Bændablaðið - 16.04.2014, Blaðsíða 10

Bændablaðið - 16.04.2014, Blaðsíða 10
10 Bændablaðið | Miðvikudagur 16. apríl 2014 Aðalfundur Sambands garðyrkju- bænda verður haldinn 29. apríl og verður haldinn að Hótel Selfoss og hefst kl. 13. Fundurinn markar ákveðin tímamót því auk hefðbundinna aðalfundastarfa verður í fyrsta skiptið kosið eftir nýjum samþykktum SG sem samþykktar voru á síðasta ári. Núverandi formaður stjórnar SG er Sveinn A. Sæland. Endurskoðun félagskerfis SG hefur á undanförnum árum unnið að endurskoðun félagskerfis garðyrkjunnar og samþykkti á aðalfundi 2013 að breyta því og gera aðild einstaklingsbundna (einstaklingar og rekstrarfélög framleiðenda), en áður voru undirfélög garðyrkjunnar sem mynduð grunn SG. Samtímis þessum breytingum voru nýj lög SG samþykkt á síðasta ári. Helsta nýmælið er að á aðalfundinum verður kosið beinni kosningu til stjórnar í fyrsta sinn. Til þess að reka smiðshöggið á þá mikla vinnu sem lögð hefur verið í endurbætur félagskerfisins er stefnt að kynningu á aðalfundinum á drögum um stefnumótun garð- yrkjunnar til næstu ára. Ágúst Þorbjörnsson ráðgjafi hefur leitt þessa vinnu og mættu t.d. yfir 30 félagsmenn á sérstakan vinnufund um stefnumótun nú í mars. Fréttir Bændablaðið Kemur næst út 8. MAÍ Feðgarnir Sveinn A. Sæland, formaður SG, og Axel Sæland. Mynd / HKr. Tímamótaaðalfundur Sambands garðyrkjubænda: Í fyrsta skiptið kosið eftir nýjum samþykktum Örnefnanefnd samþykkti 17 ný örnefni á síðasta ári Örnefnanefnd afgreiddi á síðasta ári formlegar tilkynningar um 22 ný nöfn. Eftir umfjöllun í nefndinni voru 17 ný nöfn samþykkt og send þinglýsingarstjórum. Fjórum nöfnum var hafnað af öryggisástæðum með tilvísun til 5. gr. laga um bæjanöfn o.fl.: „Ekki mega nafngiftir leiða til samnefna á fasteignum í sama héraði né nafna sem eru svo lík öðrum nöfnum á fasteignum í héraðinu að hætt sé þess vegna við nafnabrenglum.“ Einu nafni var hafnað vegna þess að örnefnið sem kenna átti nýbýlið við er að mestu leyti innan landamerkja annarrar jarðar. Beiðnir um breytingar á nöfnum býla: Örnefnanefnd fékk á árinu 1 formlegt erindi um nafnbreytingu á býli og heimilaði hana. Við val á nýju nafni var miðað við staðhætti í landinu. Ný nöfn 2013 Árið 2013 tók örnefnanefnd , samkvæmt lögum um bæjanöfn o.fl. nr. 35/1953 með síðari breytingum, við tilkynningum um eftirgreind nöfn býla og sendi nöfnin hlutaðeigandi þinglýsingarstjórum: • Ánaland. Úr landi Efri-Reykja í Bláskógabyggð. • Ásgarður III. Úr landi Ásgarðs í Grímsnes- og Grafningshreppi. • Heimahagi. Úr landi Köldukinnar í Rangárþingi ytra. • Hraunmörk. Úr landi Skálmholts í Flóahreppi. • Hróarsklettar. Úr landi Hróarsholts II í Flóahreppi. • Kelduholt. Úr landi Köldukinnar í Rangárþingi ytra. • Klettholt. Úr landi Hróarsholts í Flóahreppi. • Litla-Pula. Úr landi Pulu, Holta- og Landsveit. • Lúnansholt III. Úr landi Lúnanholts II, Rangárþingi ytra. • Lúnansholt IV. Úr landi Lúnanholts II, Rangárþingi ytra. • Nónhamar. Úr landi Lækjarhúsa á Hofi í Öræfum. • Sauðholt III. Úr landi Sauðholts í Ásahreppi. • Skálafell. Úr landi Þóroddsstaða í Ölfusi. • Stekkjarás. Úr landi Dagverðareyrar í Hörgársveit. • Stekkjarhóll. Úr landi Öndólfsstaða í Þingeyjarsveit. • Syðri-Hamrar III. Úr landi Syðri-Hamra II, Ásahreppi. • Víðibakki. Úr landi Árbakka í Rangárþingi ytra. Árið 2013 fjallaði örnefnanefnd enn fremur um og féllst á beiðni um eftirgreinda breytingu á nafni býlis og sendi hið nýja nafn hlutaðeigandi þinglýsingarstjóra skv. lögum um bæjanöfn o.fl. nr. 35/1953 með síðari breytingum. • Hólmatjörn. Áður Ölversholt IV, Rangárþingi ytra. Seltjarnarneskaupstaður varð Seltjarnarnesbær Örnefnanefnd samþykkti breytingu á heiti sveitarfélagsins á Seltjarnarnesi úr Seltjarnarneskaupstaður í Seltjarnarnesbær. Rík málvenja er fyrir því að sveitarfélagið sé nefnt Seltjarnarnesbær og nafnið fellur vel að íslensku máli. Á bænum Kvistási í Kelduhverfi býr Indriði Vignir