Bændablaðið - 16.04.2014, Blaðsíða 43
43Bændablaðið | Miðvikudagur 16. apríl 2014
Á Halllandi á Svalbarðsströnd
búa nú félagsbúi Guðmundur
Guðmundsson, Lára Hrafnsdóttir,
Máni Guðmundsson og
Hólmfríður Freysdóttir. Árið 1991
gengu þau inn í búskapinn með
foreldrum bræðranna, Guðmundi
Haraldssyni og Hólmfríði
Ásgeirsdóttur og stóð svo til ársins
2002.
Aðaluppistaðan í búskapnum
var þá mjólkurframleiðsla og
svo hefur verið síðan. Jafnframt
hefur nautakjötsframleiðsla verið
til staðar og með nýrri byggingu
árið 2005 jókst sú framleiðsla til
muna. Elsti hluti fjóssins er frá því
laust fyrir 1960 og var að þeirrar
tíðar vana hefðbundið básafjós.
Viðbyggingar hafa risið og miklar
breytingar átt sér stað, fyrst kom
mjaltabás og lausganga með
legubásum og loks mjaltaþjónn.
Flestir skrokkar í
úrvalsgæðaflokki
Afurðir hafa jafnan verið góðar
á Halllandsbúinu, en við síðustu
breytingar varð stórt stökk þar
sem meðalnytin komst í 6845 kg
eftir kúna á síðasta ári. Fallþungi
nautanna er einnig með ágætum,
vega að meðaltali rúm 300 kg
við slátrun ríflega tveggja ára
gamlir og lenda flestir skrokkar
í úrvalsgæðaflokka. Nautgripir á
Halllandi eru nú um 300, um 70
mjólkurkýr, annað eins af kvígum
og 160 naut á ýmsum aldri. /MÞÞ
Verðlaun fyrir nautgriparækt:
Afurðir jafnan góðar
á Halllandsbúinu
Aðalfundur Búnaðarsambands Eyjafjarðar:
Tekjuöflun Bjargráðasjóðs verði þannig
að hann geti bætt tjón vegna stóráfalla
Aðalfundur Búnaðarsambands
Eyjafjarðar sem haldinn
var í Hlíðarbæ nýverið
beinir því til Bændasamtaka
Íslands og Atvinnuvega- og
nýsköpunarráðuneytis að sjá til
þess að tekjuöflun Bjargráðasjóðs
verði með þeim hætti að hann geti
bætt bændum tjón sem verða
þegar stóráföll ganga yfir.
Í greinargerð sem fylgir
ályktun BSE segir að í lögum um
Bjargráðasjóð sé ekkert sem tryggi
að þegar uppi komi stóráföll verði
það bætt í samræmi við tjónið. Þar
sé einungis hægt að treysta á velvild
ríkisvaldsins hverju sinni.
Eftirlit verði einfaldað
Þá var á aðalfundi sambandsins
samþykkt ályktun þar sem því
var beint til Matvælastofnunar og
Atvinnuvegaráðuneytis að einfalda
eftirlit með aðbúnaði og velferð
dýra.
„Það hlýtur að vera hagkvæmt
að sameina alla eftirlitsþætti því
þeir eru á hendi MAST í dag. Færri
starfsmenn þyrfti og bændur væru
ekki að agnúast yfir því að fá hvern
eftirlitsmanninn á fætur öðrum
heim á hlað sem er að skoða nánast
það sama,“ segir í greinargerð.
Tilraun verði gerð til að draga
úr kalskemmdum
Á fundinum var einnig
samþykkt tillaga að gerð nýrra
búvörusamninga þar sem
ríkisstjórn er hvött til að undirbúa
samningsgerð við bændur vegna
nýrra búvörusamninga.
Endurnýjun slíkra samninga
takilangan tíma og skilgreining
samningsmarkmiða þurfi að
liggja fyrir í tíma.
Eins hvatti aðalfundurinn
stjórn til að stuðla að
framkvæmd tilraunar sem hafi
það að markmiði að draga úr
kalskemmdum á þann hátt að
fleyguð séu göt á svell sem liggur
á túnum.
„Vísbendingar eru um að hægt
sé að draga úr kaltjóni vegna
klakamyndunar með því að gata
svellið með ákveðnu millibili,“
segir í greinargerðinni.
/MÞÞ
Innréttingar
Hillu- og skúffukerfi
Fyrir allar gerðir bíla
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
www.VBL.is
REYKJAVÍK Sími: 414-0000 /// AKUREYRI Sími: 464-8600 /// www.VBL.is
REYKJAVÍK
Krókháls 5F
110 Reykjavík
Sími: 414-0000
AKUREYRI
Baldursnes 2
603 Akureyri
Sími: 464-8600
HAGSTÆTT VERÐ
REKSTRARVÖRUR – GOTT ÚRVAL
Sjá nánar í vefverslun okkar á VBL.is undir beislishlutir
af augaboltum, beislisbitum, pinnum, beislisboltum, beisliskúlum, festihlekkjum,
hraðtengihlekkjum, hringsplittum, keðjuhlekkjum, klofsplittum, krókum,
R-splittum, smellukrókum, smellusplittum, strekkjurum, vírlásum,
yfirtengjum, yfirtengiskúla, og margt fleira
Fræðslufundur
Gras- og grænfóðurrækt og beit mjólkurkúa
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins (RML) efnir til
fræðslufundar um gras- og grænfóðurrækt og beit
mjólkurkúa miðvikudaginn 23. apríl nk. – síðasta
vetrardag – kl. 13.30 í húsakynnum LbhÍ á Hvanneyri.
Fundarsalurinn Borg á 2. hæð.
Á fundinum mun Eiríkur Loftsson, ráðunautur
hjá RML, hafa framsögu um fundarefnið, svara
fyrirspurnum og taka þátt í umræðum. Kúabændur
og aðrir sem áhuga hafa eru velkomnir á fundinn.
Kaffiveitingar.