Málfríður - 15.03.2015, Blaðsíða 22

Málfríður - 15.03.2015, Blaðsíða 22
Alþjóðlegt þing tungumálakennara var haldið 26.– 29. apríl sl. af Alþjóðasamtökum tungumálakenn- ara, Fédération Internationale des Professeurs de Langues Vivantes (FIPLV), í samvinnu við samtök tungumála- kennara í Ontariohéraði í Kanada, Ontario Modern Language Teachers’ Association (OMLTA) og Samtök annarsmálskennara í Kanada, The Canadian Association of Second Language Teachers (CASLT). STÍL er meðlimur í FIPLV og er Sigurborg Jónsdóttir, þýsku- og frönskukennari í Borgarholtsskóla og fyrrum formaður STÍL, núverandi formaður deildar Norðurlanda og Eystrasaltslanda FIPLV. STÍL sendi tvo fulltrúa á þingið, nýjan formann STÍL, Petrínu Rós Karlsdóttur og Svanlaugu Pálsdóttur en einnig var Sigurborg Jónsdóttir á þinginu á vegum deildar Norðurlanda og Eystrasaltslanda FIPLV. Þingið sóttu rúmlega 1000 tungumálakennarar víðs- vegar að úr heiminum. Boðið var upp á fyrirlestra, örnámskeið og málstofur um það nýjasta á sviði tungu- málakennslu í dag. Talsverð áhersla var lögð á nýjungar í kennslu s.s. hvernig nýta megi tækninýjungar, netið, ýmis kennslu- forrit og öpp. Einnig var nokkuð mikið um að umföll- unarefnið væri tónlist, bæði hefðbundin og svo rapp, t.d. málfræðirapp, en þar að auki var fjallað um flest allt sem til umræðu hefur verið í tengslum við kennslu erlendra tungumála síðustu ár. Margir helstu fræði- menn heims í kennslufræðum tungumála héldu fyrir- lestra og stjórnuðu örnámskeiðum og vinnustofum. Fyrir okkur sem ekki höfðum farið á svona þing áður kom það á óvart hversu margt var í boði, því á hverjum tíma voru 6-10 valmöguleikar. Það var þraut- inni þyngra að velja hvert skyldi haldið og hverju yrði sleppt. Hægt er að fletta upp á þinginu á Twitter á merkinu #WCML2015. Margir fyrirlestrar voru teknir upp og má sjá þá á þessari slóð: https://www.caslt. org/what-we-do/what-we-do-wcml-cmlv-2015_ en.php Eftirminnilegar kynningar Margar eftirminnilegar kynningar voru fluttar á þinginu og verður hér fjallað um nokkrar þeirra. Sylvia Duckworth: „Social Media and Web 2.00 tools in the FSL (French Second Language) in the classroom. Technologies in the classroom.“ Duckworth sagði frá reynslu sinni af notkun tækninýjunga í kennslu- stofunni. Henni fannst mesta og besta breytingin á nemendum eftir að hún gafst upp á ljósritunum og fór að nota tæknina að nemendur væru ánægðari og virk- ari í tímum. Eftir að hafa setið kynningu hjá Sylvia Duckworth höfum við fylgt henni á Twitter. Þar er hægt að fá hugmyndir að verkefnum fyrir nemendur. Steven Langlois (sviðsnafn: Etienne dj delf): „Getting REAL and AUTHENTIC in the French Classroom.“ Langlois semur lög í stíl við vinsæl lög til að hjálpa nemendum að læra ensku, frönsku og spænsku. Tónlist hans er til sölu í flestum tónlistarverslunum í Kanada en nýtist alls staðar þar sem þessi tungumál eru kennd. Michelle Metcalfe: „Introduction to Teaching Spanish through Reading and Storytelling.“Metcalfe var með sýnikennslu á hvernig hún notar sögustund, storytell- ing, til að kenna nemendum spænsku. Hún er með öll helstu spurnarfornöfn í spænsku þýdd uppi á vegg og glærur með þýðingum á setningum sem hún ætlar að nota. Hún heldur á laserbendli og notar leikmuni svo sögustundin verði skemmtilegri. Hún segir að eftir að hún hætti að kenna málfræði og hafi farið að kenna á þennan hátt hafi nemendur hennar náð betri árangri. Málfræðina læri þau að sjálfu sér þ.e. að nota hana þó þau komi ekki til með að læra hugtökin. Jim Murphy: Reynslan af fjarkennslu tungumála á Nýfundnalandi og Labrador (kynning án titils í tengslum við pallborðsumræður). Murphy talaði um jákvæða reynslu sína af fjarkennslu tungumála á svæði 22 MÁLFRÍÐUR Petrína Rós KarlsdóttirSvanlaug Pálsdóttir Alþjóðlegt þing tungumálakennara við Niagarafossa Svanlaug Pálsdóttir, spænskukennari við Verzlunar- skóla Íslands og Petrína Rós Karlsdóttir, formaður STÍL og frönskukennari við Menntaskólann við Sund.

x

Málfríður

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.