Bændablaðið - 16.04.2014, Page 46

Bændablaðið - 16.04.2014, Page 46
46 Bændablaðið | Miðvikudagur 16. apríl 2014 Karlakór Eyjafjarðar setur innan tíðar upp kórleikinn „Frásögn úr Frónsskíri“ í Laugaborg, en áætlað er að sýna verkið fjórum sinnum í vor. Stjórnandi kórsins, Petra Björk Pálsdóttir, samdi verkið en Skúli Gautason leikari aðstoðar við leikstjórn. Hljómsveit sem undir leikur er skipuð þeim Valmari Väljaots á píanó, Hauki Ingólfssyni á bassa, Birgi Karlssyni á gítar og Árna Katli Friðrikssyni á trommur. „Kórinn syngur bæði gömul lög og ný og eru leikarar í verkinu úr röðum kórfélaga, þeir standa sig með mikilli prýði,“ segir Petra Björk, en þrjú frumsamin glæný lög verða flutt á sýningunni. Kórfélagar í Karlakór Eyjafjarðar eru ríflega 30 talsins og taka allir þátt í uppfærslu á kórverkinu. Petra Björk hefur stjórnað kórnum frá árinu 2002 og segir að hugmyndin hafi verið sú að gera eitthvað nýtt og skemmtilegt nú í vor í stað þess að halda hefðbundna vortónleika. „Mig langaði að brydda upp á einhverju nýju, en verk af þessu tagi hefur lengi verið að gerjast uppi í höfðinu á mér, ég hef verið með það í vinnslu í nokkur ár þar uppi,“ segir hún. Létt gamanleikrit Í fyrrasumar settist Petra Björk svo niður og skrifaði verkið, kynnti það svo fyrir stjórn á liðnu hausti sem tók vel í að setja það upp þannig að hafist var handa við æfingar. „Við byrjuðum á því að æfa lögin og eftir áramót var tekið til við að æfa verkið í heild sinni og það hefur gengið ljómandi vel, við skemmtum okkur konunglega á æfingum og vonum að gestir muni hafa af því ánægju líka,“ segir hún. „Þetta er létt gamanleikrit sem gerist á óræðum en sögulegum tíma.“ Hundurinn á bænum leggur sitt af mörkum Kórverkið segir frá óðalsbónda nokkrum og vel gjafvaxta dóttur hans, karlinn er orðinn þreyttur á að hafa hana heima við og lætur berast út að henni muni fylgja ríkulegur heimanmundur finnist fyrir hana rétti maðurinn. Vonbiðlarnir taka að streyma heim á bæinn en dóttirin finnur þeim allt til foráttu og vísar á bug. „Enda eru hún að upplagi dyntótt frekjudós,“ segir Petra Björk. Við sögu koma fjölmargir kynlegir kvistir, hundurinn á bænum, sem leggur sitt af mörkum til að hrekja vonbiðla á brott, alvitur spegill sem ekki lýgur, þjónustufólk er að sjálfsögðu á þönum kringum feðginin og er sölumaður sigins fisks á sveimi. Petra Björk segir að verkið sé að hluta til samið með kórfélaga í huga, líf þeirra og störf, en sem dæmi er aðaltekjuöflun kórsins ár hvert sala á signum fiski. Sögumaður sem stundum villist út af textanum Sögumaður er einnig í verkinu, hinn skorinorði Pétur Pétursson læknir fer með það hlutverk og skilar því með sóma að sögn höfundar. „Hann villist stundum út af textanum ef sá gállinn er á honum og í raun veit maður aldrei upp á hverju hann tekur, en það er allt í góðu og hann hefur enn sem komið er ekki farið yfir strikið,“ segir Petra Björk. Pétur er líka í hlutverki hvíslara, „ef við hin gleymum okkur þá er bara að treysta á Pétur, hann er með textann,“ bætir hún við, en höfundurinn fer sjálfur með hlutverk dótturinnar. Sýningar verða sem fyrr segir í Laugaborg, frumsýning 2. maí næstkomandi og þá er sýning daginn eftir, 3. maí og einnig eru fyrirhugaðar tvær sýningar helgina þar á eftir, eða dagana 9. og 11. maí. /MÞÞ Karlakór Eyjafjarðar setur upp kórverk eftir stjórnanda sinn: Skemmtum okkur vel á æfingum og vonum að gestir hafi jafn gaman af „Mig langaði að brydda upp á einhverju nýju, en verk af þessu tagi hefur lengi verið að gerjast uppi í höfðinu á mér,“ segir Petra Björk, höfundur kórverksins og stjórnandi Karlakórs Eyjafjarðar. Mynd / MÞÞ Hér er einn af vonbiðlunum á ferðinni, Þór Jónsteinsson að segja frá fína húsinu sínu. Pétur Pétursson fer með hlutverk sögumanns í kórverkinu, en að baki honum eru félagar í Karlakór Eyjafjarðar. Skúli Gautason hefur aðstoðað við uppsetningu kórverksins. Engilbert Ingvarsson í hlutverki hundsins á bænum reynir að ná athygli heimasætunnar, en Petra Björk fer með hlutverk hennar.

x

Bændablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.