Málfríður - 15.03.2015, Síða 17
prófa eitthvað nýtt. Nýlega reyndi ég að setja námið
upp sem stigakeppni þar sem nemendur höfðu meira
val í verkefnum og fengu stig. Ég er ánægð með hug-
myndina en hún virkaði ekki eins vel og við var
búist svo hún er enn í þróun. Einnig höfum við mikið
verið að taka nemendur í litlum hópum úr kennslu-
stundum til að þjálfa þau með munnlegum æfingum.
Það hefur tekist mjög vel og hefur reynst einstaklega
skemmtilegt, sérstaklega eftir að við fluttum í nýtt
húsnæði þar sem við erum nú með sérstaka umræðu-
stofu.
Við sem kennum í FMOS gerum okkur grein fyrir
því að það er mikil vinna að læra að kenna og meta
á þennan hátt. Við viljum hjálpa nemendum að ná
árangri, að þeir sjái tilgang með náminu og að námið
veki áhuga hjá þeim. Við viljum nota kennsluaðferðir
sem við vitum og trúum að beri árangur og það er
undir okkur komið að þróa þær á þann hátt að það
komi vel út fyrir alla. Nemendur okkar hafa verið
ánægðir með kennsluhættina og kennarana. Þeir sem
hafa útskrifast frá okkur og eru í framhaldsnámi tala
um hversu vel undirbúnir þeir séu þegar kemur að
því að vinna að verkefnum og taka ábyrgð á náms-
framvindu. Við erum sífellt að læra, bæði hvert af
öðru og af nemendum, og lesa okkur til. Við vitum
að við erum engir sérfræðingar en við höfum öðlast
dýrmæta reynslu í gegnum árin og höldum áfram
að vinna ötullega að því að bjóða upp á nútímalegar
kennsluaðferðir.
komið fram eru þessar aðferðir alltaf í þróun og á hverju
skólaári prófum við okkur áfram með nýjar leiðir. Við
reynum að setja okkur ávallt í spor nemenda og sjá fyrir
okkur hvernig leiðsagnarmat hentar hverju sinni og að
það leiði nemandann áfram í námi. Undanfarin ár höfum
við séð mikla gagnsemi í munnlegu leiðsagnarmati og
hversu mikilvægt samtal á milli kennara og nemenda er
um námsefni og stöðu nemandans. Við teljum að endur-
skil nemenda séu stór þáttur í úrvinnslu nemenda á
leiðsögn okkar. Án endurskila er engin úrvinnsla og þá
nýtist leiðsagnarmatið ekki að fullu.
Í spænskunni notumst við mikið við munnlegt
leiðsagnarmat fyrir stutt tímaverkefni. Þá setjumst við
niður með nemendum og lesum verkefnið yfir til að
athuga hvort þeir hafi skilið efnið og unnið það rétt.
Komi það í ljós að nemandinn hafi ekki skilið efnið
nógu vel, er strax unnið í því og reynt að útskýra það
betur fyrir honum. Í stærri verkefnum styðjumst við
meira við skriflegt leiðsagnarmat og þá þurfa nem-
endur að skila verkefninu aftur til kennara, endur-
unnu. Sérstaklega er gefið fyrir endurvinnslu á verk-
efninu í námsmati. Þegar nemendur taka hlutapróf fá
þeir námsmat í stöðluðum spænskum orðum en fá svo
að leiðrétta prófið og hækka sig upp sé það vel leiðrétt.
Markmiðið er auðvitað að nemandinn læri af prófinu
og þá sérstaklega því sem var ekki rétt.
Staðan í dag
Við í FMOS erum sífellt að reyna að finna nýjar leiðir
til þess að gera námið áhugavert fyrir nemendur og
MÁLFRÍÐUR 17
Hópvinna á ganginum.