Fréttablaðið - 25.04.2016, Page 48
„Stjórnvöld hafa fyrst og síð-
ast unnið að framgangi jarðhit-
ans með markvissum kynning-
um í sendiráðum erlendis, hjá
fjölþjóðastofnunum og í sam-
starfi við fjölmarga erlenda aðila
sem áhuga hafa á íslenskri jarð-
hitaþekkingu,“ segir Benedikt og
bendir jafnframt á að starfsmenn
utanríkisþjónustunnar sinni fjöl-
mörgum kynningum á fundum og
ráðstefnum þar sem sendiskrif-
stofur séu til staðar í ríkjum eða
á vettvangi stofnana á borð við
FAO, Matvæla- og landbúnaðar-
stofnun Sameinuðu þjóðanna, og
víðar.
Ísland nýtur sérstöðu
Benedikt segir Ísland njóta nokk-
urrar sérstöðu í orkumálum. „Sér-
staðan markast fyrst og fremst af
áralangri nýtingu jarðhita, bæði
lághita til húshitunar og fjöl-
nýtingar, meðal annars í rækt-
un, líftækni og ferðaþjónustu, og
nýtingu háhita til raforkufram-
leiðslu,“ segir hann.
„Önnur mjög mikilvæg sér-
staða er að Íslendingar nýta end-
urnýjanlega orkugjafa til raforku-
framleiðslu og samþætta dreif-
ingu hennar óháð uppruna,“ segir
Benedikt og bendir á að fjölmörg
ríki skorti þekkingu á því hvernig
dreifa eigi orku. Til dæmis hvern-
ig skipta eigi úr dreifingu jarð-
efnaeldsneytis á borð við kol, gas
og olíu, og tengja yfir í dreifingu á
hreinni og endurnýjanlegri orku.
„Að lokum er sérstaða Íslands
í orkumálum ekki síst mannauð-
urinn sem að baki orkuiðnaðin-
um stendur,“ segir Benedikt. Ís-
land hafi, vegna sérstöðu sinn-
ar, yfir að ráða hlutfallslega mjög
stórum orkuiðnaði. „Það er ekki
síst vegna stóriðjunnar sem hér
eru orkufyrirtæki sem eru mjög
samkeppnishæf. Þar má nefna
verkfræðifyrirtæki, fyrirtæki
í raforkuframleiðslu, vélsmiðj-
ur, þjónustufyrirtæki og einnig
sterkar stofnanir á borð við OS,
ÍSOR, Umhverfisstofnun og fleiri.
Þá má ekki gleyma Jarðhitaskóla
Sameinuðu þjóðanna sem hefur
verið starfræktur á Íslandi frá
1979.“
Sterk staða Íslands
„Staða Íslands í alþjóðlegu sam-
starfi um orkumál er afar sterk,“
segir Benedikt. „Umfang og mik-
ilvægi nýtingar endurnýjanlegra
orkugjafa í efnahagslegu sam-
hengi er risavaxið á Íslandi og
sú staðreynd er betur og betur
þekkt innan fjölþjóðasamfélags-
ins,“ segir hann.
Benedikt bendir á að með gerð
nýs loftslagssamnings – Parísar-
samkomulagsins, sé ljóst að flest
ríki jarðar hafi ákveðið að bregð-
ast við minnkun losunar gróður-
húsaloftslagstegunda með auk-
inni nýtingu endurnýjanlegra
orkugjafa. „Í þessu samhengi ráð-
gera iðnríki að auka framlög sín
til loftslagstengdra verkefna, og
þar með orkuverkefna, margfalt
með þátttöku fyrirtækja, banka
og sjóða.“
Til þess að hrinda endurnýjan-
legum orkuverkefnum á sviði jarð-
hitanýtingar í framkvæmd í fram-
tíðinni segir Benedikt að þess-
ar stofnanir muni í vaxandi mæli
sækja þekkingu til þeirra sem
búi yfir sérþekkingu og ekki síst
reynslu sem nýst geti þróunarríkj-
um. „Staðan hefur því aldrei verið
sterkari, mun vaxa áfram og nú
þegar eru íslensk stjórnvöld helstu
samstarfsaðilar fjölþjóðastofnana
sem sinna þessum verkefnum. Þar
má nefna IRENA, SE4All og Al-
þjóðbankann.“
Benedikt segir mikilvægara nú
en nokkru sinni fyrr að Ísland sé
virkur þátttakandi í alþjóðlegu
samstarfi um orkumál. „Öll við-
brögð alþjóðasamfélagsins við
loftslagsvandanum miðast við að
auka hlut endurnýjanlegra orku-
gjafa. Þekking Íslands og reynsla
svarar þeim viðbrögðum mjög vel
á vettvangi jarðhitaþekkingar.“
Gott samstarf milli ráðuneyta
Utanríkisráðuneytið og atvinnu-
og nýsköpunarráðuneytið, ANR,
eiga í góðu samstarfi um jarðhita-
mál, að sögn Benedikts. „Sam-
starfið lýtur ekki síst að ýmsum
samningum eða viljayfirlýsing-
um við ríki um samstarf á jarð-
hitasviðinu. Þá eiga ráðuneytin í
margs konar samstarfi sem lýtur
að þátttöku og starfi á vettvangi
alþjóðastofnana með liðsinni
sendiráða,“ útskýrir Benedikt.
