Fréttablaðið - 25.04.2016, Blaðsíða 11
Húsfélagaþjónustan ehf • Auðbrekku 16 • 200 Kópavogi • sími 555 6855 • gsm 863 8855 • husfelag@husfelag.is • www. husfelag.is
Hreinsum glugga og klæðningar
á öllum stærðum húsa
Vanir menn - Vönduð vinnubrögð.
Sími 555 6855
www.husfelag.is
husfelag@husfelag.is
Brimborg og Citroën áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyrirvara. Útbúnaður getur verið frábrugðinn mynd í auglýsingu.
Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16
Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050
citroen.is
CITROËN SENDIBÍLAR
HAGKVÆMIR, ÁREIÐANLEGIR OG Á GÓÐU VERÐI
Citroën Nemo
2.550.000 kr. m. VSK
2.056.452 kr. án VSK
Citroën Berlingo
2.850.000 kr. m. VSK
2.298.387 kr. án VSK
Citroën Jumpy Langur
4.490.000 kr. m. VSK
3.620.967 kr. án VSK
GERÐU VINNUNA
AUÐVELDARI
Citroen_3Sendibilar_auðveldari_5x19_20160418_END.indd 1 18.4.2016 15:52:24
Ég fæ stundum tölvupóst frá alls konar náungum frá löndum þar sem vandræða
ástand hefur ríkt. Þeir eiga erindi
við minn verri mann. Þeir eru að
biðja mig um að gera bankareikn
ing minn að nokkurs konar aflandi
fyrir fé sem þeir vilja koma undan
af einhverjum ástæðum sem eru
stundum tilgreindar í þessum
bréfum með löngum raunasögum
og afar ótrúverðugum – gegn
myndarlegri þóknun að sjálfsögðu.
Þeir eru að biðja mig um að vera
þeirra skattaskjól. Þeir eru að
bjóða mér hlutdeild í þýfi.
Lágkúra group
Ég þarf bara fyrst að senda þeim
svolítið staðfestingargjald, og
öll lykilorðin að öllum mínum
reikningum. Þetta eru svindlarar
sem reyna að plata mig með því
að höfða til míns verri manns.
Væri þetta satt – sem það er ekki
– væru þeir að bjóða mér hlut
deild í peningum sem ella færu í
uppbyggingu í heimalandi þeirra –
spítala, skóla, vegi, menntun. Þetta
eru náungar sem sjálfsagt eru ekki
hátt skrifaðir í stigveldi viðskipta
fræðinnar á alþjóðavísu – en ég
kem ekki auga á muninn á þeim
og svo þeim íslensku „skattasér
fræðingum“ sem hjálpa íslenskum
auðmönnum við að útbúa skatta
skjól í fjarlægum deildum jarðar,
með það sjónarmið að leiðarljósi
að það sem sé „löglegt“ sé þar með
siðlegt, eins og einn þeirra komst
að orði í sjónvarpinu.
Þetta er á sama siðferðisstigi.
Lítilmótlegar brellur og fjárplógs
starfsemi. Samt er það augljóst
að upp úr aldamótum hefur ekki
verið maður með mönnum hér
á landi í íslenskri auðstétt sem
ekki geymdi eignir sínar í slíkum
skúmaskotum, með flóknu felu
neti. Þetta var menningarástand,
tákn um auðlegð og ríkidæmi,
svona eins og bótox, alveg burtséð
frá því hvernig það liti út. Stöðu
tákn. Til marks um að maður væri
á fyrsta farrými þjóðlífsins.
En í raun og veru lítilsiglt og
lágkúrulegt – fyrst og fremst mjög
sjoppulegt. Það að sérhæfa sig í
aflandsfélagabrellum er sambæri
legt við það í heimi listanna að
sérhæfa sig í þriggjabollatrikkinu
sem gengur út á að bjóða mönnum
að giska á undir hvaða bolla
boltinn sé núna.
Sá sem uppvís verður að því að
geyma fé sitt utan við samfélag sitt
hefur þar með fyrirgert samfélags
legri sæmd sinni. Og mun ekki
endurheimta hana með frekju og
ofstopa heldur auðmýkt, raunveru
legri iðrun og yfirbót. Þetta var
nefnilega aldrei spurning um illt
innræti einstakra persóna heldur
var þetta útbreiddara en svo; þetta
var stefna sem sett var af stjórn
málamönnum og hugmyndafræð
ingum og fylgt fram af harðfylgi.
