Bændablaðið - 16.04.2014, Page 22
22 Bændablaðið | Miðvikudagur 16. apríl 2014
Það er ekki sjálfgefið að fólk vinni
allan sinn starfsferil hjá einum og
sama vinnuveitandanum. Magnús
Sigsteinsson, forstöðumaður
Byggingaþjónustu Bændasamtaka
Íslands, lætur senn af störfum, en
hann hefur síðustu 46 ár unnið hjá
Bændasamtökunum og þar áður
forvera þeirra, Búnaðarfélagi
Íslands.
Magnús var ráðinn lands-
ráðunautur í byggingum og bútækni
hjá Búnaðarfélaginu árið 1968,
strax að loknu háskólanámi sínu og
hefur leiðbeint bændum varðandi
hönnun landbúnaðarbygginga
af ýmsu tagi allar götur síðan.
Þá hefur hann um árabil verið
skrifstofustjóri Búnaðarþings auk
þess að sinna ýmsum verkefnum
fyrir Bændasamtökin.
Alla tíð búið á Blikastöðum
Magnús, sem lætur nú af störfum
fyrir aldurs sakir, er fæddur
í Reykjavík árið 1944, sonur
hjónanna Helgu Magnúsdóttur og
Sigsteins Pálssonar. Þau Helga og
Sigsteinn bjuggu á Blikastöðum
í Mosfellssveit en jörðina hafði
móðurafi Magnúsar, Þ. Magnús
Þorláksson keypt árið 1908 og ásamt
konu sinni, Kristínu Jósafatsdóttur
breytt kotinu sem þá var í stórbýli
með miklum dugnaði. Þau Helga
og Sigsteinn byggðu jörðina áfram
upp og var þar rekið eitt stærsta
kúabú landsins, með á milli 50
og 60 mjólkandi kúm þar til árið
1973. Magnús er kvæntur Mörtu G.
Sigurðardóttur og eiga þau fjögur
uppkomin börn. Þau hjón byggðu
sér hús í Blikastaðalandi og fluttu í
það árið 1972 og hafa búið þar allar
götur síðan.
Var með traktoradellu
Magnús tók þátt í hefðbundnum
sveitastörfum á Blikastöðum og
vann við búskapinn á sumrin eftir
að hann hóf skólagöngu.
„Sem smápatti var ég látinn
stjórna rakstrarvél sem hesti var
beitt fyrir. Ég náði því hins vegar
ekki að slá tún með hestasláttuvél
því þegar ég var 7 ára gamall var
hætt að slá með hestasláttuvélinni
og keyptur traktor, Massey Harris
Pony með sláttuvél. Brátt fjölgaði
traktorum og vinnutækjum við þá
á búinu og leystu dráttarhestana og
hestaverkfærin af hólmi. Á mínum
uppvaxtarárum var því mitt aðalstarf
á sumrin að vinna hin ýmsu bústörf
með traktor og heyvinnuvélum. Í þá
daga voru duglegir krakkar oft látin
vinna á vélum strax og þeir náðu
niður á kúplinguna og bremsuna
úr ekilssætinu. Mér þótti þessi
vélavinna skemmtileg, var með
traktoradellu og síðan bíladellu, því
á Blikastöðum var bæði til jeppi og
vörubíll sem ég var oft látinn keyra
sem unglingur, að sjálfsögðu sjaldan
út á Vesturlandsveginn próflaus
heldur aðeins innan bújarðarinnar.“
Ekki stóð til að verða bóndi
Magnús segir að þó hann hafi tekið
virkan þátt í búskapnum hafi aldrei
staðið til að hann yrði bóndi og tæki
við búskap á Blikastöðum.
„Við vorum sammála um það
við pabbi að það væri ekki framtíð
í því að halda áfram að reka kúabú
á Blikastöðum, svona nálægt
Reykjavík. Svo var nú kannski það
að mér leiddust heldur fjósaverkin,
ég hafði miklu meira gaman að
útivinnu, tækjavinnunni.“
Fékk meðmæli frá
búnaðarmálastjóra til náms
Magnús gekk í barna- og
unglingaskóla á Brúarlandi í
Mosfellssveit. Hann tók landspróf
í gagnfræðaskólanum í Vonarstræti
í Reykjavík og innritaðist síðan í
Menntaskólinn í Reykjavík þaðan
sem hann lauk stúdentsprófi árið
1964. Magnús hélt síðan til náms
í Noregi þar sem hann nam einn
vetur í Bændaskólanum á Öxnavaði
á Jaðri, skammt frá Stafangri. Þaðan
útskrifaðist hann sem búfræðingur
árið 1965 og haustið eftir hóf hann
nám í landbúnaðartæknifræði við
Landbúnaðarháskólann á Ási í
Noregi. Þaðan útskrifast Magnús
með cand agric gráðu af tæknilínu
í ágúst 1968.
