Bændablaðið - 16.04.2014, Page 26
26 Bændablaðið | Miðvikudagur 16. apríl 2014
„Það er vitlaust að gera, ekki
síst núna fyrir landsmót
hestamanna á Hellu í
sumar, og það hefur verið
meira en nóg að gera
frá því að við opnuðum
hestasundlaugina hér
í Áskoti 2006, “ segir
Jakob Þórarinsson,
en hann og eiginkona
hans , Arnheiður
Guðbergsdóttir, eiga
fyrirtækið Sundhestar
ehf.
S u n d l a u g i n í
Áskoti í Ásahreppi í
Rangárvallasýslu er 40
metra löng, auk hringlaugar
en hitastigið á vatninu er 14
gráður. Hestar eru að synda
allt upp í 600 metra á dag.
„Við erum að taka á móti
250 til 300 hrossum hér á
ári, mikið af stóðhestum
og keppnishrossum.
Stór þáttur hefur alltaf
verið sjúkraþjálfun og
endurhæfing hrossa sem
hafa slasast eða meiðst
og reynslan sýnt að sund
kemur þar vel að gagni
enda fara allir okkar
viðskiptavinir hæstánægðir
með þjónustuna og batann
sem hestarnir fá. Í stuttu
máli þá er sundþjálfun er
leið til þess að byggja upp
þrek og þol, auka vöðvamassa sem
styrkir bak og lend. Eflir jafnvægi
og eykur gleði og jákvæðni,“ bætti
Jakob við. /MHH
Könnun um ferðalög og ferðahegðun Íslendinga:
Margir telja að erlendir ferðamenn auki áhuga landans á íslenskri náttúru
– Álag erlendra ferðamanna á náttúruna of mikið að flestra mati
Áskoti í Ásahreppi:
Þrjú hundruð hestar synda í einu hestasundlaug landsins
Félagarnir Jakob og Hörður vinna mikið saman
í hestasundlauginni. Þeir eru báðir fyrrverandi
lögreglumenn og forfallaðir hestamenn í dag.
Hryssan Stjarna frá Kríumýri í Flóa er hér með
þeim, en hún er í eigu Harðar. Hún slasaðist illa
á löppum nýlega en hefur nánast alveg jafnað
sig eftir sjúkraþjálfun í Áskoti og sundferðunum.
Tíu dag sundþjálfun er mjög vinsæl í Áskoti, en þá syndir hesturinn einu sinni á dag í þessa daga fyrir utan einn dag sem hann fær frí. Fyrsta daginn
syndir hann tvær ferðir og síðan bætist ein ferð við með hverjum degi. Á þessum 10 dögum syndir hesturinn 3 sinnum y r laugina sem gerir um 1,6 km.
Hér er Hörður Harðarson með einn hest í lauginni. Sundlaugin er sambærileg við venjulega sundlaug. Bæði er í henni fullkominn hreinsibúnaður og eins
er notaður klór til þess að tryggja sem best hreinlæti.
Niðurstöður liggja nú fyrir úr
könnun um ferðalög Íslendinga á
árinu 2013 og ferðaáform þeirra
á árinu 2014, sem Ferðamálastofa
fékk MMR til að gera í janúar
síðastliðnum. Er þetta fimmta árið
í röð sem könnun Ferðamálastofu
um ferðahegðun landsmanna er
gerð með sambærilegum hætti.
Greint er frá niðurstöðum
könnunarinnar á vefsíðu
Ferðamálastofu.
Spurningalistinn er að mestu
leyti sá sami og í fyrra en að þessu
sinni voru svarendur í fyrsta sinn
beðnir um að taka afstöðu til fimm
fullyrðinga um áhrif ferðaþjónustu
og erlendra ferðamanna á náttúru
og samfélag. Flestir (65%) eru
á því að erlendir ferðamenn hafi
aukið áhuga Íslendinga á íslenskri
náttúru en eru jafnframt á því (63%)
að álag ferðamanna á íslenska
náttúru sé of mikið. Að mati 59%
svarenda hefur ferðaþjónusta
skapað eftirsóknarverð störf í
þeirra heimabyggð og 58% eru á
því að ferðamenn hafi aukið áhuga
Íslendinga á eigin menningu. 42%
töldu hins vegar að ferðaþjónusta
hefði leitt til fjölbreyttari þjónustu
sem þeir hefðu nýtt sér.
Íslendingar ferðaglaðir sem fyrr
Af fjölmörgum áhugaverðum
n i ð u r s t ö ð u m k ö n n u n a r
Ferðamálastofu má nefna að þó svo
álíka margir hafi verið á faraldsfæti
innanlands árið 2013 og 2012,
eða níu af hverju tíu svarendum,
fóru þeir færri ferðir eða um 5,7
talsins árið 2013 í samanburði við
6,8 ferðir árið 2012. Þetta hefur þó
ekki haft áhrif á meðaldvalarlengd á
ferðalögum sem er svipuð milli ára
eða um 15 nætur.
Á faraldsfæti í júlí og ágúst
Ferðalög landsmanna eru
árstíðabundin líkt og fram
hefur komið í fyrri könnunum
Ferðamálastofu og þarf vart að
koma á óvart. Júlí og ágúst voru sem
áður stærstu ferðamannamánuðir
ársins 2013 en 72,9% ferðuðust
innanlands í júlí og 62,2% í ágúst.
