Málfríður - 15.03.2015, Blaðsíða 13
efni þar sem við áttum að velja senu út Rómeó og Júlíu
og búa til hreyfimynd um hana í forritinu Stopmotion.
Við áttum að ræða hvaða senu við vildum taka, hvaða
klípu og tilfinningar við legðum áherslu á og koma
stemningunni á framfæri. Til að vinna svona verkefni
þurfa nemendur að þekkja söguna vel og við umræð-
urnar nýta þau þann skilning og þá færni sem þau hafa
á annan hátt en t.d. við ritunarverkefni.
Spjaldtölvuvæðing í grunnskóla
Kyrre Grevstad, kennir við framhaldsskóla í Bergen.
Skólinn hans fékk í fyrra, ásamt grunnskóla bæjarins,
norsku menntamálaverðlauninn fyrir það hvernig
þau nýta netið og netmiðla í kennslu og það hvernig
þau halda utan um námið á netinu. Hann sagði: „Við
viljum að nemendur okkar vilji læra.“ Viðhorfið er að
vinna með tækninni en ekki á móti henni. Við spjald-
tölvuvæðingu fengu allir starfsmenn og nemendur
spjaldtölvur þannig að öll samskipti og skilaboð fara
fram í Facebook hópum. Mikil vinna fer fram í Google
Docs sem fellir veggi. Ef nemendur vilja vinna á göng-
um skólans, eða jafnvel heima, er kennarinn samt með
aðgang að skjalinu þeirra og getur komið með leið-
beiningar og leiðréttingar jafnóðum eða eftir því sem
hentar. Nemendur hafa verið mjög ánægðir með þetta.
Við yfirferð á verkefnum mælti hann einnig með for-
ritið Annotate.
Við skólann starfa tveir kennarar sem sérhæfa sig í
að finna leiki sem nýtast við kennslu. Forritið Socrative
er mikið notað en það er mjög einfalt í notkun og afar
hagnýtt. Þau nota speglaða kennslu þar sem nemendur
hafa tækifæri til að skoða stutta fyrirlestra heima eða
við vinnu sína í tímum.
Í ritun og við lestur sýndi hann okkur hvernig þau
nota Inklewriter sem er afar hvetjandi til að fá nem-
endur til að skrifa og eins höfðu kennarar sett lestexta
þar inn sem voru mis ýtarlegir. Grevstad tók dæmi af
fornsögu þar sem nemendum gafst kostur á að lesa
t.d. ættartölu ef leið A var valin eða sleppa henni og
halda lestri áfram með því að velja leið B. Þetta er góð
blómstra þar sem hvatinn að vinnu nemandans kemur
að innan. Það er erfitt að skipuleggja kennslu sem þessa.
Það krefst mikils tíma áður en haldið er af stað með
nemendum. Á heimasíðu Jeppe er að finna spurningar
sem gott er að spyrja sig áður en lagt er af stað og hluti
sem gott er að hafa í huga við skipulagið, á meðan á
vinnu stendur og við námsmat. Ýmis forrit eru til sem
auðvelda utanumhald og verklag. Í glærusafninu frá
fyrirlestrinum má finna ýmsar hagnýtar upplýsingar.
http://www.jeppe.bundsgaard.net/foredrag/index.
php
Minecraft
Börn og unglingar elska leiki og Santeri Koivisto
stofnandi Minecraft og fyrrum kennari sýndi okkur
hvernig Minecraft er notað í kennslu víða um heim.
Við prófuðum sjálf og það var sérlega skemmtilegt að
sjá hvernig tilfinningin fyrir fjarstýringunni kom sér
vel hjá yngsta fólkinu á námskeiðinu við að byggja og
flytja hluti.
Núvitund
Lone Koefoed Hansen sem er lektor við háskólann í
Árósum hélt fyrirlestur um skynjun okkar á umheim-
inum í gegnum snjalltæki og um það hversu vön við
erum orðin því að allt snúist í kringum okkur sjálf í
netmenningu samtímans. Hún benti m.a. á að þegar
fólk tekur myndir af öllu mögulegu í kringum sig,
eins og af matnum sínum, er það að skynja hlutinn á
annan hátt en áður. Það gefi, andstætt því sem oft hefur
verið rætt um, núvitund og tilfinningu fyrir hlutum og
sjónarhorn sem það fær ekki annars.
Hreyfimynd í Stopmotion
Myndlistarkonan Ditte Lundsgaard Nielsen er mennt-
uð í uppeldisfræðum og hefur árum saman unnið
með ungu fólki í faglegum skapandi verkefnum með
notkun nettækja. Hún lét okkur m.a. vinna hópverk-
MÁLFRÍÐUR 13
Allir þáttakendur á námskeiðinu. Ditte Lundsgaard Nielsen.