Bændablaðið - 16.04.2014, Síða 56
56 Bændablaðið | Miðvikudagur 16. apríl 2014
Vélabásinn
liklegur@internet.is
Hjörtur L. Jónsson
Mitsubishi Outlander 4X4:
Kraftmikill með mikla dráttargetu
Þegar fjölskyldubíllinn þarf að
vera rúmgóður, fjórhjóladrifin,
þægilegur, kraftmikill og á góðu
verði er vert að skoða Mitsubishi
Outlander. Þó svo að Outlander
hafi verið til sölu hjá Heklu,
umboðsaðila Mitsubishi, í
nokkur ár hefur Outlander tekið
töluverðum breytingum frá fyrstu
árgerð.
Einhver best hljóðeinangraði bíll
sem ég hef keyrt
Ég tók Outlander í prufuakstur
fyrir skemmstu og ók honum tæpa
tvöhundruð kílómetra. Eins og oftast
þegar ég prófa nýjan bíl set ég bílinn
í gang og geng einn hring um bílinn.
Þegar ég rölti mér í hring um bílinn
fannst mér dísilvélin vera hávær, en
þegar ég settist inn í bílinn og lokaði
hurðinni hélt ég að vélin væri ekki
í gangi en snúningshraðamælirinn
sagði annað. Einnig þegar ég ók
bílnum á malarvegi fann ég vel
hvernig smásteinar og möl lömdu
undirvagninn. Þrátt fyrir að finna
vel fyrir mölinni heyrðist nánast
ekkert malarhljóð inn í bílinn. Þó
var eitt sem angraði mig, en það var
hvað maður fann tiltölulega mikið
fyrir litlum holum á malarvegi. Ég
tel að sé hægt að laga með öðrum
dekkjum og felgum. Outlander
kemur á 18 tommu álfelgum með
lágum dekkjum (225-55-18) sem
gefur góða aksturseiginleika á
malbiki. Með því að fá sér 17 tommu
felgur og dekk sem eru með hærri
„prófíl“ ætti að nást betri fjöðrun út
úr hærri dekkjunum. Margir eru með
tvo felguganga fyrir sumar og vetur
og mæli ég með að ef einhver fari að
þessum ráðleggingum hafi 17 tommu
felgurnar sem vetrardekkjaganginn
(t.d.235-65-17).
Eyðslan í langkeyrslu lítil en
fullmikil í innanbæjarakstri
Outlander er útbúin með akreinavara
sem er mjög gott gagnvart öryggi
og virkar þannig að ef maður fer
yfir á aðra akrein og yfir punktalínu
án þess að gefa stefnuljós pípir
mælaborðið og akreinavaraljósið
blikkar gult (hef aðeins keyrt einn
bíl áður með þessum búnaði og
finnst mikið öryggi í honum). Einnig
er Outlander með árekstrarvara
að framan, en þegar ég reyndi að
prófa hann var ég alltaf byrjaður
(sennilega vegna hugleysis) að
bremsa áður en árekstrarvarinn
tók völdin. Að keyra bílinn í
innanbæjarakstri er gott, fyrir utan
að þegar lagt er af stað úr kyrrstöðu
finnst mér bíllinn latur af stað fyrstu
tvo til þrjá metrana, en eftir það var
hann næstum of sprækur. Útsýni er
mjög gott og ef maður ætlaðar njóta
útsýnis, eru ekki margir bílar sem
jafnast á við Outlander. Ég keyrði
bílinn svolítið innanbæjar og fannst
hann þá eyða full miklu. Uppgefin
eyðsla er 5,7 lítrar á hverja hundrað
kílómetra í meðalakstri, en ég var að
eyða 11-12 lítrum innanbæjar. Þegar
ég fór í langkeyrslu var bíllinn hins
vegar að eyða rúmum 6 lítrum. Eftir
170 km. Prufuakstur, á meðalhraða
upp á 62 km á klukkustund, var
eldsneytiseyðsla bílsins 7,7 lítrar á
hundraðið.
Mjög mikið farangursrými og
pláss
Fyrir fólk sem er mikið með farangur
s.s. golfsett ætti þessi bíll að henta
vel þar sem að farangursrýmið aftur
í bílnum er virkilega mikið (gæti
vel trúað að hægt sé að koma vel
fyrir þrem til fjórum golfsettum).
Einnig er plássið fyrir fætur í
fremri sætunum óvenju mikið og
fyrir farþegana þrjá í aftursætinu er
óvenju mikið pláss (ekkert þröngt
fyrir þrjá fullorðna). Mitsubishi
hefur alltaf verið með góða spegla
bæði inni í bílnum og á hliðum
sem sést vel aftur fyrir bílinn. Ég
verð aðeins að nefna ljósabúnaðinn
sem mér hefur verið tíðrætt um að
undanförnu, en þessi bíll er með eins
og flestir nýir bílar dagljósabúnað
sem eru bara tvö lítil ljós fram fyrir
bílinn. Ef keyrt er með ljósarofann
stilltan á „auto“ eru þessi litlu ljós,
en ef keyrt er inn í bílageymslu
(til dæmis fyrir framan Hagkaup
Holtagörðum) þá kveikna sjálfkrafa
ökuljósin, einnig þegar dimma tekur.
Hins vegar kvikna þessi ljós ekki
sjálfkrafa í þoku og skafrenningi
og því er það áríðandi að fólk sé
meðvitað um það að er aðstæður
myndast þar sem gott væri að treysta
á að sjá afturljós verður bílstjórinn
að kveikja ljósin sjálfur eða að láta
setja dagljósaútbúnað í bílinn sem
ég mæli með að fólk geri þegar það
kaupir nýjan bíl.
Kraftmikil vél og gott verð
Dísilvélin er 2,2 lítra og á að skila
150 hestöflum. Tog vélarinnar er
mjög gott og má bíllinn draga 2.000
kg vagn sé hann búin bremsum
sem er óvenju mikið miðað við
stærð og þyngd, snerpan er góð að
undanskildum fyrstu metrunum.
Eftir prufuaksturinn þegar ég
skoðaði verðlistann kom verðið
mér á óvart því að ég hafði gert ráð
fyrir að verðið væri á milli 7 og 8
milljónir, en verðið á Outlander er
frá 4.990.000 á ódýrasta bílnum sem
er að vísu bensínbíll. Bíllinn sem
var prófaður kostar 5.990.000. Hægt
er að fræðast meira um Outlander
á vefsíðu Heklu á slóðinni www.
mitsubishi.is .
Mitsubishi Outlander 4X4 .
Lengd: 4.655 mm
Hæð 1.680 mm
Breidd: 1.800 mm
Þyngd 1.555 kg
Verð frá 4.990.000 kr.
Mitsubishi Outlander.
Svona ljósabúnaður nnst mér óásættanlegur þó að reglur segi þetta í lagi.
Nægilegt pláss frá bremsudælum
framan og aftan vilji maður minka
felgu um eina tommu.
Akreinavarinn sem þarna er grænn blikkar gulur og autar ef farið er y r
punktalínu án þess að gefa stefnuljós.
Mjög mikið farangursrými og þessa skúffu er hægt að fjarlægja vilji maður
enn meira rými.
Myndir /HLJ.