Málfríður - 15.03.2015, Qupperneq 18

Málfríður - 15.03.2015, Qupperneq 18
Við yfirfærslu grunnskólans til sveitarfélaganna 1996 var gert samkomulag milli Reykjavíkurborgar og ríkis- ins um að Reykjavíkurborg annaðist ráðgjöf í norsku og sænsku. Í maí 2001 samþykkti fræðsluráð Reykjavíkur að stofnað yrði Tungumálaver í Laugalækjarskóla þar sem færi fram m.a. þróun og framkvæmd fjarkennslu í tungumálum auk kennsluráðgjafar í norsku og sænsku. Jafnframt yrði þar um þróunarstarf að ræða varðandi vef til fjarkennslu tungumála sem valgrein í 9. og 10. bekk. Tungumálaverið er byggt á þróunar- verkefni Norrænu tungumálaráðgjafarinnar í sam- vinnu við Ísmennt og Fræðslumiðstöð Reykjavíkur. Þróunarverkefninu voru gerð skil í Málfríði 2/1999. Tungumálaverið hefur slitið barnsskónum og er orðið virk þjónustustofnun við grunnskóla landsins. • Þar er veitt ráðgjöf í norsku og sænsku til skóla utan Reykjavíkur. Ráðgjöfin er fólgin í vikuleg- um kennsluáætlunum, aðgengi að námsefni á vef, gerð prófa og aðstoð við námsmat. Jafnframt fá nemendur að láni bækur, hljómdiska og kvik- myndir sem eru í vörslu versins. • Þar fer fram staðbundin kennsla í norsku, pólsku og sænsku fyrir nemendur í Reykjavík. Kennsla nemenda í yngri bekkjum fer fram í staðnámi. Hver hópur hittir kennarann sinn í tvær kennslu- stundir einu sinni í viku. Í hverju fagi fer kennslan fram á þremur til fjórum stöðum á höfuðborgar- svæðinu. Kennsla hefst á sama tíma og skólafélag- ar byrja að læra dönsku. Flestir byrja því í 7. bekk en þó nokkrir hefja nám í 5. og 6. bekk. • Nemendur í 9. og 10. bekk innan bæjar og utan stunda netnám í norsku, pólsku og sænsku. Í net- náminu er allt námsumhverfi rafrænt: námsgögn, samskipti, verkefnaskil og námsmat. Netnám krefst mikils sjálfstæðis og frumkvæðis af nem- endum. Þróun í upplýsingatækni hefur bætt allt utanumhald til muna. Nemendahópurinn Nemendur í Tungumálaveri hefja nám á stigi tvö sam- kvæmt aðalnámskrá grunnskóla. Byrjendakennsla stendur nemendum ekki til boða. Það er því krafist talsverðrar undirstöðukunnáttu af nemendum. Öll kennsla fer fram á markmálinu og þeir þurfa því að skilja allvel talaða norsku, sænsku eða pólsku, geta lesið og skilið texta sem hæfa aldurshópi þeirra og geta gert sig skiljanleg á töluðu máli. Þeir eru þó eðlilega misvel staddir í hinum ýmsu færniþáttum. Kennsluhættir Ekki er hefð fyrir því að nemendur í Tungumálaveri taki stöðupróf á meðan þeir eru í grunnskóla. Lögð er áhersla á að málnotendur eru í stöðugri framför og því eru viðfangsefnin krefjandi, áhugaverð og endurspegla fortíð og nútíð. Elstu árgangarnir hafa t.d. fengist við viðfangsefnin málfrelsi og netöryggi, heilsa, seinna stríðið og stríðslokin, „nabospråksforståelse“ og mikla ritun þar sem tekist er á við röksemdafærslu, „debat“ og sköpun. Námsefni Allt námsefni er samið af kennurum og tekur mið af stöðu hvers nemenda í hverjum færniþætti og því sem er efst á baugi á hverjum tíma. Engar kennslubækur eru notaðar heldur er stuðst við annað fjölbreytt efni s.s. bókmenntir, dagblöð, kvikmyndir, hljóðefni í hefð- bundnu formi og á vef. Kennararnir eru allir menntaðir í sínu heimalandi og hafa góð tengsl við land og þjóð. Verkefnið hefur notið velvilja og stuðnings sendiráða Noregs, Póllands og Svíþjóðar. Tæki og tól Frá áramótum 2010–2011 hefur kennslan farið fram í Moodle Reykjavíkur, eftir ýmsar misgóðar tilraunir með heimatilbúið umhverfi og Blackboard. Kennarar nýta Quia við gerð gagnvirkra verkefna og til hljóð- efnisgerðar nota þeir Screencast-O-Matic, Soundcloud og stöku sinnum Audacity og tengja við Moodle. Kennarar útbúa einnig æfingar og námsefni, texta, æfingar og hljóðefni á vef fyrir nemendur í 7. og 8. bekk. Þannig venjast nemendur rafrænu umhverfi og verklagi strax frá upphafi. 18 MÁLFRÍÐUR Tungumálaver: Í þjónustu allra grunnskóla Brynhildur Anna Ragnarsdóttir, deildarstjóri í Tungumálaveri.

x

Málfríður

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Málfríður
https://timarit.is/publication/1081

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.