„Ég vissi ekki nákvæmlega
hver framtíðin yrði hjá mér.
Þegar ég sótti um inngöngu í
Landbúnaðarháskólann á Ási þurfti
meðmæli frá Búnaðarfélagi Íslands
en þar á milli var samningur um
að einn Íslendingur gæti haldið
þangað til náms hvert ár. Þegar
ég var á síðasta ári í menntaskóla
var ég orðinn ákveðinn í að mig
langaði að læra landbúnaðarnám,
með áherslu á tæknigreinarnar, bæði
vélar og byggingar. Ég fór því og
talaði við Halldór Pálsson, sem þá
var búnaðarmálastjóri, og honum
leist vel á mínar hugmyndir. Ég fékk
því meðmæli frá Búnaðarfélaginu
og í framhaldi af því var ákveðið
að ég héldi til náms í bændaskóla.
Að bændaskólinn á Öxnavaði skyldi
verða fyrir valinu var ekki síst fyrir
áhrif Árna G. Eylands sem taldi
að það yrði gott fyrir mig að fara
þangað, ekki síst til að ná góðum
tökum á norskunni áður en ég
byrjaði í háskólanáminu. Þetta gekk
eftir, ég tók búfræðinginn á einum
vetri en venjulega var námið tveir
vetur. Það var vissulega strembið
en gekk allt. Ég fékk svo inngöngu
í skólann á Ási og var þar í þrjú afar
ánægjuleg ár.“
Gaman að hanna stórbyggingar
„Þegar ég útskrifaðist frá Ási þá
sagði Halldór Pálsson að það vantaði
mann til að ráðleggja um byggingar
og bútækni. Ég var því ráðinn sem
landsráðunautur í byggingum og
bútækni hjá Búnaðarfélaginu en
sú staða hafði ekki verið til áður.
Þetta starf var nú eiginlega það
besta sem ég gat hugsað mér út frá
minni menntun og áhuga. Þetta var
mikil upphefð. Megináhersla var
lögð á leiðbeiningar um byggingar,
vinnuhagræðingu og aðbúnað. Árið
1990 setti Búnaðarfélagið á fót
teiknistofu fyrir bændur en það ár var
Byggingarstofnun landbúnaðarins,
sem rekin var af Stofnlánadeildinni,
lögð niður. Ég var frá upphafi
ráðinn forstöðumaður þessarar
teiknistofu og hef starfað síðan
við ráðgjöf, hönnun og teikningu
landbúnaðarbygginga af ýmsu tagi.
Það hefur verið gríðarlega gaman
að takast á við hönnun á ýmsum
stærri verkefnum. Það fyrsta
sem ég hannaði af slíkum stærri
byggingum er líklega tilraunafjósið
á Möðruvöllum, síðan tilraunafjósið
á Stóra-Ármóti, fjósið á Hvanneyri
og síðan Nautastöðin á Hesti. Allt
voru þetta stórbyggingar sem var
gaman að hanna og teikna.“
Um 1.100 verk á 24 árum
Magnús segir að hann viti ekki
hversu mörg gripahús hann hefur
hannað og teiknað í gegnum tíðina.
„Þau eru rosalega mörg, bæði
fjós, fjárhús, svínahús og hesthús.
Verknúmerin alls hjá teiknistofu
Magnús Sigsteinsson lætur af störfum eftir 46 ára starf hjá Bændasamtökunum:
„Mér leiddust heldur fjósverkin“
– Varð fyrsti landsráðunautur í byggingum og bútækni árið 1968
Magnús við skrifborðið sitt í Bændahöllinni. Mynd / HKr.
Magnús og Marta í skíðaferð árið 2011 í ítalska þorpinu Madonna di Campiglio.