Þetta háttalag verður til í félags
legu tómarúmi utan við sjálft
þjóðlífið sem myndast hefur í við
skipta og lagadeildum háskól
anna, þar sem engin manneskja
virðist hafa frétt af siðferðilegum
álitamálum (löglegt = siðlegt).
Þetta verður til í andrúmslofti
þar sem manngildið er algjörlega
undir því komið hversu mikil aura
ráð viðkomandi hefur, peningaleg
umsvif, og sýnilegt ríkidæmi – hús,
sumarhús, skíðaskálar, snekkjur,
veiðiár, bílar – gullkálfaátið allt …
en alveg hefur gleymst að hugsa
um hvernig þetta myndi allt líta út
í augum þjóðarinnar sem borgaði
í raun brúsann með verri kjörum,
innlánum sínum, okurvöxtum
á útlánum, hærra matarverði,
tryggingagjöldum: já, krónu
kjörum. Það sem vinir mínir í VG
og Samfó virtust aldrei almenni
lega skilja í síðustu ríkisstjórn var
að Icesavemálið snerist um þetta:
að borga ekki skuldir óreiðumann
anna, en láta þá sjálfa gera það
úr sínum leynireikningum, sem
smám saman eru nú að koma í ljós,
nú síðast á vegum eigenda þessa
blaðs.
Við gerum samt greinarmun
á fótboltamanninum Messi sem
fer um löndin og þénar fúlgur
á tásnilli sinni – og svo aftur til
dæmis íslensku forsætisráðherra
hjónunum sem fengu mikið af
auði sínum af því að bílaumboð
var selt fyrir milljarða sem lánað
var fyrir úr Landsbankanum, án
þess að lánið væri nokkru sinni
greitt – eignarhaldsfélag látið fara
á hausinn og allt afskrifað, en
peningarnir komnir til Tortóla;
verðmæti orðin til í viðskiptum
við íslenskan almenning geymd á
leynireikningum, sem enn hvílir
leynd yfir.
Leynireikningsskapur
Þegar fólk starfar meira og minna
erlendis, aflar tekna sinna erlendis
og býr erlendis, er kannski ekki
óeðlilegt að það geymi peningana
sína erlendis, hvað sem líður
tengslum við land og þjóð. Það er
líka ánægjulegt að fólk sé ríkt, hafi
það unnið til þess en ekki bara
fæðst til þess eða sölsað undir sig
almannaeigur, eins og svo margir
íslenskir umsvifamenn. Og skiljan
legt að fólk sem efnast af raunveru
legum verkum sínum án þess að
hafa vit á peningum, fái hjálp frá
fagmönnum við að ávaxta þetta fé
á skynsamlegan og löglegan máta.
Til dæmis listamenn og íþrótta
menn.
Það er reyndar aldrei gott að eiga
aflandsreikninga, vont afspurnar
og bara vont yfirleitt, en það er
samt hitt fólkið sem við áfellumst
og viljum að sé dregið fram í dags
ljósið og látið standa (leyni)reikn
ingssskap gjörða sinna svo að því
haldist ekki lengur uppi óþokka
brögð sín gagnvart íslensku sam
Í aflöndum er ekkert skjól
Guðmundur
Andri
Thorsson
rithöfundur
Í dag
félagi. Íslensku innrásarvíkingarnir
sem tæmdu hér gömul og gróin
fyrirtæki, bankastofnanir, trygg
ingafélög, byggingarvöruverslanir,
samgöngufyrirtæki – alls konar
þjóðþrifafyrirtæki – með sýndar
viðskiptum sýndarfélaga sem fóru
í sýndargjaldþrot – en auðurinn
streymdi til leynireikninga og var
meðal annars notaður til að kaupa
á slikk kröfur í gjaldþrota íslenska
banka ...
Það er því frumkrafa að við fáum
að vita hvaða fólk stendur á bak
við félögin sem nú stendur til að
gera upp við, áður en lengra er
haldið; hvort þar eigi menn unn
vörpum í samningaviðræðum við
sinn verri mann.
Sá sem uppvís verður að
því að geyma fé sitt utan
við samfélag sitt hefur þar
með fyrirgert samfélags-
legri sæmd sinni. Og mun
ekki endurheimta hana með
frekju og ofstopa heldur auð-
mýkt, raunverulegri iðrun og
yfirbót.
s k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 11M Á n u d a g u R 2 5 . a p R Í L 2 0 1 6
2
5
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
3
3
-4
D
4
4
1
9
3
3
-4
C
0
8
1
9
3
3
-4
A
C
C
1
9
3
3
-4
9
9
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
6
4
s
_
2
4
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K