Vestfirska fréttablaðið - 13.04.1978, Side 7
7
(J£'JtyíMri
Úthluta lóðum fyrir
tíu einbýlishús og
halda áfram
byggingu
sundlaugarinnar
„í vor hefur veriö út-
hlutað lóðum hér á
Flateyri til byggingar
tíu einbýlishúsa" sagði
Kristján Jóhannesson,
sveitarstjóri á Flateyri í
viðtali við Vestfirska
fréttablaðið. „Hér er
næg atvinna og mikil
eftirspurn eftir hús-
næði."
„Við höfum úthlutað
Hendrik Tausend lóð, en
hann hyggst reisa iðnaðar-
húsnæði og hefja hér mat-
vælaframleiðslu. Þá hefur
Aðalsteini Vilbergssyni
(Allabúð) verið úthlutað
lóð fyrir verslunarhús, sem
hann áformar að reisa.“
Kristján sagði blaðinu
að í sumar yrði haldið á-
fram vinnu við byggingu
sundlaugarinnar, en hún
var hafin á síðasta ári
Nú verður steyptur upp sá
hluti byggingarinnar, þar
sem verða böð, búnings-
klefar og andyri. Sund-
laugarkerið var keypt áður
og verður það sett niður í
sumar.
Á vegum hreppsins verður
einnig unnið að vatns og
frárennslislögnum og
byggðar tvær götur í ein-
býlishúsahverfi.
ás.
Þjálfa á ísafirði
og í Reykjavík
Átta af liðsmönnum K.R.Í.
stunda skólanám í Reykjavík og
fer undirbúningsþjálfun þeirra
fram þar undir stjórn Frímanns
Sturlusonar, en Tryggvi Sigtryggs-
son sér um þjálfun þeirra sem eru
hér heima.
Gísli Magnússon, aðal-
þjálfari II. deildarliðs
K.R.Í. dvaldi á ísafirði um
páskavikuna og hafði æf-
ingar með liðinu tvisvar á
dag, alla daga nema
þriðjudag, en þá fóru
knattspyrnumenn í útskip-
un í Brúarfoss, sem hér
lestaði fisk, til fjáröflunar
fyrir knattspyrnuráð. A
miðvikudagskvöld gengu
svo knattspyrnumenn í hús
á ísafirði og seldu blóm. Af
þessu tvennu hafði K.R.Í.
um 750 þús. krónur í tekj-
ur.
Um næstu helgi mun lið
K.R.I. leika þrjá leiki við
Iið syðra til undirbúnings
fyrir keppnistímabilið. Is-
landsmótið í II. deild hefst
13. maí, en ísfirðingar
leika sinn fyrsta leik í því
20.5. við Hauka í Hafn-
arfirði. Um hvítasunnuna
er fyrirhugað að fá hingað
utanbæjarlið til æfingar-
leikja við heimamenn,
verði Torfnesvöllurinn
kominn í leikhæft ástand.
Formaður K.R.I., Ólafur
Þórðarson, kvaðst fagna
því að nú væri á fjárhagsá-
ætlun ísafjarðarkaupstaðar
20 millj. króna fjárveiting
til framkvæmda við í-
þróttasvæði og sagðist
hann vona að nú yrði loks
af framkvæmdum við völl-
inn. Undanfarin fimmtán
ár, sagði Ólafur, hefðu ver-
ið á fjárhagsáætlun smá-
upphæðir til svæðisins,
sem svo jafnvel ekki hefðu
verið nýttar, og fram-
kvæmdir við völlinn því að
mestu legið niðri. Er nú
svo komið að K.R.Í. eitt
allra liða í II. deild er til
þess neytt að bjóða upp á
malarvöll til heimaleikja
sinna í íslandsmóti.
ás.
Munið
fermingargjafaúrvalið
í Neista
Vidhöfum fleira
engódaiunat
Notfærið ykkur okkar
hagstæðu vetrarverð og gistið
bergstaðastR/íti 37 > h)arta borgarinnar. Sérstakt
simi 2iou afsláttarverð fyrir hópa.
ÚTI ER VETUR -
HJfl OKKUR ER VOR
f§ Mynta
9Iura 1
Depla
Smæra
Við bjóðum BLÓMALÍNURNAR frá HAGA
í nýjum og fjölbreyttari búningi.
%
hagi nr
Glerárgötu 26 Akureyri sími 96 21507 Suðurlandsbraut 6 Reykjavik sími 91 84585