Hann segir utanríkisráðuneyt-
ið þó ekki hlutast til um að fá fjár-
festa til landsins. „Utanríkisráðu-
neytið fer ekki með málefni er-
lendrar fjárfestingar á Íslandi,
þar eru önnur ráðuneyti líkt og
ANR í forsvari. Íslandsstofa sem
er stofnun sem heyrir að hluta
til undir utanríkisráðuneytið er
með Fjárfestingastofu innanborðs
en hún starfar með ANR í þeim
málaflokki,“ upplýsir Benedikt.
Hann bendir þó á að sendiráð Ís-
lands erlendis sinni oft kynning-
um eða fundarsetum með aðilum
sem áhuga kunna að hafa á bein-
um fjárfestingum á Íslandi.
Unnið gegn loftslagsbreytingum
Benedikt segir Ísland sannarlega
leggja sitt af mörkum á alþjóða-
vettvangi þegar kemur að lofts-
lagsbreytingum. „Annars vegar
hefur Ísland lagt fram til Lofts-
lagssamnings Sameinuðu þjóð-
anna metnaðarfull áform um að
draga úr losun gróðurhúsaloft-
tegunda innanlands og umhverf-
isráðherra lagði fram á síðasta
ári metnaðarfulla verkefnaáætl-
un sem lýtur að loftslagsmálum
í tengslum við ríkjaráðstefnuna
COP21,“ segir hann.
Þá sé Ísland að vinna með er-
lendum lykilstofnunum á sviði
loftslagsmála, ekki síst stofnun-
um sem sinni orkutengdum verk-
efnum. Þar megi nefna Alþjóða-
bankann, IRENA og SE4All. „Ís-
land er í fararbroddi þegar að
kemur að menntun sérfræðinga á
sviði jarðvarma og landgræðslu,
sem eru lykilmálefni til framtíðar
til að sporna við neikvæðum lofts-
lagsbreytingum.“
Jarðvarmaklasinn mikilvægur
Inntur eftir því hvort mikilvægt
sé að hafa sterkan jarðvarma-
klasa á Íslandi svarar Benedikt:
„Utanríkisráðuneytið fær fjöl-
margar fyrirspurnir árlega um
samstarfsmöguleika erlendra
stofnana og fyrirtækja við ís-
lenska aðila. Í þessu samhengi
er gífurlega mikilvægt að geta
vísað slíkum fyrirspurnum til
jarðvarmaklasans sem getur
unnið frekar úr þeim. Jafnframt
er mjög mikilvægt að sendiráð
Íslands erlendis sem sinna mikið
jarðvarmatengdum málefnum, í
samstarfi við þjóðríki, stofnanir,
fyrirtæki og svo framvegis, geti
snúið sér beint til klasans varð-
andi faglega meðferð mála, sem
þau eru að vinna að og tengjast
iðngreininni.“
Umfang og mikil-
vægi nýtingar endur-
nýjanlegra orkugjafa í
efnahagslegu samhengi
er risavaxið á Íslandi og
sú staðreynd er betur og
betur þekkt innan fjöl-
þjóða samfélagsins.
Benedikt Höskuldsson
Benedikt Höskuldsson, sendifulltrúi hjá utanríkisráðuneytinu, segir mikilvægara nú en nokkru sinni fyrr að Ísland sé virkur þáttakandi í alþjóðlegu samstarfi um orkumál.
FréttaBlaðið/Ernir
Mikilvægt að Ísland sé virkur þátttakandi
Stjórnvöld á Íslandi hafa unnið ötullega að útbreiðslu þeirrar jarðhitaþekkingar sem Íslendingar búa yfir. Benedikt Höskuldsson,
sendifulltrúi hjá utanríkisráðuneytinu, segir stöðu Íslands í alþjóðlegu samstarfi um orkumál afar sterka.
JarðvarMaklasinn kynningarblað
25. apríl 201618
2
5
-0
4
-2
0
1
6
0
4
:3
0
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
9
3
3
-2
A
B
4
1
9
3
3
-2
9
7
8
1
9
3
3
-2
8
3
C
1
9
3
3
-2
7
0
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
2
4
_
4
_
2
0
1
6
C
M
Y
K