Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.04.2016, Qupperneq 19

Fréttablaðið - 25.04.2016, Qupperneq 19
 Þar ber fyrst og fremst að nefna klínískar rannsóknir á lækningamætti Bláa lónsins á psoriasis sem unnar hafa verið um áratugaskeið, sem og rannsóknir á virkum inni- haldsefnum húðvaranna á öldrun húðarinnar, sem unnar hafa verið í sam- starfi við erlent rann- sóknarteymi sem sér- hæfir sig á því sviði. Ása Brynjólfsdóttir Bláa lónið er í Auðlindagarðinum í Svartsengi og nýtir fyrirtæk- ið alla auðlindastrauma frá jarð- varmaveri HS Orku. Gestir Bláa lónsins njóta jákvæðra eiginleika jarðsjávarins og er hvíti kísillinn ómissandi hluti upplifunarinnar. Ása Brynjólfsdóttir, rannsókn- ar- og þróunarstjóri Bláa lónsins, segir að frekari nýting auðlinda- straumanna felist í því að heit gufa sé nýtt við framleiðslu á salti og útblástur frá orkuverinu við fram- leiðslu á þörungum Bláa lónsins. „Fyrirtækið nýtir einnig hina hefðbundnu strauma, heitt og kalt vatn og rafmagn. Þá eru virk efni jarðsjávarins, kísill, sölt og þör- ungar, lykilefni í húðvörum Bláa lónsins,“ segir Ása. Blue Lagoon húðvörur Að sögn Ásu byggja húðvörur Bláa lónsins á jarðhitavökvanum og virkum efnum hans. „Í hrá- efnavinnslu Bláa lónsins fer fram vinnsla á virkum efnum jarðsjáv- arins: kísil, söltum og þörungum til nota í húð- og heilsuvörur fyrir- tækisins. Vinnsluferlar eru sjálf- bærir og umhverfisvænir,“ segir hún. Útblæstri breytt í háverðsafurð Bláa lónið er leiðandi hér á landi í ræktun smáþörunga, en fyrirtæk- ið hefur ræktað þörunga í 20 ár. Þörungarnir eru ræktaðir í þar til gerðum ljóstillífunarbúnaði við stýrðar aðstæður. „Við hjá Bláa lón- inu stigum mikilvægt skref þegar við hófum að nýta CO2-ríkt jarð- varmagas frá jarðvarmaveri HS Orku við ræktun þörunga. Að um- breyta útblæstri jarðvarmavers í háverðsafurðir, líkt og gert er hér á iðnaðarskala, er einstakt á heims- vísu,“ segir Ása. Öflugt vísindastarf Bláa lónið hefur allt frá stofnun fyrirtækisins lagt ríka áherslu á rannsóknir á vistkerfi lónsins og virkni þeirra náttúrulegu efna sem þar er að finna. „Þar ber fyrst og fremst að nefna klínísk- ar rannsóknir á lækningamætti Bláa lónsins á psoriasis sem unnar hafa verið um áratugaskeið, sem og rannsóknir á virkum innihalds- efnum húðvaranna á öldrun húðar- innar, sem unnar hafa verið í sam- starfi við erlent rannsóknarteymi sem sérhæfir sig á því sviði,“ segir Ása en Bláa lónið hefur m.a. gert rannsóknir í samstarfi við Jean Krutmann prófessor, einn fremsta sérfræðing heims á sviði öldrunar húðarinnar. „Áralöng þekkingar- uppbygging styrkir áframhaldandi nýsköpun og vöruþróun innan Bláa lónsins og gerir fyrirtækið sam- keppnishæfara.“ Einkaleyfi Bláa lónið hefur fengið bæði evr- ópskt og bandarískt einkaleyfi á snyrtivörum og lyfjum sem byggja á sérstökum blágrænþörungum. Einkaleyfin fela í sér viðurkenn- ingu á þróunarstarfi Bláa lónsins og nýnæmi og uppfinningagildi varanna. Bláa lónið – fjölnýting jarðvarmans Bláa lónið er einstakt dæmi um fjölnýtingu og sjálfbæra nýtingu jarðvarmans, og jafnframt gott dæmi um það hvernig vinna má með náttúruauðlindir til verðmætasköpunar. National Geographic valdi Bláa lónið sem eitt af 25 undrum veraldar. Ása Brynjólfsdóttir, rannsóknar- og þróunarstjóri Bláa lónsins, segir gesti lónsins njóta jákvæðra eiginleika jarðvarmans. Nýtt verkefni á Montserrat Jarðboranir hf. skrifuðu í byrjun apríl undir samning um borun á eyjunni Montserrat í Karíbahafi. Þetta er þriðja jarðhitaholan sem boruð verður á svæðinu en Jarð- boranir boruðu fyrstu tvær hol- urnar árið 2013. Verkefnið felst í borun á 2.700 metra djúpri holu og fer það eftir afköstum holunn- ar hvort hún verður notuð sem niðurrennslishola eða vinnslu- hola. Það er afar ánægjulegt fyrir Jarðboranir að hefja aftur starf- semi á Montserrat og vera þátt- takandi í að gera eyjuna sjálf- bæra í orkuframleiðslu með umhverfisvænum kosti sem jarð- hitinn er. Í dag er öll orka á eyj- unni framleidd með innfluttri olíu sem keyrð er á dísilrafstöðv- um. Áætlað er að borun hefjist í ágúst 2016, en undirbúningur er nú þegar í fullum gangi Jarðboranir skrifuðu í byrjun árs undir samning við Lands- virkjun um borun á 10 jarð- hitaholum á Þeistareykjum og í Kröflu. Verið er að flytja borinn Óðin til Íslands frá Nýja-Sjálandi til að vinna við þetta viðamikla verkefni. Að auki er borinn Þór að hefja verkefni fyrir Orku nátt- úrunnar í apríl og mun í fram- haldinu bora fyrir HS Orku hf. síðar á árinu. Níkaragva og Filippseyjar Borinn Týr hefur frá því í sept- ember 2015 unnið við fram- kvæmd samnings fyrir fyrirtæk- ið Polaris í Níkaragva um borun á tveimur jarðhitaholum og við- gerð á fjórum holum þar í landi. Jarðboranir hafa einnig verið með verkefni á Filippseyjum sem er nýlokið en von er á áframhald- andi verkefnum þar í landi. Jarðboranir hf. í verkefnum víða um heim Jarðboranir taka þátt í ýmsum verkefnum bæði hér heima og erlendis. Þar á meðal í nýju verkefni á Montserrat. Jarðboranir skrifuðu í byrjun árs undir samning við Landsvirkjun um borun á 10 jarðhitaholum á Þeistareykjum og í Kröflu. Kynningarblað ísLensKi JarðvarmaKLasinn 25. apríl 2016 5 2 5 -0 4 -2 0 1 6 0 4 :3 0 F B 0 6 4 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 3 3 -3 E 7 4 1 9 3 3 -3 D 3 8 1 9 3 3 -3 B F C 1 9 3 3 -3 A C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 6 4 s _ 2 4 _ 4 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.