Bændablaðið - 16.04.2014, Qupperneq 48
48 Bændablaðið | Miðvikudagur 16. apríl 2014
Fróðleiksbásinn
Vilmundur Hansen þjóðfræðingur og garðyrkjufræðingur
Vinsældir ávaxtatrjáa hafa aukist
mikið undanfarin ár og er það
draumur margra að rækta sína
eigin ávexti í garðinum jafnvel
þótt uppskeran sé lítil og mörgum
þykir nóg ef trén blómstra. Þau
ávaxtatré sem reynst hafa nógu
harðger til að rækta utan dyra hér
á landi eru epla-, peru-, plómu- og
kirsuberjatré.
Fyrirsögnin á greininni er
gamalt slagorð fyrir verslanir
Silla og Valda sem voru víða um
Reykjavík fyrir fjörutíu árum eða
svo. Á þeim tíma þótti lúxus að
fá ávexti um jólin og talað var um
eplalykt í húsum. Upphafleg mun
um Biblíutilvitnun vera að ræða úr
Matteusarguðspjalli og ætlað að vara
við falsspámönnum. Fyrirsögnin
hefur ekkert með greinina að gera
annað en að orðið ávextir kemur
þar fram og mér finnst slagorðið
flott fyrirsögn.
Ávaxtatrjám þarf að velja góðan
stað í garðinum, í skjóli og þar sem
sólar nýtur, til dæmis við suðurvegg.
Til að vel takist með ræktunina þarf
að velja yrki sem reynst hefur vel.
Yrki eru plöntur sem fjölgað er
kynlaust og allir afkomendur eru
sömu arfgerðar og móðurplantan.
Plöntur eru valdar til ræktunar
vegna sérstakra eiginleika, hversu
harðgerðar þær eru eða vegna
mikillar uppskeru, bragðgæða eða
blómfegurðar.
Undantekningarlaust ágædd
Ávaxtatré sem seld eru hér eru
undantekningarlaust ágrædd. Það
þýðir að ofanjarðarhlutinn, sem er
framræktað yrki, er grætt á rót af
villitré. Ástæðan fyrir þessu er sú
að rót framræktaðra yrkja er lélegri
en villirætur. Rætur villitrjánna eru
mismunandi og kallast rótarstofnar.
Ágræðslan er yfirleitt gerð í 20
sentímetra hæð frá rótarhálsinum.
Sendinn jarðvegur og vel
framræstur
Æskilegt er að blanda hæfilegu
magni af lífrænum áburði í
jarðveg fyrir ávaxtatré. Einnig þarf
framræsla að vera góð og gott að
jarðvegurinn sé eilítið sendinn.
Þegar ávaxtatré er plantað skal
gera svolítinn kúf á jarðveginn og
planta trénu þannig að það standi
aðeins ofar en jarðvegurinn í kring.
Nauðsynlegt er að setja staur niður
með trénu til að styðja við það fyrstu
árin. Eftir að ávaxtatré hafa komið
sér fyrir eru þau nægjusöm og nóg
að kasta nokkrum kornum af áburði
í jarðveginn í kringum þau tvisvar
til þrisvar yfir sumarið. Gott er að
vökva þau reglulega í þurrkatíð,
sérstaklega á meðan aldinin eru að
vaxa. Ávaxtatré þola vel klippingu
en óþarfi er að klippa þau mikið
nema hugmyndin sé að móta þau
sérstaklega. Hæfilegt bil á milli trjáa
er þrír til fimm metrar.
Tvö yrki nauðsynleg til að fá
ávöxt
Ávaxtatré geta verið sjálffrjóvgandi
eða ekki og sum eru það sem kallað
er hálfsjálffrjóvgandi. Ef um er að
ræða tré sem ekki frjóvga sig sjálf
verður að hafa að minnsta kosti tvö
tré af ólíkum yrkjum til að frjóvgun
geti átt sér stað. Þetta stafar af því
að tré sem eru af sama yrki eru í
raun sama planta sem fjölgað hefur
verið kynlaust.
Blómgist ávaxtatré mikið getur
reynst nauðsynlegt að fjarlægja
nokkra aldinvísa úr hverjum
blómklasa til að aldinin verði færri
en stærri.
Epli (Malus domestica).
Upprunalegur vaxtarstaður epla er
Kasakstan og fjalllendi Mið-Asíu.
Fjöldi yrkja er talinn í þúsundum
og skiptast þau í villi-, matar-
og skrautepli. Í náttúrulegum
heimkynnum sínum ná eplatré
átta metra hæð. Ræktuð eplatré
eru undantekningarlaust ágrædd.
Algengustu rótarstofnar epla
kallast M27, M9 og M26 en gerð
rótarstofnsins ákvarðar hæð trésins.
Frægasta epli sögunnar er án
efa eplið sem Adam og Eva eiga
að hafa borðað af og er kennt við
skilningstréð. Ólíklegt er þó að um
sé að ræða epli á frummáli því litlar
líkur eru á að eplatré hafi vaxið á
söguslóðum Biblíunnar. Aftur á móti
er erfitt að segja fyrir víst hvað óx
í paradís sköpunarsögunnar. Annað
frægt epli er það sem stóð í stúlkunni
í ævintýrinu um Mjallhvíti og ekki
má gleyma þrætueplinu súra sem
dafnar svo vel hér á landi. Reynslan
af eplayrkjunum er mismunandi
en mörg þeirra lofa góðu. Dæmi
um yrki sem hafa reynst vel eru
Sävstaholm, Carroll, Haugmann,
Melba, Quinte og Huvitus. Epli eru
yfirleitt ekki sjálffrjóvgandi en þó
eru undantekningar á því. Dæmi
um sjálffrjóvgandi yrki eru Sunset
og Scrumptious. Auk þess eru til
yrki sem eru hálfsjálffrjóvgandi sem
þýðir að þau geta frjóvgað sig sjálf
en eru betri með öðrum tegundum.
