Fréttablaðið - 25.04.2016, Page 14

Fréttablaðið - 25.04.2016, Page 14
„Hugmyndin að baki Sölku er að notagildið og útlitið haldist í hendur, að hlutirnir virki vel og án þess að við verðum þreytt á forminu,“ segir Sigríður Hjalt- dal Pálsdóttir keramikhönnuður en fyrsta vörulína hennar, Salka, er tíu ára í ár. Sigríður hannar undir heit- inu byBiBi. Línan Salka saman- stendur af stílhreinum bollapör- um, diskum og skálum og segir Sigríður einfaldleikann gegnum- gangandi í hönnun sinni. Hún hafi valið svartan og hvítan lit á lín- una svo hlutirnir gangi við annað sem fólk eigi í skápun- um heima. Þá sé notagildi hvers hlutar marg- þætt. „Hver hlutur hefur ólík hlutverk, á kaffiboll- unum er til dæmis lok. Það má því vel nota þá undir eitthvað annað en drykki, geyma eitthvað í þeim og nota þá þess vegna í öðrum herbergj- um en eldhúsinu, inni á baði eða á skrifborðinu. Notandinn velur hlutnum hlutverk. Það eru engir hankar eða handföng á hlutun- um. Þeir fara vel í hendi og auð- velt fyrir bæði litlar og stórar hendur að handleika þá,“ útskýr- ir Sigríður. Ílentist Í Barcelona Sigríður lærði í Myndlista- og handíðaskóla Íslands á sínum tíma og fór í skiptinám til Barce- lona sem vatt upp á sig. „Ég klár- aði iðnhönnun í Barcelona og bjó svo þar í tíu ár, var þar með vinnustofu og til að byrja með var Salka framleidd í verksmiðju þar. Nú er línan framleidd í Portú- gal. Ég flutti svo heim til að leyfa strákunum mínum að fá Ísland í æð. Ég kenni núna í Myndlistar- skóla Kópavogs og hef verið að sýna vörurnar mína með North Limited, bæði erlendis og hér heima. Nú síðast á Hönnunar- Mars,“ segir Sigríður en á Hönn- unarMars sýndi hún diska úr ís- lensku hrauni og úr marmara sem hún kallar Stefni, auk snaga og spegla. Ætlunin er að bæta hægt og rólega við vörulínu byBiBi. Hvernig gekk á Hönnunar- Mars? „Sýningin gekk mjög vel. HönnunarMars er frábær vett- vangur sem verður bara þétt- ari og kröftugri með hverju ári. Hönnunarmiðstöð er að vinna frábært starf. Það er því aldrei spurning um annað en að taka þátt þó við séum að sýna erlend- is líka. Í haust sýnum við North Limited á Design Festival í Lond- on. Það er mikill stuðningur í því að sýna saman og skemmtileg- ur félagsskapur líka. Við erum að þróa meira út úr samstarfinu, mögulega sameiginlega vöru. Það eru spennandi tímar fram undan.“ einfaldleikinn allsráðandi Sigríður Hjaltdal Pálsdóttir keramikhönnuður hannar undir heitinu byBiBi. Hún sýndi nýjar vörur á HönnunarMars, snaga og spegla, en fyrsta vörulína hennar á tíu ára afmæli í ár. Einfaldleikinn ræður ríkjum í hönnun Sigríðar. Vörulínan Salka gengur með hverju sem er. mynd/Sigríður PálSdóttir Sigríður Hjaltdal Pálsdóttir keramik- hönnuður hannar undir merkinu byBiBi. Hennar fyrsta vörulína er tíu ára í ár. mynd/StEfán diskar úr hrauni og marmara fengu heitið Stefnir. á liðnum Hönnunarmars sýndi Sigríður snaga og spegla. Segðu halló FRÍSKANDI LÍFRÆNT GOS FULLKOMNAR DAGINN www.wholeearthfoods.com Yfirfullt af náttúrulegum gæðum Frískandi bragð - No nonsense Fæst í heilsuvörubúðum og öllum helstu matvöruverslunum 2 5 . a p r í l 2 0 1 6 M Á N U D a G U r2 F ó l k ∙ k y N N i N G a r b l a ð ∙ H e i M i l i 2 5 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :3 0 F B 0 6 4 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 3 3 -3 4 9 4 1 9 3 3 -3 3 5 8 1 9 3 3 -3 2 1 C 1 9 3 3 -3 0 E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 6 4 s _ 2 4 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.