Bændablaðið - 16.04.2014, Qupperneq 28
28 Bændablaðið | Miðvikudagur 16. apríl 2014
Á dögunum fór fram málþing
í Norræna húsinu um sóun á
matvælum en talið er að um 30
prósent alls matar sem framleiddur
er í heiminum lendi í ruslinu.
Geigvænlegar tölur, í ljósi þess að
á árunum 2010 til 2012 þjáðust
um 870 milljónir manneskja af
viðvarandi vannæringu. Það
þýðir að einn af hverjum átta
jarðarbúum lifir neðan við
hungurmörk.
Nægur matur framleiddur
Nægur matur er hins vegar
framleiddur í heiminum til að
brauðfæða alla jarðarbúa. Þrátt
fyrir að fólki hafi fjölgað um 70
prósent í heiminum á síðustu 30
árum framleiðum við 17 prósent
fleiri kaloríur á hverja manneskju
í dag heldur en við gerðum fyrir 30
árum, eingöngu í landbúnaði. Þá
á eftir að telja til allar fiskveiðar.
Ástæða þess að hungur fyrirfinnst
í þessu mæli þrátt fyrir þessar
staðreyndir eru fátækt, ójöfn
dreifing efnislegra gæða, styrjaldir
og loftslagsbreytingar. Nálega allir
þeir sem búa við hungur eru íbúar
þróunarríkja eða um 852 milljónir.
Um 16 milljónir þeirra sem búa við
hungur eru íbúar iðnríkjanna.
Á síðasta aldarfjórðungi hefur
þó tekist að draga úr fjölda þeirra
sem lifa undir hungurmörkum
samkvæmt gögnum Matvæla og
landbúnaðarstofnunar Sameinuðu
þjóðanna, FAO. Á árunum 1990 til
1992 var fjöldinn 1.015 milljónir
sem jafngilti einum af hverjum fimm
jarðarbúum. Samkvæmt nýjustu
tölum sultu 842 milljónir manns á
árunum 2011 til 2013 eða 12 prósent
jarðarbúa.
Geigvænleg sóun
Æ aukinn fjöldi fólks gerir sér grein
fyrir þeirri geigvænlegu sóun sem
á sér stað í matvælaframleiðslu,
við úrvinnslu, í smásölu og hjá
neytendum, bæði á heimsvísu
og hér á landi. Fjöldi fólks hefur
tekið pólitíska afstöðu gegn sóun
á matvælum og hér á landi, sem
erlendis, eru til hópar fólks sem
kalla sig ruslara. Ruslarar eru þeir
sem safna mat úr ruslagámum og
neyta hans. Fjölmörg dæmi eru
vitanlega um að fólk geri slíkt úr
neyð en ekki síður hefur fjöldi fólks
tekið þá afstöðu að rusla sem andóf
við neyslusamfélaginu og sóuninni.
Nýtir það sem annars væri hent
Í Kaupmannahöfn er rekinn
veitingastaður sem heitir Rub & Stub,
og er markmiðið með rekstrinum að
berjast gegn sóun á matvælum. Með
því að nota vörur sem falla til við
matvælaiðnað og eru ekki nýttar
stefnir veitingastaðurinn að því að
draga úr sóun á mat í Kaupmannahöfn
og Danmörku. Veitingastaðurinn
opnaði í ágúst á síðasta ári og hefur
síðan þá notið vaxandi vinsælda
Kaupmannahafnarbúa, sem og
ferðafólks.
Á veitingastaðnum er þó ekki
framreiddur matur sem beinlínis
hefur verið hent í ruslið heldur er
samið við birgja um að Rub & Stub
taki til sín matvöru sem af einhverjum
ástæðum er ekki nýtt eða selst ekki.
Dæmi um slíkt gætu verið grænmeti
sem ekki stenst útlitskröfur, matvara
sem er að komin nálægt síðasta
söludag eða árstíðabundinn matvara
eins og jólamatur sem ekki hefur
selst fyrir hátíðarnar. Allur maturinn
er hins vegar í góðu lagi.
