Bændablaðið - 16.04.2014, Page 57
57Bændablaðið | Miðvikudagur 16. apríl 2014
Lesendabás
Erfðabreytt ræktun matjurta og
neysla þeirra hefur í för með sér:
• Þróun „ofurillgresis“
• Þróun eiturþolinna
„ofurskordýra“
• Nýja tegund hættulegrar lífveru
sem finnst í erfðabreyttri
uppskeru
• Eyðingu og tap á náttúrulegum
sýklavörnum (plantna, dýra og
manna)
• Minnkuð jarðvegsgæði
• Minni uppskeru
• Minna næringarefnainnihald
uppskeru
• Aukningu sjúkdóma og skæðari
sýkla
• Stórkostlega hækkun á tíðni
ófrjósemi, fæðingargalla, and-
vana fæðingum og skyndidauða.
Ofurillgresi og ónæmi fyrir eitri
Gríðarleg eyðilegging á umhverfi
fylgir ræktun erfðabreyttrar uppskeru.
Erfðabreytt korn með gen sem fælir
skordýr (Bt korn) og átti að verða til
að minnka skordýraeitursnotkun (og
gerði það í byrjun),er farið að missa
virkni - innan við 10 árum eftir að
fyrstu fræ með þessa eiginleika voru
sett á markað.
Gegnum notkun á Roundup hefur
orðið til „ofurillgresi” með mótstöðu
gegn illgresiseyði og krefst stöðugt
eitraðri efna í meira magni. Vegna
þessa er nú Monsanto að þróa nýtt
eiturefni, að hluta til úr bannaða
eitrinu Agent Orange sem notað var
til að drepa gróður í Víetnamstríðinu
og á að nota á matjurtirnar þegar
Roundup er hætt að virka. Frá árinu
1996 þegar erfðabreytt fræ var kynnt
til sögunnar til ársins 2011 hefur
notkun illgresiseyðis aukist um 25%
árlega vegna aukinnar mótstöðu.
Óþekkt skaðleg lífvera
Árið 1998 – u.þ.b. 2 árum eftir að
Roundup Ready sojabaunir komu
á markað, greindist áður óþekkt
lífvera í soja. Þessi lífvera er af
svipaðri stærð og vírus og vex mjög
vel í sambýli við aðrar örverur
s.s. bakteríur, sveppi og vírusa.
Dýralæknar uppgötvuðu lífveruna
í kjölfar hárrar tíðni ófrjósemi
og aukinnar tíðni skyndilegra
fósturláta og vitað er að hún hefur
áhrif á nautgripi, hross, svín, sauðfé
og alifugla. Þar sem þessi lífvera
hefur slík áhrif á svo margar ólíkar
dýrategundir er viðbúið að hún hafi
sömu áhrif á menn. Hjá sumum
bændum vestanhafs er hún orðin
verulegt vandamál, sem ógnar
eðlilegri endurnýjun gripa á búum
og þar með rekstrargrundvelli þeirra.
Auk þessa veldur hún sjúkdómum og
dauða hjá plöntum. Lífveran finnst í
erfðabreyttum maís og sojabaunum,
en einnig í jarðvegi þar sem þessar
jurtir eru ræktaðar með glýfosati
og þar sem húsdýraáburður sem
inniheldur mikið magn glýfosats er
borinn á tún.
Sjá myndband og umfjöllun á
slóðinni: http://www.youtube.com/
watch?v=-nHCw36wIhs
Einnig:
http://news.163.com/ 12/0513/16/81
D9LD9P00014AEE.html
Ný áður óþekkt lífvera sem finnst
í erfðabreyttu fóðri s.s. soja og
maís veldur ófrjósemi, fósturláti
og vansköpun.
Líflaus jarðvegur og minna
næringarefnainnihald
Rannsókn sem gerð var af Navdanya
í Indlandi á efnum í jarðvegi sem
erfðabreytt bómull hafði verið ræktuð
í um 3ja ára skeið leiddi í ljós, að á
þessum 3 árum varð veruleg hnignun
á jarðvegslífi og efnaframboði í
jarðvegi erfðabreyttu plantnanna.
Þessi rannsókn er sú fyrsta sem
skoðar langtíma áhrif erfðabreyttrar
bómullar með tilheyrandi
eiturefnanotkun á jarðveginn.
