Bændablaðið - 16.04.2014, Síða 59
59Bændablaðið | Miðvikudagur 16. apríl 2014
Hafrún Katla er 7 ára stelpa
í Neskaupstað sem æfir blak
og skíði. Hún ætlar að verða
björgunarsveitarkona þegar hún
verður stór og vinna í Egilsbúð.
Síðasta sumar safnaði hún sér fyrir
trampólíni og hoppaði á því út í
eitt.
Nafn: Hafrún Katla Aradóttir.
Aldur: 7 ára.
Stjörnumerki: Fiskur.
Búseta: Í Neskaupstað.
Skóli: Nesskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Að leika með kaplakubba
og pinnabretti.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hundar.
Uppáhaldsmatur: Makka rónu-
grautur.
Uppáhaldshljómsveit: Mugison.
Uppáhaldskvikmynd: Fólkið í
blokkinni.
Fyrsta minningin þín? Þegar ég var
í útilegu með mömmu og pabba og
vinum okkar ég sat í stólnum mínum
og með annan stól undir fótunum og
ég var að drekka svala og var með
Hello Kitty derhúfuna mína. Ég var
svona tveggja eða þriggja ára.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Ég æfi blak með Þrótti
Nes og skíði.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Björgunarsveitarkona
og vinna í Egilsbúð.
Hvað er það klikkaðasta sem þú
hefur gert? Að veiða risastóran
fisk úti á firði á græna bátnum með
pabba.
Hvað er það leiðinlegasta sem þú
hefur gert? Bíða í bíl.
Gerðir þú eitthvað sérstakt í
sumar? Ég safnaði pening og keypti
trampólín og hoppaði mikið á því.
PRJÓNAHORNIÐ
Efni: Lyppa ljósgul. 2 dokkur.
Heklunál nr 3
Karfan er hekluð frá botni og upp í hring.
Botninn ræður stærðinni á körfunni svo að
þið getið haft hana í þeirri stærð sem þið
kjósið.
Hún er svo stífuð með sykurstífelsi helmingur
heitt vatn og helmingur sykur sem er leystur
vel upp, karfan gegnbleytt og strekkt utan
um skál á hvolfi og látin þorna vel. Skálin
sem notuð er ræður lögun körfunnar.
Skammstafanir:
• ll > loftlykkjur
• st > stuðlar
• fl > fastalykkjur
Karfa
1. Fitjið upp 3 ll og tengið í hring.
2. Heklið 6 fl í hringinn, tengið.
3. Heklið nú 2 fl í hverja fl.tengið
4. Heklið 1 fl og 2 fl í aðra hverja fl.tengið.
5.Heklið 2 fl í hverja fl tengið.
6. Heklið fl í fl allan hringinn, tengið.
7. Heklið 1 fl og 2 fl í aðra hverna fl tengið.
8. Heklið fl í fl allan hringinn, tengið.
9. 1 fl og 2 fl í aðra hverja fl, tengið.
10-13.fl í fl allan hringinn, tengið.
14. 3fl, 2 fl í sömu fl allan hringinn, tengið.
15-17.fl í fl allan hringinn, tengið.
18. Nú eru heklaðir stuðlar allan hringinn
en aðeins tekið í innri
hluta lykkjunnar þannig að myndist kantur.
Heklaðar 9 umferðir stuðlar.
Pífa:
1 fl, * 8 ll 1 fl í 5 lykkju * endurtekið *-*
allan hringinn.
Snúið við og heklið í hina áttina þannig að
pífan snúi rétt.
Hekla 15 stuðla utan um loftlykkjubogana
allan hringinn.
3 ll stingið heklunálinni gegnum fyrstu ll og
heklið 1 fl þannig að myndist takki.
1 fl í 3ja stuðul endurtakið það eiga að vera
5 takkar á hverjum boga.
Gangið frá endum og stífið.
Eggjabelti
Við notum litríka afganga úr prjónakörfunni
í beltin.
Prjónar nr 4, Gott að nota stutta prjóna.
Fitjið upp 28 l á 4 prjóna.
Tengið í hring.
1 umferð slétt.
2 l slétt saman 4 sl slegið upp á prjóninn
1 l sl slegið upp á 4 l sl, 2 l sl saman 1 l sl,
endurtekið.
Slétt umferð.
2 l sl saman 3 l sl slegið uppá 3 l sl slegið
uppá 3 l sl 2 l sl saman 1 l slétt endurtekið.
Slétt umferð.
2 l sl saman 2 sl slegið uppá 2 l sl saman
slegið uppá 1 l sl slegið uppá 2 sl saman
slegið uppá 2 sl 2 sl saman 1 sl.
Slétt umferð.
2 sl saman slegið uppá 2 sl saman slegið
uppá 2sl saman slegið uppá
1 sl endurtekið allan hringinn.
1 sl umferð.
Fellt af.
Hitt beltið er bara 1 sl og 1br 12 umferðir.
Gleðilega páska.
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Vill verða björgunarsveitarkona
Páskakarfa
Sudoku
Galdurinn við Sudoku-
þrautirnar er að setja réttar
tölur frá 1-9 í eyðurn ar.
Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og
lóð rétt og heldur ekki innan
hvers reits sem afmarkaður
er af sverari lín um.
Þrautirnar eru miserfiðar,
sú sem er lengst til vinstri er
léttust og sú til hægri þyngst
en sú í miðjunni þar á milli.
Létt ÞungMiðlungs
1 4 3
6 2 9
6 5 3
5 1 8 6
8 9
1 7
9 2 4
8 3 4 1
6 3 2
3 1 4
1
2 6 9 1
3
8 7
2 5 1
4 7 5 6
3 9 7
4 9 5
8 2 1
7 8
9 2 3
6 2
7 4 5
5 7
2 6 5
6 5 4
Prjónablaðið Björk nýkomið út
– fæst um land allt–