sambands framsóknarkvenna. Ég
er tilbúin til að stuðla að frekari
eflingu bæjarfélagsins og veit að
reynsla mín af bæjarmálum og
þekking á áherslum góðs samfé-
lags nýtist mér vel og því býð ég
mig fram í þjónustu við bæjarbúa.
Mörg málefni eru mér ofarlega í
huga til framfara í Kópavogi og vil
ég nefna þessi:
• Betri almenningssamgöngur
innan Kópavogs.
• Fasteignagjöld í Kópavogi
verði lækkuð.
• Íþrótta-, lista-, og tómstunda-
skóli verði í dægradvöl við alla
grunnskóla Kópavogsbæjar.
• Fyrsta skólastigið, menntun í
leikskólum, verði gjaldfrjáls.
• Aukin áhrif íbúanna um mál-
efni bæjarins og auðveldari að-
gangur að stjórnkerfinu.
• Nýjan framhaldsskóla í Kópa-
vog og aukin áhersla á verknám í
öllum menntastofnunum bæjarins.
• Auðvelda íbúum og fyrirtækj-
um að flokka og endurnýta úrgang.
• Sérstaklega verði hugað að
málefnum eldri borgara bæjarins,
m.a. með auknu samráði við þá,
t.d. með skipun talsmanns eldri
borgara.
Kópavogsbær á að vera bær
fólksins, sem leggur áherslu á fjöl-
skylduna og fólkið í bænum þan-
nig að kappkostað verði að fólk fái
góða þjónustu og því líði vel í
Kópavogi. Það skiptir miklu máli
hvern við veljum til forystu. Fram-
sóknarflokkurinn í Kópavogi þarf
nú á öflugum stuðningi að halda.
Ég vil því biðja þig um stuðning
með því að merkja við mig í 1. sæti
í prófkjörinu hinn 12. nóvember,“
segir Una María Óskarsdóttir.
Una María Óskarsdóttir vill auðvelda
íbúum aðgang að stjórnkerfinu
Una María Óskarsdóttir. Sækist
eftir 1. sætinu í prófkjöri
Framsóknarflokksins.