Bændablaðið - 16.04.2014, Blaðsíða 42
42 Bændablaðið | Miðvikudagur 16. apríl 2014
Stjórn Búnaðarsambands
Eyjafjarðar þakkaði Sigurgeir
Hreinssyni fráfarandi formanni
sambandsins vel unnin störf í þágu
eyfirskra bænda á aðalfundi þess
nýverið. Sigurgeir hefur samtals
setið í stjórn BSE í 24 ára, þar af
var hann formaður þess í 13 ár.
Hann kom fyrst inn í stjórn
árið 1986 og sat til ársins 2001,
eftir örstutt hlé kom hann aftur
inn í stjórnina árið 2005 og var
þar til á liðnu ári, 2013 þegar hann
lét af búskap og tók við stöðu
framkvæmdastjóra BSE. Hann var
formaður þess á sama tíma, frá 2005
til 2013 og einnig á árunum 1996
til 2001.
Sigurgeir og Bylgja Sveinbjörns-
dóttir eiginkona hans fengu
áletraðan skjöld frá sambandinu þar
sem honum eru þökkuð störf í þágu
eyfirskra bænda en einnig „þökkuðu
bændur Bylgju sérstaklega fyrir
lánið á Sigurgeir í áraraðir,“ eins og
Árni Arnsteinsson í Stóra-Dunhaga,
stjórnarmaður í BSE, komst að
orði. Þess má geta að Sigurgeir og
Bylgja hlutu landbúnaðarverðlaun
Bændasamtaka Íslands árið 1999 og
nautgriparæktarverðlaun BSE 2004.
„Sigurgeir hefur um langt skeið
sinnt hagsmunum eyfirskra bænda
og gert það vel, hann hefur lengi
verið í brúnni í okkar sambandi
auk þess að vera fulltrúi okkar á
Búnaðarþingi og á fundum á vegum
Landssambands kúabænda,“ segir
Árni.
Snemma beindist áhugi
Sigurgeirs að búskap. Ungur að
árum gat hann rakið ættir bæði kúa
og kinda langt aftur í tímann og
kunni góð skil á búi foreldra sinna.
Það lá því beint við að hann aflaði
sér frekari menntunar á því sviði
með því að fara í Bændaskólann
á Hvanneyri þaðan sem hann
útskrifaðist sem búfræðingur árið
1977.
Hófu búskap á Hríshóli 1981
Sigurgeir og Bylgja hófu búskap á
Hríshóli árið 1981, fyrstu 16 árin í
félagsbúi með foreldrum Sigurgeirs.
Á Hríshóli var byggt nýtt fjós árið
2003 með nýjustu tækni innan dyra
s.s. mjaltaþjóni og ýmsu fleiru.
Árið 2008 kom Elmar sonur
þeirra inn búskapinn með þeim.
Sigurgeir og Bylgja hætta búskap
vorið 2013. Hríshólsbúið hefur lengi
verið með afurðahæstu kúabúum
héraðsins og nokkrum sinnum
í efsta sæti. Svipaða sögu er að
segja af sauðfjárbúskapnum. Frá
Hríshóli hafa komið á annan tug
kynbótanauta inn á sæðingastöð og
mörg hver reynst vel.
Mjög virkur í félagsmálum
Sigurgeir hefur verið mjög virkur
í félagsmálum bænda. Hann var
m.a. í undirbúningsnefnd fyrir
stofnun Félags eyfirskra kúabænda
1985. Hann var einnig í fyrstu
stjórn Félags sauðfjárbænda við
Eyjafjörð 1985 og í fyrstu stjórn
Kornræktarfélagsins Akurs 1997.
Þá sat hann í stjórn BSE 1986-2001
og aftur 2005-2013, þar af formaður
1996-2001 og 2005-2013. Síðan
framkvæmdastjóri BSE.
Sigurgeir var fulltrúi
Búnaðarsambands Eyjafjarðar
á aðalfundum Stéttarsambands
bænda og einnig fulltrúi BSE
á Búnaðarþingi. Hann sat í
Kynbótanefnd Bændasamtaka
Íslands í nautgriparækt, var í Fagráði
í nautgriparækt og varaformaður í
stjórn Landssambands kúabænda
2009-2011. Þá varð hann formaður
stjórnar Bjargráðasjóðs 2013.
