Málfríður - 15.03.2015, Blaðsíða 11

Málfríður - 15.03.2015, Blaðsíða 11
sumum bekkjum eru töluð hátt í 20 tungumál og sum börn kunna að spreyta sig á þremur til fjórum tungu- málum. Það er mikilvægt að halda áfram að rækta tungu- mál sem maður hefur lært að tala reiprennandi sem barn og getur það nýst samnemendum og kennurum vel að fá innsýn í mál og menningu lítilla sem stórra heimsborgara. Þannig er hægt að nýta tungumál nem- endanna sem virkt tæki til að gera tungumálakennsl- una lifandi, forvitnilega og hagnýta og á sama tíma þróa fjölmenningarfærni í öllu menntunarkerfinu. Við þurfum ekki að kunna móðurmál nemenda okkar til þess að stuðla að því að þeir alist upp í nánd við þau heldur viðurkenna að raddir skólabarna búa yfir meiri fjölbreytni en áður og að góð tengsl við móðurmálið er leiðin inn í íslenskuna eða hvert annað nýtt tungumál sem lært er. Málin skapa heild og samhljóm milli manna, eitthvað sem við þurfum á að halda bæði heima og heiman. Tilvísanir www.menningarmot.is Fjölmenningarstarf Borgarbókasafns: www.borgarbokasafn.is European Centre of Modern Languages: www.ecml.at Ég bendi einnig á „Heimurinn er hér“ sem er fjölmenningarstefna skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur þar sem áhersla er lögð á fjöl- breytt tungumál og á B.Ed ritgerð Oddnýjar Sturludóttur „Gagnrýni og von“, þar sem Menningarmót er tengt við hugmyndafræði Cummins og Nieto. í mánuði víða um borgina þar sem markmiðið er að varpa ljósi á hversu mikið þessi hafsjór auðgar mann- lífið og menningu okkar. Stundum er eitt tungumál í öndvegi og á öðrum tímum setjum við upp svokallað „stefnumót tungumála“ þar sem hægt er að fara á milli fólks sem tala hin ýmsu heimsmál, spreyta sig á máli sem maður þekkir eða kynnst nýju. Það er von okkar að áhuginn á tungumálakunnáttu aukist og að verk- efnið rati smám saman inn á fleiri stig skólakerfisins. Það er nefnilega úr mörgum málum að velja en á Íslandi eru töluð fleiri en 100 tungumál. Sú staðreynd kom berlega í ljós í febrúar 2014 þegar Borgarbókasafn, í samstarfi við ýmsa aðila á sviði menningar og mennt- unar, tók þátt í viðamiklu móðurmálsframtaki á vegum íslensku UNESCO-nefndarinnar og Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum. Í tilefni af alþjóðlega móðurmálsdeginum, sem haldinn er 27. febrúar ár hvert, var sett upp heimasíða á www.tungu- malatorg.is en þar geta skólar meðal annars skráð fjölda þeirra móðurmála sem þar eru töluð. Á síðunni er þar að auki að finna fróðlegan hugmyndabanka um fjölbreytt móðurmál í kennslu. Í starfi mínu sem umsjónarmaður Menningarmóta í reykvískum skólum þar sem nemendur kynna sína persónulega menningu hver fyrir öðrum, sé ég hversu mikið stolt fylgir því hjá ungum Íslendingum þegar þeir miðla heimsreynslu sinni og tungumálaforða. Í GLIMT Stuttir og skemmtilegir bókmenntatextar úr dönskum samtíma. Fallega myndskreytt bók fyrir nemendur á framhaldsskólastigi. Brautarholt 8 / 105 Reykjavík sími 517 7210 / fax 552 6793 / www.idnu.is mán-fim 9–16 föstudaga Opið Ný bók MÁLFRÍÐUR 11

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.