Fréttablaðið - 25.04.2016, Blaðsíða 42
Tækniframfarir líklegar til að
bylta greininni
„Jarðvarmageirinn er alls ekki
stór í samanburði við aðrar end-
urnýjanlegar orkulindir. Ástæð-
an er fyrst og fremst sú að jarð-
varminn er eingöngu tæknilega
aðgengilegur á völdum stöðum í
heiminum þ. á m. Íslandi,“ segir
Gunnar. „Sem dæmi voru 18 jarð-
varmastöðvar sem framleiða raf-
magn gangsettar í heiminum á
síðasta ári. Samanlagt afl þeirra
er rúmlega 300 megavött, en það
jafngildir afli Hellisheiðarvirkj-
unar, svo dæmi sé tekið.“
Hins vegar er mikil þróun
á tækni og þekkingu sem gæti
valdið mjög hröðum framförum
á næstu áratugum og gert jarð-
varmanýtingu hagkvæma á fleiri
stöðum en raunin er í dag. Ástæða
þessa er tvíþætt, að mati Gunn-
ars; annars vegar hafa mörg ríki
í vesturheimi tekið upp styrktar-
kerfi fyrir endurnýjanlega orku
sem jarðvarminn nýtur góðs af,
og hins vegar nýtur jarðvarma-
leit og -vinnsla tækniframfara
sem eiga upptök sín í olíugeiran-
um og á meðan olíuverð var hátt
á síðustu árum var miklum fjár-
munum varið í tækniþróun.
Fjárfestar úr öðrum greinum
Töluvert er um að fjárfestar
úr öðrum geirum líti til jarð-
varmans sem fjárfestingarkosts
og slíkir aðilar leita til reyndra
ráðgjafa sem geta aðstoðað þá við
að skilja fjárhagslegar áhættur
tengdar jarðvarmaverkefnum.
„Sem dæmi aðstoðaði KPMG ný-
lega evrópskt gasfyrirtæki við
fjárfestingar í jarðvarmaverk-
efnum á Ítalíu og var það fyrsta
fjárfesting þess fyrirtækis í þess-
um geira,“ segir Gunnar. „Þó leit
og vinnsla jarðvarma og gass eigi
marga sameiginlega fleti er þó-
nokkur munur þar á og þá kemur
til okkar kasta að skýra muninn.
KPMG er einnig að vinna fyrir
fjárfestingarsjóði sem hyggjast
fjárfesta í jarðvarmageiranum
og í þeim tilfellum erum við að
þjónusta viðskiptavini sem eru
með mikla og sérhæfða þekk-
ingu á öðrum endurnýjanlegum
orkugjöfum, s.s. vindi og sólar-
orku, en leita til okkar þar sem
þeir gera sér grein fyrir eðlismun
þessara greina og jarðvarmans,“
segir Gunnar.
Íslensk reynsla mikilvæg
„Þekking og reynsla íslenskra
vísindamanna er þekkt og rómuð
víða. Þar sem uppbygging fjár-
málaþekkingar á þessu sviði hjá
KPMG er fremur nýlega tilkomin
í samanburði við tækniþekkingu
Íslendinga þá hjálpar það veru-
lega í okkar markaðssetningu
að geta vísað til reynslu félaga
okkar hér heimafyrir á tækni-
sviðinu. Verkefni okkar eru bæði
sjálf sprottin þar sem fjárfest-
ar leita til íslensku skrifstofunn-
ar beint en einnig þannig að er-
lendar skrifstofur KPMG leita til
þeirrar íslensku fyrir hönd sinna
viðskiptavina,“ heldur Gunnar
áfram.
Erindi Gunnars á ráðstefnunni
Iceland Geothermal Conference
fjallar um nýja nálgun við mat á
fjárhagslegri áhættu jarðvarma-
verkefna. Aðferðin hefur einmitt
verið þróuð í öðrum geirum endur-
nýjanlegrar orku, s.s. vindorku
og sólarorku, og nefnist á ensku
„Decoupled Net Present Value“
eða DNPV og hefur KPMG á Ís-
landi aðlagað hana áhættuþáttum
jarðvarmaverkefna. Segir Gunnar
að aðalkostur hennar sé að mat á
áhættuþáttum sé mun gegnsærra
og auðskiljanlegra en í þeim að-
ferðum sem oftast eru notaðar í
þessum fræðum.
Jarðvarmageirinn er alls ekki stór í saman-
burði við aðrar endurnýjanlegar orkulindir.
Ástæðan er fyrst og fremst sú að jarðvarminn er
eingöngu tæknilega aðgengilegur á völdum stöðum í
heiminum þ. á m. Íslandi.
Gunnar Tryggvason
Hlutverk ríkisins er
að búa til góða innviði og
reyna ekki sjálft að búa
til nýsköpun eða stýra
henni. Frumkraftur
nýsköpunar verður alltaf
á hendi frumkvöðlanna.