/MÞÞ
Hvatningarverðlaun BSE fóru til loðdýrabúanna Dýrholts og Rándýrs:
Ósvikinn áhugi einkennir rekstur loðdýrabúanna
Hvatningarverðlaun Búnaðar-
sambands Eyjafjarðar 2013
fengu tvö loðdýrabú á svæðinu;
Dýrholt ehf. í Dalvíkurbyggð og
Rándýr ehf. í Grýtubakkahreppi.
Að því fyrrnefnda standa hjónin
Anna Baldvina Jóhannesdóttir
og Skarphéðinn Pétursson en
því síðarnefnda hjónin Bergdís
Hrönn Kristinsdóttir og Tómas
Jóhannesson.
Rándýr ehf., er elsta loðdýrabú
landsins þó það hafi ekki alltaf verið
rekið af núverandi eigendum en í
það bú komu fyrstu minkarnir sem
til landsins voru fluttir í desember
árið 1970. Tómas hóf ungur að starfa
á búinu, strax á upphafsárum þess
og því má segja að hann hafi verið
viðloðandi reksturinn alla tíð.
Mest tæplega 30 loðdýrabú í
Eyjafirði, nú eru þau tvö
Lítil fjölgun var í loðdýraræktinni
fyrsta áratuginn, en í kjölfar þess
að tekið var upp kvótakerfi í
hefðbundnum búgreinum í kringum
árið 1980 fóru bændur í auknum
mæli að huga að öðrum búgreinum
sem kynnu að koma í stað þeirra
hefðbundnum og eða að bæta upp
þann samdrátt sem varð í sauðfjár- og
mjólkurframleiðslu. Loðdýraræktin
var þá sú búgrein sem helst var litið
til í því sambandi. Mikil uppbygging
varð á næstu árum í greininni og í
Eyjafirði var loðdýraræktin sterkust
í nágrenni Dalvíkur annars vegar
og í Grýtubakkahreppi. Sennilega
voru refabú í Eyjafirði flest 17 árið
1985 og minkabúin voru 18 árið
1988. Á nokkrum búum voru báðar
tegundir loðdýra og heildarfjöldi
búa á þessum tíma hefur því verið
tæplega 30. Ekki þarf að fjölyrða um
þá erfiðleika sem greinin gekk í gegn
um frá því um 1990 og næstu 15 ár
þar á eftir.
Árið 1991 voru skráð loðdýr í
Eyjafirði 3.210 í 5 sveitarfélögum,
en tæpum áratug síðar, árið 2000
voru 2.554 dýr á 7 búum. Árið
2010 hafði orðið sú breyting að
einungis 2 loðdýrabú voru starfrækt
í firðinum. Annars vegar Dýrholt í
Svarfaðardal og Hörgárdal þar sem
voru skráð 2.150 dýr og Rándýr í
Grýtubakkahreppi með 2.260 dýr.
Á báðum þessum búum eru einungis
minkar.
Taka fullan þátt í uppbyggingu
greinarinnar
Einar E. Einarsson ráðunautur RML í
loðdýrarækt segir í umsögn um búin
tvö að á þeim tíma sem hann hefur
starfað sem ráðunautur í loðdýrarækt,
frá árinu 1999 hafi búin verið til
fyrirmyndar varðandi rekstur og
góðar afurðir.
Þrautseigja
„Ef skoðuð er útkoma þeirra á
gæðalistum okkar eða útkoma úr
einstaka skinnasýningum má líka
sjá að þau liggja bæði í hópi þeirra
búa hér á landi sem hafa hvað besta
framleiðslu.
Oft er sagt að þrautseigja einkenni
marga bændur en þeir aðilar sem
standa að þessum búum eru heldur
engin undantekning á því. Bæði búin
liggja fyrir utan þéttustu kjarnana í
minkarækt en hafa samt sem áður
ekki látið það á sig fá og tekið fullan
þátt í uppbyggingu greinarinnar með
öðrum minkabændum, sem sannar
að áhugi þeirra er ósvikinn,“ segir í
umsögn Einars.