Haraldsson með 40 kindur og 7 geitur. Þann 14. janúar bar fyrsta geitin og síðan 4 til viðbótar og lifðu samtals 8 kiðlingar. Þeir eru orðnir stálpaðir og tímabært að setja þá út enda snjólétt og tíðarfar ágætt. Indriði hefur hins vegar ekki þorað að setja þá út þar sem mikið hefur verið um tófuspor kringum fjárhúsin og einnig í görðum við íbúðarhús þar sem tófan hefur verið að eltast við rjúpur. Eitt sinn að næturlagi leit hann út um eldhúsgluggann og sá þá tvær tófur í eltingaleik kringum olíutank og í annað sinn skaust mórauð tófa framhjá útidyrunum. Það varð að ráði að refaskyttan Ólafur Jónsson á Fjöllum lagði út gómsæta bita í haglabyssufæri við fjárhúsin og fór tófa fljótlega að koma þar að og gæða sér á þeim. Að kvöldi 4. apríl lá Ólafur svo fyrir þeim og skaut mórauðan ref og hvíta læðu þá um nóttina með haglabyssu út um fjárhúsdyrnar. Nú leika sér ánægðir kiðlingar við fjárhúsvegginn í Kvistási og ábúendur geta sofið áhyggjulausir enda heyrist ekki lengur tófugagg um nætur. Síðustu tvær geiturnar báru svo í lok mars og bættust þar með þrír litlir kiðlingar við í hópinn en ærnar munu bera á tilsettum tíma í vor. Ólafur hefur skotið fimm tófur til viðbótar í sveitinni í vetur og hefur orðið var við margar sem ekki hafa náðst enn sem komið er. „Það er orðið mikið meira um tófu hér en var fyrir tuttugu til þrjátíu árum. Enda tala menn um að tófustofninn hafi tífaldast og líklega vel það,“ sagði Ólafur í samtali við Bændablaðið. „Svona er þetta um allt land og í Húnavatnssýslum lá maður þrjár nætur við æti og skaut 31 tófu. Hér á svæðinu við Öxarfjörðinn og til Húsavíkur er búið að taka um 60 tófur í vetur. Samt næst ekki nema brot af tófunum og því mikill fjöldi eftir.“ Hann segir tófuna á svæðinu vera óhrædda við menn og sækja því mikið heim að húsum. Hann velti því fyrir sér hvort þessar tófur alist upp í þjóðgarðinum þarna fyrir ofan þar sem bannað er að skjóta þær. Þar sé mikil umferð ferðamanna í næsta nágrenni við þekkt tófugreni og ekki óalgengt að séu óhræddar við menn. Betri tækni léttir veiðimönnum starfið Ólafur segir ekki auðvelt að eiga við tófurnar í skammdeginu. Þó séu menn nú komnir með ýmis hjálpartæki eins og hreyfiskynjara og myndavélar sem valda því menn geta lagt sig á meðan beðið er þar sem borið hefur verið út æti fyrir tófuna. Hreyfiskynjarinn vekur menn svo ef tófa kemur í færi. Þetta sé mikill munur frá því sem áður var þegar menn þurftu að vaka heilu næturnar. Þá segir hann að refaskyttur séu orðnar mun þjálfaðri í skotfimi en áður og með öflugir vopn sem hiklaust sé hægt að beita á tófur á yfir 200 metra færi. Segist hann hafa heyrt dæmi um að skytta hafi náð tófu á 468 metra færi. Þrátt fyrir þetta þá haldi tófunni áfram notar jafnhliða haglabyssunni er Tikka T3 300 magnum af gerðinni Winchester sem er með þeim stærstu sem hér þekkjast. Ólafur segir að þó tófan sé ekki stórt dýr sé hún algjör ryksuga í náttúrunni og sem dæmi hafi læða eitt sinn komið með 23 þúfutittlingsunga í kjaftinum í sinni síðustu ferð heim á greni. „Ég myndi giska á að tófa fari ekki undir 100 kílómetra í leit sinni að æti að næturlagi. Fróðlegt væri að fá staðfestingu á þessu með því að festa GPS-tæki við tófu. Hún fer þó aldrei beina línu, heldur sveimar um í leit að æti með nefið niðri við jörðu.“ ÓJ/HKr. Bóndinn á Kvistási í Kelduhverfi: Þorði ekki að setja kiðlinga sína út af ótta við tófur – Fékk til sín refaskyttu af Fjöllum til að bjarga málum Indriði Vignir Haraldsson bóndi á Kvistási og Ólafur Jónsson refaskytta með litla hvíta læðu sem vóg einungis 2,7 kílógrömm og brúnan högna sem kiðlingarnir á bænum þurfa ekki að óttast framar. Algengt er að læðurnar séu 3- kg og dæmi eru um 7 kg re . Myndir / María Dís Ólafsdóttir Þessi kiðlingur vissi greinilega vel hvernig átti að stilla sér upp fyrir ljósmyndarann.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Bændablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.