Áhrif erfðabreyttrar uppskeru á
lífverur í jarðvegi eru almennt ekki
rannsökuð og niðurstöðurnar benda
til að öryggiskröfur og fullyrðingar
líftækniiðnaðarins í sambandi við
ræktun erfðabreyttra matvæla
séu rangar. Á 3 árum minnkaði
heildarlífmassi örvera um 8,9%,
bakteríum hafði fækkað um 14%,
geislasveppum (sem eru nauðsynlegir
til að brjóta niður sellulósa til að
skapa mold) hafði fækkað um
17%, lífsnauðsynleg ensím sem
gera næringarefni aðgengileg fyrir
plöntur höfðu einnig minnkað
mikið, fosfórsýra hafði minnkað um
26,6% og köfnunarefnishvatar um
22,6 %. Fullyrðingar framleiðenda
erfðabreyttra matvæla þess
eðlis að þau innihaldi meira af
næringarefnum en matvæli ræktuð
með hefðbundnum hætti fá ekki
staðist. Snefilefni s.s. járn, mangan
og sink, getur minnkað allt að
80-90% í erfðabreyttri plöntu m.v.
óerfðabreytta. Skortur á þessum
efnum veikir líkama neytandans
og gerir hann m.a. útsettan fyrir
sjúkdómum og skortseinkennum.
Margföldun á eiturefnanotkun
Virka efnið í Roundup illgresiseyði
heitir glýfosat. Það er ekki ,,bara“
illgresiseyðir. Efnið var í upphafi
með einkaleyfi sem steinefna
klóbindir (chelator) og sem sýklalyf.
Það binst steinefnum/snefilefnum
mjög fastri bindingu og gerir þau
óaðgengileg fyrir plöntur og lífverur
í jarðvegi að nýta sér. Efnið dregur
frá plöntunum næringu og veikir
þær og það er þannig sem það
drepur aðskotaplöntur á akrinum
s.s. illgresi. Árið 2007 var notað í
Bandaríkjunum 184mill.punda af
glýfosat og magnið eykst jafnt og
þétt um allan heim með meiri notkun
erfðabreytts fræs.
Þar sem glýfosat er einnig
öflugt sýklalyf útrýmir það
hagstæðum örverum í jarðvegi, sem
nauðsynlegar eru fyrir plöntuna til að
starfa og framleiða hágæða næringu,
en ýtir undir vöxt sjúkdómsvaldandi
sýkla. Þetta á líka við um örverur í
innyflum þess sem neytir efnisins
með plöntunni. Leyfar glýfosat í
fæðu nægja til þess að framkalla
slíka virkni. Rannsóknir hafa sýnt
að Roundup er eitrað fyrir erfðaefni
(DNA) manna, jafnvel þó það sé
þynnt út margfalt það sem leyft
er að nota til úðunar í landbúnaði.
Glýfosat sem plantan tekur upp,
gegnsýrir hana alla og það er ekki
hægt að þvo það af – því það er inni
í vefjum jurtarinnar. Á undanförnum
árum hefur magn leyfilegs glýfosats í
erfðabreyttri uppskeru verið hækkað,
sums staðar mörg hundrað falt m.v.
það sem áður var leyft. Fyrir því
virðist engin önnur ástæða en sú
að það er verið að aðlaga reglurnar
að því aukna magni sem nú er úðað
á matjurtaakra með erfðabreyttum
plöntum og finnst þ.a.l. í uppskerunni
– ekkert af þessari uppskeru mætti
nota til fóðurs eða manneldis,
ef ,,gömlu” viðmiðin væru enn
í gildi. Á sama tíma eru að koma
fram upplýsingar um að hættan af
notkun glýfosats hafi verið stórlega
vanmetin og að það sé engu betra –
jafnvel verra en Agent Orange.
Á undanförnum árum hafa
býflugur horfið á stórum svæðum
í Bandaríkjunum og Evrópu.
Grunur beinist að skordýraeitri
framleiddu af erfðabreyttum plöntum
, eiturefnanotkun í landbúnaði og
samspili áhrifa þessa á mótstöðu
skordýranna gegn vírusum, sveppum
og bakteríum. Býflugur sjá um að
frjóvga stóran hluta uppskeru bænda
og villtra plantna.
Ástæðulaus áhætta á kostnað
komandi kynslóða
Dr. Don Huber er einn af leiðandi
sérfræðingum í heiminum i dag
hvað varðar erfðabreyttar lífverur.