Ágóðinn til hjálparstarfs
Að elda úr afgangs matvælum
krefst skapandi hugsunar þar sem
nýta þarf þau matvæli sem í boði
eru hverju sinni. Rub & Stub er
rekið af sjálfboðaliðum og ganga
um 100 sjálfboðaliðar vaktir á
veitingastaðnum. Einungis tveir
launaðir starfsmenn starfa þar,
yfirkokkur og framkvæmdastjóri.
Allur ágóði af rekstri veitingahússins
fer til hjálparstarfs í Sierra Leone þar
sem unnið er að uppbyggingarstarfi
eftir borgarastyrjöldina sem geisaði
í landinu á tíunda áratugnum.
Blaðamaður sótti staðinn heim
í ferð sinni til Kaupmannahafnar
á dögunum og varð mjög hrifinn
af því sem á borð var fyrir hann
borið. Það kvöld var aðalrétturinn
lasanja borinn fram ásamt haustsalati
í fallegum litum. Verðinu var
sannarlega í hóf stillt og var þetta
hin besta kvöldstund. Best var þó
að fá á tilfinninguna að með því að
borða á Rub & Stub hefði maður
gerst örlítill þátttakandi í að gera
heiminn að bærilegri stað. Vonandi
vindur það upp á sig. /fr
Veitingastaðurinn Rub & Stub í Kaupmannahöfn býður upp á mat úr „ruslinu“:
Barist gegn sóun matar
Einn af hverjum átta jarðarbúum býr við hungur meðan 30 prósentum alls matar er hent
Á veitingastaðnum Rub & Stub er
matvara sem annars hefði verið hent
nýtt til að búa til veislumat.
Svona lítur ferli þess matar sem veitingastaðurinn býður upp á út. Ágóðinn
er nýttur til hjálparstarfs í Sierra Leone.
Einungis tveir launaðir starfsmenn vinna á staðnum y rkokkur og
framkvæmdastjóri. Um 100 sjálfboðaliðar skipta með sér vöktum við að
þjónusta gesti.
Veitingastaðurinn er heimilislegur, þar eru nýtt notuð húsgögn og húsbúnaður og andrúmsloftið er allt hið notalegasta.
Anna á Stóru-Borg sýnd í Heimalandi
Leikfélag Austur-Eyfellinga
sýnir frumsamda leikgerð
eftir skáldsögu Jóns Trausta
um Austur-Eyfellinginn Önnu
Vigfúsdóttur á Stóru-Borg.
Margrét Tryggvadótt i r
leikskólakennari á Hvolsvelli skrifar
leikgerðina og leikstjóri er Sveinn
Óskar Ásbjörnsson. Þátttakendur
eru á þriðja tug. Sýningar verða í
félagsheimilinu Heimalandi undir
fjöllunum. Frumsýning var í byrjun
apríl.
Með titilhlutverkið fer Þórunn
Ólafsdóttir og bróður hennar, Pál
Vigfússon lögmann á Hlíðarenda,
leikur Bjarni Böðvarsson. Anna
Vigfúsdóttir var fædd í byrjun
16. aldar og dó árið 1571. Hún
var hefðarkona en þekktust fyrir
samband sitt við alþýðupiltinn
Hjalta Magnússon og langvarandi
stríð við lögmanninn bróður sinn af
þeim sökum. Siðaskiptin koma þar
líka töluvert við sögu. „Fyrir réttum
100 árum, árið 1914, skrifaði Jón
Trausti skáldsögu um Önnu sem
byggð er á heimildum og sögnum
úr héraði um samband hennar við
Hjalta og átökin við Pál. Skáldsagan
naut strax mikillar hylli en er nú í
fyrsta sinn færð upp á leiksvið.
Sem er viðeigandi á aldarafmæli
þessarar hárómantísku ástarsögu
um sjálfstæða konu, sem gefur
kynsystrum sínum í Njálu ekkert
eftir þegar kemur að því að bjóða
körlum byrginn,“ segir í tilkynningu
frá leikfélaginu. Leikfélag Austur-
Eyfellinga var stofnað árið 1970 og er
fyrsta leikfélagið í Rangárvallasýslu.
/MHH
Leikarahópurinn og
forsvarsmenn Leikfélags
Austur-Eyfellinga, sem
taka þátt í uppfærslunni
á Heimalandi.