Fréttablaðið - 25.04.2016, Síða 43
Það er mikilvægt
að einkageirinn
haldi áfram að fóstra
umhverfið, t.d. með
viðskiptahröðlunum
(Startup Reykjavik,
Startup Energy, Startup
Tourism) en þar fá ung
fyrirtæki raunverulegt
tækifæri til að verða
lífvænleg. Icelandic
Startups hjálpar fyrir-
tækjum að sækja inn á
alþjóðaumhverfið.
Klasarnir í jarðvarma og
ferðaþjónustu tengja
ung fyrirtæki við þau
þroskaðri.
Einar Gunnar Guðmundsson
„Orkugeirinn snýst ekki bara um að selja rafmagn og hita, heldur að nýta tækifærin til að stuðla að uppbyggingu í fjölbreytileika,” segir Einar Gunnar Guðmundsson, forsvars-
maður nýsköpunar hjá Arion banka. MYND/ANTON BRINK
tekist að vinna saman. Það sem
ríkið hefur gert vel er að búa til
sífellt betri umgjörð fyrir frum-
kvöðla og fjárfesta, s.s. með end-
urgreiðslu á þróunarkostnaði,
skattaafslætti fyrir fjárfesta sem
leggja fyrirtækjum til fjármagn,
skattaafslætti fyrir erlenda sér-
fræðinga og fleira. Ég vil svo
nefna Tækniþróunarsjóð sérstak-
lega, sem er afskaplega mikilvæg-
ur fyrir íslenskt tækni- og frum-
kvöðlaumhverfi. Þar er ríkið í mik-
ilvægu hlutverki.“
Aðspurður um dæmi um vel
heppnaða nýsköpun í orkugeiran-
um nefnir hann fyrst fyrirtækið
Keynatura en það stefnir á fram-
leiðslu andoxunarefnisins as-
taxanthin úr þörungum. „Þar er
verið að nýta jarðvarma og og yl-
ræktarþekkingu í bland við líf-
tækni. Einnig má nefna DT Equip-
ment, en það hefur þróað tækni
til að efnagreina ál í álkerjum
í rauntíma. Svo finnst mér afar
áhugavert hvernig orkuiðnaður-
inn og ferðaþjónustan tengjast sí-
fellt meir. Aðsókn í Hellisheiðar-
virkjun og Ljósafossvirkjun er
dæmi þess. Við munum sjá fjölda
nýrra innviða- og þjónustufyrir-
tækja sækja meira í samþættingu
þessara tveggja ólíku en skyldu
greina.“
Bjartsýnn á framtíðina
Einar horfir björtum augum til
næstu ára, ekki síst þar sem allur
fjölbreytileiki og aðgengi að þjón-
ustu fyrir ung fyrirtæki hefur
batnað mikið undanfarin ár. „Það
er mikilvægt að einkageirinn haldi
áfram að fóstra umhverfið, t.d.
með viðskiptahröðlunum (Startup
Reykjavik, Startup Energy, Start-
up Tourism) en þar fá ung fyrir-
tæki raunverulegt tækifæri til að
verða lífvænleg. Icelandic Start-
ups hjálpar fyrirtækjum að sækja
inn á alþjóðaumhverfið. Klas-
arnir í jarðvarma og ferðaþjón-
ustu tengja ung fyrirtæki við þau
þroskaðri. Sjávarklasinn á Grand-
anum og fleiri bjóða skrifstofuað-
stöðu fyrir fyrirtæki úr ólíkum
geirum. Þar ægir öllu saman og
ég tel víst að úr slíkum suðupotti
spretti upp ný verkefni og aðgengi
fyrirtækja að fjármagni.“
Allt eru þetta einkaaðilar, að
sögn Einars Gunnars, sem sjá
sér hag í því að vinna enn meira
og nánara með umhverfinu og
styrkja það um leið. „Inni í öllum
þessum fyrirtækjum eru ein-
staklingar sem skilja virðið í því
að veita þennan stuðning. Ég get
tekið minn vinnustað, Arion banka,
sem gott dæmi, en í lok ársins 2016
verður bankinn búinn að fjárfesta í
yfir 70 sprotafyrirtækjum í gegn-
um Startup Reykjavik og Startup
Energy. Slíkt gerist ekki af sjálfu
sér. Það þarf getu, vilja og skilning
til að taka þannig verkefni að sér.“
Þegar kemur að umræðu um ný-
sköpun í orkuiðnaði er ekki hægt
að sleppa því að nefna aðgengi
að fjármagni. „Á síðasta ári voru
stofnaðir þrír nýir framtakssjóðir
á Íslandi, Eyrir sprotar, Frumtak
2 og Brunnur vaxtasjóður. Allir
sjóðirnir hafa nú þegar byrjað að
fjárfesta. Í heildina eru þetta rúm-
lega 11 milljarðar sem þeir munu
fjárfesta á árunum 2015-2018. Það
þarf ekki að tíunda hvaða áhrif
þetta hefur.“
Ríkisvaldið þarf, að sögn Ein-
ars Gunnars, að halda áfram á
núverandi braut, með því að ein-
falda regluverk og gera það að-
gengilegra. „Mér sýnist vaxandi
skilningur á því að íslensk fyrir-
tæki eru ekki bara í samkeppni
við hvert annað, heldur er Ísland í
samkeppni við önnur lönd um hæfa
starfskrafta og eðlilega en vel
samkeppnishæfa skattalega hvata
fyrir frumkvöðla og fjárfesta. Ein-
falt og skilvirkt kerfi fyrir kaup-
rétti starfsfólks sem koma inn á
fyrstu stigum reksturs þarf líka
að vera samkeppnishæft við út-
lönd. Aðalatriðið er þó að stöðug-
leiki í reglum og lögum sé til stað-
ar. Hvikar breytingar fæla frá.
Heilt yfir er ég jákvæður gagnvart
þeirri þróun sem hefur átt sér stað.
Það er margt ógert, en það er sýni-
legur skilningur alls staðar í sam-
félaginu á mikilvægi nýsköpunar
óháð geirum.“
ÍSlENSKI JARðvARMAKlASINN Kynningarblað Kynningarblað ÍSlENSKI JARðvARMAKlASINN
25. apríl 2016 13
2
5
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
3
3
-5
7
2
4
1
9
3
3
-5
5
E
8
1
9
3
3
-5
4
A
C
1
9
3
3
-5
3
7
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
2
4
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K