/MÞÞ
Ábúendur á Syðri-Bægisá, þau
Helgi Steinsson og Ragnheiður
Margrét Þorsteinsdóttir,
hlutu sauðfjárræktarverðlaun
Búnaðarsambands Eyjafjarðar
árið 2013, en þau voru afhent á
aðalfundi sambandsins nýverið.
Veitt í ellefta sinn
Verðlaunin voru veitt í ellefta sinn
og samkvæmt sömu reglum og ávallt
hafa gilt. Byggt er á niðurstöðum
skýrsluhalds hjá þeim búum sem hafa
eitt hundrað eða fleiri fullorðnar ær
á skýrslum.
Tekið er tillit til þriggja þátta,
reiknaðs kjötþunga eftir fullorðna
kind, gerðarmats og hlutfalls milli
vöðva- og fitueinkunnar. Þá má sami
aðili ekki fá verðlaunin nema á tíu ára
fresti. Í ár var einmitt liðinn áratugur
frá því að verðlaunin voru síðast veitt
ábúendum á Syðri-Bægisá.
Helstu niðurstöður úr skýrslum
fyrir árið 2013 varðandi búið eru
þær að fullorðnar ær voru 140,
meðalkjötmagn eftir kind voru
28,5 kg. Veturgamlar ær voru
32, meðalkjötmagn eftir hverja
veturgamla á voru 13,7 kg. Metnir
dilkar voru 177 talsins, fallþungi var
17,4 kg, gerðarmat 10,7, fita 7,6 og
hlutfall gerð/fita 1,41.
Flest verkfæri kynbótastarfsins
hafa verið nýtt
Fram kom við afhendingu
verðlaunanna að ábúendur á Syðri-
Bægisa væru ágætt dæmi um
bændur sem með elju og dugnaði ná
árangri. Ötullega hefur verið unnið
að kynbótum á sauðfé og góðum
aðbúnaði sem eftir er tekið. Dilkar
hafa verið vænir og feikivel gerðir.
Snyrtimennska einkennir jafnframt
búið að Syðri-Bægisá.
Flest verkfæri kynbótastarfsins
hafa verið nýtt og Helgi hefur verið
í forsvari fjárræktarfélagsins í sinni
sveit og haldið uppi ágætu starfi.
Búið að Syðri-Bægisá er því gott
dæmi um að þegar menn tileinka
sér hinar bestu aðferðir í kynbótum,
fóðrun og umönnun eigins búpenings
uppskera menn í samræmi við það.
/MÞÞ
Sauðfjárræktarverðlaun Búnaðarsambands Eyjafjarðar 2013:
Árangur næst með elju og dugnaði
Anna Baldvina Jóhannesdóttir, sem rekur loðdýrabúið Dýrholt í Dalvíkurbyggð
ásamt Skarphéðni Péturssyni manni sínum, tekur við hvatningarverðlaunum
Búnaðarsambands Eyjafjarðar úr hendi Gunnhildar Gylfadóttur, formanns
sambandsins.
Verðlaun voru veitt á aðalfundi Búnaðarsambands Eyjafjarðar á dögunum. Frá vinstri eru Helgi Steinsson, Syðri
Bægisá, sem hlaut sauðfjárræktarverðlaun, Anna Baldvina Jóhannesdóttir frá Dýrholti í Dalvíkurbyggð sem hlaut
ásamt loðdýrabúinu Rándýri í Grýtubakkahreppi hvatningarverðlaun BSE og Guðmundur Guðmundsson, sem
stendur ásamt eirum að félagsbúinu Hallandi, en búið hlaut nautgriparæktarverðlaun BSE að þessu sinni.
Hríshólshjónum þökkuð vel unnin störf
Bylgja Sveinbjörnsdóttir og Sigurgeir Hreinsson hlutu viðurkenningu frá
stjórn BSE á aðalfundi sambandsins, en Sigurgeir hefur sinnt stjórnarstörfum
á vegum þess í rúmlega tvo áratugi.