Hann er alþjóðlega viðurkenndur
vísindamaður og hefur starfað sem
prófessor í plöntusjúkdómum við
Purdue-háskólann undanfarin 35
ár. Rannsóknir hans og niðurstöður
undanfarinna áratuga hafa leitt
til þess að hann er afar harður
andstæðingur erfðabreyttra lífvera
og erfðatæknilega meðhöndlaðrar
fæðu (GE,) sem og notkunar
illgresiseitursins Roundup í
landbúnaði. Hann segir orðrétt:
„Þegar sagnfræðingar framtíðar-
innar munu skrifa um okkar tíma
munu þeir ekki skrifa um þau
tonn eituefna sem við notuðum
eða notuðum ekki. Þegar kemur
að glýfosati munu þeir skrifa um
það hversu fús við vorum að fórna
börnum okkar og tefla tilvist sjálfra
okkar í tvísýnu, með því að hætta
sjálfbærni landbúnaðar; allt byggðu
á fölskum loforðum og gölluðum
vísindum – í þeim tilgangi einum að
auka gróða fyrirtækja – án nokkurs
næringarlegs gildis.“
Sjá áhugavert viðtal við Dr.Don
Huber prófessor í plöntusjúkdómum:
http://articles.mercola.com/sites/
art icles/archive/2013/10/06/
dr-huber-gmo-foods.aspx
Heimildir ásamt fyrri greinum:
http://erfdabreytt.wordpress.com/
Sigríður Sævars
Margt hefur áunnist í
úrgangsmálum á Norðurlandi
undanfarin ár, urðunarstöðum
hefur fækkað og þeir eru betri
en áður og þá hafa verið stigin
stór skref í átt að meiri nýtingu
margs konar aukaafurða. Þá
hefur það sorpmagn sem fer til
urðunar minnkað ár frá ári sem
kemur til af því að almenningur
tekur þátt í flokkun þess og
kemur endurvinnanlegu efni
frá sér á þar til gerðar stöðvar.
Þetta er meðal þess sem fram
kom á málþingi um úrgangsmál
á Norðurlandi en það var haldið
á Akureyri nýverið. Þingið var
haldið á vegum verkefnastjórnar
sem vinnur að gerð svæðisáætlunar
um meðhöndlun úrgangs á
Norðurlandi, en meðhöndlun
úrgangs telst til grunnþjónustu í
nútímasamfélagi. Svæðið sem um
ræðir nær frá Húnaþingi vestra og
allt austur yfir til Norðurþings.
Fjölbreytt erindi
Yfir 60 manns sátu málþingið
og mættu bæði starfsfólk og
sveitarstjórnarfólk frá öllum
þeim 18 sveitarfélögum sem
svæðisáætlunin nær yfir. Einnig
mættu ýmsir aðrir sem tengjast
úrgangsmálum á einn eða annan
hátt. Sigurður Ingi Jóhannsson
umhverfis- og auðlindaráðherra
var með á fundinum, flutti ávarp og
svaraði fyrirspurnum. Fjölbreytt
erindi voru flutt um ýmislegt
sem tengist úrgangsmálum og
var jarðgerðarstöð Moltu ehf.
heimsótt.
Samkvæmt lögum nr. 55/2003
um meðhöndlun úrgangs eiga
sveitarstjórnir að staðfesta
áætlun, fyrir viðkomandi svæði,
sem byggir á markmiðum
landsáætlunar. Megin viðfangsefni
áætlunarinnar er að þar eiga að
koma fram upplýsingar um
stöðu úrgangsmála á viðkomandi
svæði og aðgerðir til að bæta
endurnotkun, endurnýtingu og
förgun. Þar skal einnig koma
fram hvernig sveitarfélag hyggst
ná markmiðum landsáætlunar.
Ábyrg meðhöndlun
á lífrænum úrgangi
Sameiginleg svæðisáætlun
fyrir allt þetta svæði er skref
í átt að aukinni samvinnu
sveitarfélaga í úrgangsstjórnun.
Markmiðið er að setja fram
heildarstefnu í málaflokknum
fyrir allt Norðurland. Stærstu
verkefnin á næstu árum eru m.a.
ábyrg meðhöndlun á lífrænum
úrgangi, að finna ásættanleg
úrræði fyrir þann úrgang sem
lögum samkvæmt á að fara í
brennslu. Tryggja þarf rekstur
þeirra meðhöndlunarúrræða sem
nú þegar eru til staðar og auka
samvinnu um þær lausnir sem til
eru innan svæðisins.
Fram kom á málþinginu
að útgjöld sveitarfélaganna á
svæðinu til hreinlætismála er
rúmur einn milljarðar króna á ári.
Tekjur málaflokksins eru um 500
milljónir. Sveitarfélögin innheimta
þó ekki öll þjónustugjöld, t.d. ekki
þrjú þau fámennustu. Innheimta
sveitarfélaganna er yfirleitt á
bilinu frá rúmlega 25 þúsund
krónum og upp í 46.500 krónur
á heimili árið 2013. /MÞÞ
Meðhöndlun úrgangs er grunnþjónusta:
Margt áunnist á liðnum árum
Margt hefur færst til betri vegar varðandi meðhöndlun úrgangs á
norðanverðu landinu undanfarin ár en alltaf má gera betur.
Bý ugur: http://obrag.org/ p 33 3
Erfðabreytt skepnufóður og matur
– er það málið ? – 3.hluti
Svín: http://news.163. om/12/0 13/
16/81D9LD9P00014AEE.html