Fréttablaðið - 18.04.2016, Page 42
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is eða
hringja í síma 512 5000.
Þökkum samúð og hlýjar kveðjur
vegna andláts og útfarar
okkar ástkæru
Bjargar Ívarsdóttur
sjúkraliða,
Stekkjarbergi 6, Hafnarfirði.
Sigrún Valgarðsdóttir Maggi G. Ingólfsson
Arnaldur Valgarðsson Arndís Jónsdóttir
Ívar Valgarðsson Ragnheiður G. Hrafnkelsdóttir
Kristján F. Valgarðsson Sigríður E. Snorradóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona, móðir og amma.
Guðný Indriðadóttir
Dalbraut 14, Reykjavík,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli
laugardaginn 9. apríl síðastliðinn.
Útförin fer fram frá Áskirkju
þriðjudaginn 19. apríl kl. 15.00.
Halldór Jónsson Jóhanna Björk Halldórsdóttir
Davíð Bjarki Jóhönnuson
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Margrét Margeirsdóttir
Brávallagötu 26, Reykjavík,
lést á Landspítalanum við Hringbraut,
sunnudaginn 10. apríl.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni
í Reykjavík, miðviku daginn 20. apríl kl. 13.00.
Ívar Gissurarson Stefanía Hrólfsdóttir
Margeir Gissurarson Hulda Biering
Snorri Gissurarson Bára Ægisdóttir
Laufey Gissurardóttir Kristinn Ólafsson
Lilja Gissurardóttir Árni Beinteinn Erlingsson
Ingólfur Gissurarson Valdís Arnórsdóttir
barnabörn og langömmubörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Margrét Sigríður Jónsdóttir
frá Stykkishólmi,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir
miðvikudaginn 6. apríl. Útförin verður frá
Seljakirkju þriðjudaginn 19. apríl kl. 13.00.
Helga Eygló Guðlaugsdóttir Reynir Garðarsson
Jón S. Guðlaugsson Þórkatla Þórisdóttir
barnabörn og langömmubörn.
1506 Júlíus páfi annar leggur hornstein að Péturskirkjunni í Róm
1903 Glasgow, eitt elsta og mesta stórhýsi í Reykjavík, verður eldi
að bráð
1906 Jarðskjálfti upp á 7.8 á Richter skellur á San Fransiskó, nærri
4000 manns láta lífið í eldsvoðum og 75% borgarinnar eyðileggst.
1927 Hornsteinn er lagður að nýrri kirkju á Landakoti í Reykjavík.
1944 Hermann Jónasson kjörinn formaður Framsóknarflokksins.
1955 Skriður eftir stórrigningar valda tjóni
á Siglufirði og skriða fellur úr Meðal-
felli í Kjós á bæinn Hjalla og verður
barni að bana.
1997 Helga Kress er kjörin for-
seti þáverandi heimspekideildar
og er fyrst kvenna til að fara
með forsæti deildar í Háskóla
Íslands.
2013 Tvær plánetur á borð við
jörðina eru uppgötvaðar á sporbaug
um stjörnuna Kepler-62.
Merkisatburðir
„Þegar ég sagði vinnufélögum mínum
að ég væri að verða þrítug þá var mikið
hlegið að mér því þau héldu að ég væri
að verða fertug. Ég veit ekki alveg hvern-
ig ég á að taka því,“ segir Edda Her-
mannsdóttir, en hún fagnar þrítugsaf-
mælinu sínu í dag. Edda segist alveg vera
tilbúin í það að verða þrítug, þó henni
finnist hún nýorðin sextán.
Edda segist vera mikið afmælis-
barn, en hún ætlar að byrja daginn á
því að púla með leikfimihópnum sem
hún kennir og borða kökur með þeim.
„Dagurinn fer svo í að fagna með fjöl-
skyldu og vinnufélögum. Ég er líka að
undirbúa stórafmælisveislu í vor með
bestu vinkonum mínum, þar sem við
fögnum saman 30 ára afmælinu okkar í
Gróttu. Dóttir mín er svo búin að undir-
búa afmælisgjöf sem hún smíðaði og sú
gjöf hefur verið rædd næstum daglega í
mánuð svo ég held það sé almennt mjög
mikill spenningur hjá okkur öllum,“
segir Edda.