Umgjörð, skattaum-
hverfi, réttir hvatar fyrir
frumkvöðla og fjárfesta
skipta þannig gríðarlegu
máli af hálfu ríkisins.
Einar Gunnar Guðmundsson
Gunnar Tryggvason Senior Manager hjá KPMG heldur erindi á Iceland Geothermal Conference um mat á fjárhagslegum
áhættum og tækifærum í jarðvarmaverkefnum. Mynd/STeFÁn
Ör þróun á næstu áratugum
Ráðgjafarsvið KPMG á Íslandi hefur á undanförnum árum markað sér sess sem ráðgjafi fyrir fjárfesta í jarðvarmageiranum á heimsvísu.
Gunnar Tryggvason Senior Manager hjá KPMG heldur erindi á Iceland Geothermal Conference um mat á fjárhagslegum áhættum og
tækifærum í jarðvarmaverkefnum. Á ráðstefnunni segir Gunnar meðal annars frá reynslu KPMG á þessu sviði.
Það er óhætt að segja að mikil ný-
sköpun sé í orkuiðnaði hér á landi
um þessar mundir. Öll orkufyrir-
tækin leggja talsverða áherslu á
nýsköpun og má nefna uppbygg-
ingu á Reykjanesi, Hellisheiði og
Norðurlandi í því samhengi, að
sögn Einars Gunnars Guðmunds-
sonar, forsvarsmanns nýsköpun-
ar hjá Arion banka. „Þar snýst allt
um að tengja saman ólíka geira,
s.s. orku, framleiðslu, ferðaþjón-
ustu og fleiri geira. Virðisaukning
mun eiga sér stað þegar þessi teng-
ing verður til. Orkugeirinn snýst
ekki bara um að selja rafmagn og
hita, heldur að nýta tækifærin til
að stuðla að uppbyggingu í fjöl-
breytileika.“
Þessu til viðbótar er stuðnings-
umhverfið fyrir frumkvöðla á Ís-
landi býsna gott, að sögn Einars
Gunnars. „Icelandic Startups og
Nýsköpunarmiðstöð Íslands (NMI)
sinna mikilvægu ráðgjafarhlut-
verki, Íslenski jarðvarmaklas-
inn einbeitir sér að því að virkja
umhverfið og tengja ólík fyrir-
tæki saman. Svo er vitaskuld við-
skiptahraðallinn Startup Energy
Reykjavik en þar fá sjö teymi ár-
lega hlutafé frá bakhjörlunum
(Arion banka, Landsvirkjun, NMI
og GEORG) auk virkrar ráðgjaf-
ar frá mentorum sem koma víðs
vegar að úr atvinnu- og háskóla-
samfélaginu. Að fá tækifæri til að
kynna eigin hugmynd fyrir tugum
mentora, sem rýna til gagns og
opna á sitt tengslanet, er ómetan-
legt.“
Samvinna mikilvæg
Ein grunnforsenda nýsköpunar í
orkuiðnaði er góð samvinna opin-
berra aðila og einkafyrirtækja, að
sögn Einars Gunnars. „Hlutverk
ríkisins er að búa til góða innviði
og reyna ekki sjálft að búa til ný-
sköpun eða stýra henni. Frum-
kraftur nýsköpunar verður alltaf
á hendi frumkvöðlanna. Umgjörð,
skattaumhverfi, réttir hvatar
fyrir frumkvöðla og fjárfesta
skipta þannig gríðarlegu máli af
hálfu ríkisins.“ Hann tekur dæmi
af Startup Energy Reykjavik sem
dæmi um drifkraftinn frá einka-
geiranum. „Það er mitt mat að ár-
angurinn sem þar hefur náðst sé
einna helst vegna þess hversu vel
aðstandendum verkefnisins hefur
Frumkvöðlar og
nýsköpun mæta
vaxandi skilningi
Öll orkufyrirtækin hér á landi leggja talsverða áherslu á nýsköpun í orkuiðnaði.
Stuðningsumhverfið fyrir frumkvöðla er nokkuð gott þar sem ólíkir aðilar koma
að, bæði einkafyrirtæki og opinberar stofnanir. Ein grunnforsenda áframhaldandi
nýsköpunar er góð samvinna opinberra aðila og einkafyrirtækja.
„Orkugeirinn snýst ekki bara um að selja rafmagn og hita, heldur að nýta tækifærin til að stuðla að uppbyggingu í fjölbreytileika,” segir einar Gunnar Guðmundsson, forsvars-
maður nýsköpunar hjá Arion banka. Mynd/AnTOn BRInK
ÍSlenSKI JARðvARMAKlASInn Kynningarblað
25. apríl 201612
2
5
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
3
3
-6
5
F
4
1
9
3
3
-6
4
B
8
1
9
3
3
-6
3
7
C
1
9
3
3
-6
2
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
6
4
s
_
2
4
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K