Júní fylgir síðan fast á eftir en
ríflega helmingur (54,5%) ferðaðist
þá. Þegar þróunin er hins vegar
skoðuð á þeim fimm árum sem
Ferðamálastofa hefur framkvæmt
kannanir meðal Íslendinga hefur
þeim farið fjölgandi sem ferðast
utan háannar.
Flestir gista í sumarhúsum
Hlutfallslega fleiri nýttu gisti-
valmöguleikana sumarhús eða
íbúð í einkaeign (41,6%) og hótel,
gistiheimili eða sambærilega
gistingu (31,3%) á ferðalögum
um landið á árinu 2013 en árinu
2012. Sem fyrr gistu þó flestir hjá
vinum eða ættingjum á síðastliðnu
ári eða 48,5%. Þar á eftir kom
gisting í tjaldi, fellihýsi eða húsbíl
(42,8%) en samkvæmt könnunum
Ferðamálastofu hefur þeim þó
heldur fækkað á síðustu árum sem
nýta þessa tegund gistingar.
Sundlaugar og jarðböð vinsæl
Þegar niðurstöður eru bornar saman
við fyrri kannanir má sjá að þeim fer
fjölgandi sem nýta sér sundlaugar eða
jarðböð en 75,5% greiddu fyrir slíka
afþreyingu á ferðalögum innanlands
árið 2013. Þar á eftir fylgdu söfn
og sýningar (37,1%), leikhús og
tónleikar (25,4%), veiði (21,7%),
golf (13,2%) og bátsferðir (9,9%).
Náttúrutengd afþreying var sem
áður nýtt af hlutfallslega fáum.
Þannig fóru 6,1% í gönguferð eða
fjallgöngu með leiðsögumanni,
3,9% í skoðunarferð með
leiðsögumanni, 3,4% í hestaferð
og 2% í flúðasiglingu eða kajakferð.
Hvaða landsvæði voru heimsótt?
Suðurlandið var sá landshluti sem
flestir heimsóttu á ferðalögum á
árinu 2013, eða 66,1%. Svarendur
tilgreindu annars heimsóknir sínar til
einstakra landshluta með eftirfarandi
hætti:
Suðurland 66,1%
Norðurland 61,8%
Vesturland 52,3%
Höfuðborgarsvæðið 32,7%
Austurland 29,2%
Vestfirðir 24,5%
Reykjanes 20,3%
Hálendið 14,6%
Merkjanleg aukning hefur
síðan verið í heimsóknum til
flestra landshluta á þeim árum sem
þessi spurning hefur verið inni í
könnun Ferðamálastofu, nema
höfuðborgarsvæðisins.
Um helmingur ferðalanga kemur
við á Akureyri
Í könnuninni eru tilgreindir 55
staðir um allt land (6-9 í hverjum
landshluta) og svarendur beðnir að
merkja við hvort ferðalög þeirra
hafi legið þangað á árinu. Akureyri
er þar efst á blaði en helmingur
svarenda sem ferðaðist innanlands
kom þangað á síðastliðnu ári.
Listinn yfir 10 fjölsóttustu staðina
árið 2013 var annars þessi:
Akureyri 49,6%
Borgarnes 33,9%
Þingvellir/Gullfoss/
Geysir
30,1%
Skagafjörður 22,5%
Egilsstaðir/
Hallormsstaður
21,6%
Mývatnssveit 21,3%
Hvalfjörður 20,0%
Vík 19,1%
Húsavík 17,6%
Kirkjubæjarklaustur 17,3%
Enn fækkar dagsferðum
Einnig er spurt um dagsferðir en
þær eru skilgreindar sem a.m.k.
fimm klst. langar skemmtiferðir
út fyrir heimabyggð. Fjölgaði
þeim sem ekki sögðust hafa farið
í neina dagsferð á árinu 2013 frá
árinu 2012. Þannig sögðust 37,6%
aðspurðra ekki hafa farið í dagsferð
í fyrra en þetta hlutfall var 33,2%
árið 2012 og síðan enn lægra árið
2011 eða 25,2%. Þeir sem fóru í
dagsferðir fóru að jafnaði 7,9 ferðir
á árinu 2013 álíka margar og árið
2012 þegar þær mældust 8,0 talsins.
Þingvellir, Gullfoss og Geysir
bera hins vegar höfuð og herðar
yfir aðra staði þegar spurt var
um hvaða staði fólk heimsótti í
dagsferðum. Vart þarf að koma á
óvart að efst raðast staðir í nágrenni
höfuðborgarinnar.
Þingvellir,
Gullfoss, Geysir
33,1%
Reykjanesbær 19,0%
Borgarnes 18,2%
Eyrarbakki 16,5%
Hvalfjörður 14,2%
Grindavík 13,9%
Akureyri 13,5%
Akranes 11,5%
Bláa lónið 10,0%
Krísuvík 9,5%
Um könnunina
Könnunin var unnin sem netkönnun
dagana 9.-15. janúar 2014. Úrtakið
var 1.600 Íslendingar á aldrinum
18-80 ára, valdir handahófskennt úr
17.000 einstaklinga álitsgjafahópi
MMR sem valinn er með
tilviljunarúrtaki úr þjóðskrá.
Svarhlutfall var 61,3%. Niðurstöður
könnunarinnar eru vigtaðar með
tilliti til kyns, aldurs, búsetu og
menntunar í þýði. Framkvæmd og
úrvinnsla var í höndum MMR.
/MÞÞ