Bændablaðið - 16.04.2014, Blaðsíða 45
45Bændablaðið | Miðvikudagur 16. apríl 2014
REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
www.VBL.is
REYKJAVÍK Sími: 414-0000 /// AKUREYRI Sími: 464-8600 /// www.VBL.is
• FARMER L 850 – 3 skeri
• FARMER M 850 – 4 skeri
• FARMER M 950 – 4 skeri
• FARMER MS 950 Vario – 4 skeri
• FARMER MS 950 Vario – 5 skeri
TIL AFGREIÐSLU STRAX
PLÓGAR FRÁ
SÁRASPREY FYRIR ÖLL DÝR
· Einstaklega græðandi
· Hægir á blæðingu
· Dregur úr sársauka og kláða
· Myndar filmu og hlífir sári
· Vinnur gegn bakteríu- og
sveppamyndun
· Íslensk framleiðsla
NÝSKÖPUNARVERÐLAUN
ÍSLANDS 2012
Siglufjörður · Sími 460 6900 · info@primex.is · www.primex.is
Fæst hjá
dýralæknum,
hesta- og búvöru-
verslunum
um land allt
Hreindýraveiðar:
Nær 80 á biðlista
eftir veiðileyfi
Hreindýrum hefur fjölgað mjög
á Íslandi á síðustu áratugum og
veiðar á hreindýrum hafa einnig
aukist. Þrátt fyrir stórauknar
veiðar telja margir að þær dugi
samt ekki til að halda stofninum
inna skynsamlegra marka.
Samkvæmt tölum Hagstofu
Íslands, hafa veiðar aukist verulega
frá 1995 þó dregið hafi umtalsvert úr
veiðum aftur á síðustu þrem árum.
Árið 1995 voru veidd 329
hreindýr og voru veiðarnar á
svipuðu róli næstu árin. Það var ekki
fyrr en 1999 að veiðarnar komust í
409 dýr og voru komnar í 553 dýr
árið 2003.
Síðan jukust veiðarnar ört og árið
205 voru veidd 855 hreindýr, 1037
dýr árið 2006 og 1283 dýr árið 2007.
Metveiðar árið 2009
Efnahagshrunárið 2008 varð
verulegur kippur í veiðunum, en þá
voru felld 1529 dýr. Árið 2009 voru
svo felld 1549 dýr sem er það mesta
sem veiðst hefur. Á árinu 2010 voru
svo felld 1.229 dýr og 1.001 árið
2011. veiðarnar fóru svo niður í
993 dýr árið 2012, en endanlegar
tölur fyrir 2013 liggja ekki fyrir
hjá Hagstofunni, en heimilt var að
veiða 1.229 dýr á síðasta ári. Þar af
var heimild gefin fyrir veiðar á 606
törfum og 623 kúm. Reiknað er með
að talan verði svipuð í ár.
Gríðarlegur áhugi á veiðum
Áhuginn á veiðunum skortir ekki og
í fyrra barst 3.581 gild umsókn og
varð því að draga um hverjir hrepptu
hnossið.
Árið 2013 var annað árið sem
veiðimenn þurftu að hafa lokið
skotprófi áður en þeir máttu halda
til veiða.
Á árinu 2012 gátu menn fengið
endurgreitt veiðileyfi ef þeir
skiluðu inn leyfinu ef þeir stóðust
ekki skotprófið. Talsvert mun hafa
verið um slíkt. Um það var þó ekki
að ræða í fyrra, þar sem öllum átti
þá að vera ljóst að þeir þurftu að
fara í gegnum skotpróf til að fá
veiðileyfið.
78 veiðimenn voru á biðlista
í byrjun apríl
Síðasti greiðsludagur staðfest-
ingargjalds hreindýraveiðileyfa
fyrir árið 2014 var 31. mars sl.
Þeir sem ekki greiddu fyrir 1.
apríl misstu þá tilkall til leyfisins
og Umhverfisstofa gat þá úthlutað
örðum leyfinu. Þann 10. apríl voru
samtals 78 á biðlista eftir að fá leyfi
til veiða á 9 veiðisvæðum.
Það er ekki ókeypis að stunda
hreindýraveiðar því veiðileyfi kostar
20.000 krónur fyrir hverja kú og
33.750 fyrir tarf. Þá á eftir að tala
kostnað við byssu og annan búnað,
ferðalög gistingu og veiðileiðsögn.
Hreindýr á Klausturseli.