Dæmi um það eru Transparente
Blanche og James Grieve. Einnig
eru til yrki með þrjá litninga en
þau eru ónothæf til að frjóvga með.
Þar má nefna Close, Gravenstein
og Jonagold. Öll þessi yrki hafa
reynst harðgerð hér á landi. Á
svokölluðum fjölskyldutrjám eru
fleiri en eitt yrki grædd á eina rót
og þannig næst uppskera yfir lengri
tíma og fjölbreytni í bragði og lit.
Gallinn við fjölskyldutré er að ef
eitt yrkið er mjög kraftmikið getur
það vaxið fram úr öðrum og orðið
ráðandi. Til að eplatré, sem ekki
frjóvga sig sjálf, frjóvgist þarf að
minnsta kosti tvö ólík yrki sem
blómstra á svipuðum tíma. Yfirleitt
sjá flugur um frjóvgunina en þeir
sem vilja vera alveg vissir um að
hún takist bera frjókornin á milli
blómanna á trjánum með mjúkum
pensli eða fjöður.
Pera (Pyrus communis).
Upprunnin í Mið-Asíu, er náskyld
epli og ræktunin svipuð. Nær
allt að tólf metra hæð. Pera er
viðkvæmari en epli en getur
þrifist ágætlega á skjólgóðum og
sólríkum stað. Heimildir eru um
ræktun á perum í Kína meira en
þúsund árum fyrir upphaf okkar
tímatals. Áður en tóbak barst til
Evrópu frá Nýja heiminum reyktu
Evrópubúar þurrkað perulauf. Líkt
og síder er búinn til úr eplum er
búinn til drykkur úr perum sem
kallast perrý. Yrki sem reynst hafa
vel hér eru Skånsk sukkerpære,
sem er upprunnin í Svíþjóð. Hún
er harðgerð, blómstrar snemma og
þroskar aldin utandyra. Herrapæra
og Broket July eru upprunnar
í Frakklandi og eru sæmilega
harðgerðar á góðum stað. Grev
Moltke er frá Danmörku og hefur
myndað aldin utandyra hér. Pepi er
frá Eistlandi og lofar góðu. Ekkert
af þessum yrkjum er sjálffrjóvgandi
fyrir utan Pepi sem hugsanlega er
sjálffrjóvgandi. Grev Moltke er
þriggja litninga og getur því ekki
frjóvgað önnur tré.
Plóma (Prunus domestica).
Upprunnin í Mið-Asíu þar sem
tréð nær tíu metra hæð. Plómur
eru annaðhvort sjálffrjóvgandi eða
ekki. Yrkin sem hér eru í ræktun
eru hvoru tveggja. Opal, sem er
frá Svíþjóð, er sjálffrjóvgandi,
þroskar aldin um miðjan september
og er þokkalega harðgert. Czar er
sjálffrjóvgandi breskt yrki sem hefur
reynst nokkuð harðgert og þroskar
aldin snemma í september. Edda
frá Noregi. Ekki sjálffrjóvgandi,
þroskar um miðjan september. Lofar
góðu. Hermann er sjálffrjóvgandi
yrki frá Svíþjóð sem myndar aldin
snemma og lofar góðu. Plómur eru
losandi séu nokkrar borðaðar í einu.
Súrkirsuber (Prunus cerasus).
Upprunaleg heimkynni í Kákasus
og Vestur-Asíu þar sem tréð nær
allt að fimm metra hæð en er oft
runnavaxið og því sjaldan klippt.
Oft flokkað í tvær undirtegundir,
morell (P. cerasuas var. austera) og
amarell (P. carasus var. caproniana).
Aldin af amarell eru yfirleitt sætari
en af morell. Súrkirsuber eru með
harðgerðustu ávaxtatrjám sem völ er
á en aldinin eru ekki góð til átu. Bæði
til sjálf- og ósjálffrjóvgandi yrki.
Blómfalleg og henta sem skrauttré.
Yrkin Fanal og Skyggemorell eru
bæði upprunnin í Þýskalandi,
harðgerð, sjálffrjóvgandi og þroska
aldin í september. Nordia er sænskt
að uppruna, sjálffrjóvgandi og lofar
góðu þrátt fyrir takmarkaða reynslu.
Sætkirsuber/fuglakirsuber
(Prunus avium). Upprunnið
í Mið-Asíu og getur náð allt að
tuttugu metra hæð en má halda niðri
með klippingu. Yrki bæði sjálf-
og ósjálffrjóvgandi. Harðgerð en
viðkvæmari en súrkirsuber. Þrífast
best í frjósömum og vel framræstum
jarðvegi. Yrkin sem reynst hafa
best hér á landi eru öll frá Kanada
og þroska aldin í ágúst. Stella og
Sunburst eru sjálffrjóvgandi en
Sue ekki. Í Japan flykkist fólk
út í almenningsgarða með teppi,
stóla, borð og nesti á vorin þegar
kirsuberjatrén blómstra og haldnar
eru veislur í tilefni blómgunar
þeirra.
Af ávöxtunum skuluð þið þekkja þá
Ekki eru öll epli góð til matar.
Pera er viðkvæmari en epli en getur
þri st ágætlega á skjólgóðum og
sólríkum stað.
Plóma er upprunnin í Mið-Asíu, þar
sem tréð nær tíu metra hæð.
Í Japan eru haldnar hátíðir þegar
kirsuberjatrén blómstra á vorin.