Edda starfar nú sem samskiptastjóri
hjá Íslandsbanka, þar sem hún sér um
samskiptamál og stefnu bankans í sam-
félagslegri ábyrgð. Fleiri þekkja Eddu þó
frá sjónvarpsskjánum, en hún var spyrill
Gettu Betur frá 2011-2013.
Edda segist vona að næstu 30 ár verði
eins frábær og árin hingað til. „Ég hugsa
ég fari mér þó hægar næstu 30 árin en
við sjáum hvernig það mun ganga. Mig
langar að mennta mig meira og mig
langar að ferðast meira um heiminn með
börnunum mínum. Ég er alin upp við að
líta björtum augum á hlutina og hlakka
alltaf til að takast á við allskonar verk-
efni, stór sem smá.“
Edda segir síðustu ár hafa einkennst
af yndislegum stundum með börnunum
og skemmtilegum ferðalögum. „Ég held
að ferðalög séu eitt af því skemmtilegra
sem ég geri og ég er svona smám saman
að smita börnin af þeirri bakteríu. Mér
finnst maður líka verða þakklátari með
árunum og njóta stundarinnar betur.
Mér finnst ég ofboðslega rík með börnin
mín, Sigurð og Emilíu og hlakka til að
fagna þessum degi með þeim.“
Spurð út í það hvað hún gerir fyrir
utan vinnuna segist Edda byrjar helgarn-
ar sínar nánast undantekningarlaust á
því að fara í sund, „sértaklega eftir að for-
eldrar mínir fluttu í bæinn, þá er hálfgert
ættarmót í sundi. Ég kenni alltaf líkams-
rækt á morgnana og hef mikla unun af
því að hlaupa. Markmið mitt var að fara
í maraþon árið sem ég yrði þrítug – það
hefur þó ekki enn gerst en árið er ekki
búið ennþá, svo það er enn von.“
Ætlar að fagna deginum
með fjölskyldunni
Edda Hermannsdóttir fagnar þrítugsafmælinu sínu í dag. Hún ætlar að halda upp á daginn
með fjölskyldunni sinni og vonast til þess að næstu 30 ár verði eins frábær og síðustu 30.
Edda Hermannsdóttir fagnar þrítugsafmæli sínu í dag. Fréttablaðið/anton
Ég hugsa ég fari mér þó
hægar næstu 30 árin en
við sjáum hvernig það mun
ganga. Mig langar að mennta
mig meira og mig langar að
ferðast meira um heiminn með
börnunum mínum. Ég er alin
upp við að líta björtum augum á
hlutina og hlakka alltaf til að
takast á við allskonar verkefni,
stór sem smá.
Þennan dag árið 1906 reið sterkur jarðskjálfti yfir San Fransiskó í
Bandaríkjunum.
Skjálftinn, sem mældist um 8 stig á Richterskalanum, varð
snemma morguns en hundruð manna dóu þegar fjöldi bygginga
hrundi til grunna. Skjálftinn fannst allt frá suðurhluta Oregonríkis
til Los Angeles.
Miklir eldar brutust út í kjölfar skjálftans en ekki reyndist unnt
að slökkva þá þar sem vatnsæðar borgarinnar höfðu orðið fyrir
skaða. Til að hefta eldana sprengdu slökkviliðsmenn upp heilu
húsaraðirnar í borginni.
Herlið var kallað út til að aðstoða við hjálparstörf en fékk einn-
ig þau fyrirmæli að skjóta alla þá sem reyndu að fara rænandi og
ruplandi um skemmd og yfirgefin húsin.
Hinn 20. apríl voru 20 þúsund flóttamenn, sem voru innilokaðir
vegna eldanna, fluttir yfir á skipið USS Chicago.
Hinn 23. apríl var búið að slökkva flesta eldana. Talið er að um
3.000 manns hafi dáið í hamförunum og að um 30 þúsund bygg-
ingar hafi eyðilagst.
Þ Etta G E r ð i St : 1 8 a p r Í l 1 9 0 6
Jarðskjálfti skekur San Fransiskó
1 8 . a p r í l 2 0 1 6 M Á N U D a G U r18 t í M a M ó t ∙ F r É t t a B l a ð i ð
tíMaMót
1
8
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:1
9
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
1
B
-5
8
E
4
1
9
1
B
-5
7
A
8
1
9
1
B
-5
6
6
C
1
9
1
B
-5
5
3
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
1
7
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K