Málfríður - 15.03.2015, Page 25
fólk til dómnefndarstarfa í keppninni og margar and-
ans manneskjur má nefna í því sambandi t.d. Vigdísi
Finnbogadóttur, Thor Vilhjálmsson, Pétur Gunnarsson,
Brynhildi Guðjónsdóttur, Sigríði Thorlacius og Sigurð
Pálsson.
Þó að keppendum hafi fækkað undanfarin ár er
óhætt að fullyrða að frönskukeppni framhaldsskóla-
nema sé hvatning fyrir kennara og nemendur þeirra
til að halda franskri tungu á lofti. Keppnin ber áhuga
frönskukennara fyrir starfi sínu vitni og sýnir vilja
franskra stjórnvalda til að hvetja íslensk ungmenni til
að læra frönsku.
Höfundur þakkar öllum þeim frönskukennurum sem
lögðu hönd á plóg við að útvega upplýsingar um tilurð
og sögu frönskukeppni framhaldsskólanema.
gerð á frönsku þar sem þeir útskýrðu nálgun sína
að efninu. Dómnefnd í keppninni skipuðu að þessu
sinni Auður Ava Ólafsdóttir rithöfundur, Guðlaug
Matthildur Jakobsdóttir, fyrrverandi forseti Alliance
française á Íslandi og Philippe O’Quin, sendiherra
Frakklands á Íslandi. Níu framhaldsskólanemar tóku
þátt í keppninni í ár og var það Sindri Máni Ívarsson
úr Kvennaskólanum í Reykjavík sem hreppti fyrsta
sætið. Hlýtur hann í verðlaun tíu daga námskeiðsdvöl
í La Rochelle í sumar og stendur sendiráð Frakklands
alfarið straum af kostnaði við ferðir, uppihald og nám-
skeiðið. Í öðru sæti lenti Brynhildur Ásgeirsdóttir úr
Borgarholtsskóla og í því þriðja Verslunarskólaneminn
Daníel Alexander Pálsson. Hlutu þau í verðlaun bók og
kvikmynd á mynddiski. Allir aðrir keppendur fengu
viðurkenningarskjal og mynddisk með franskri kvik-
mynd.
Ágrip af sögu frönskukeppni
framhaldsskólanema
Eins og kom fram hér að ofan var þetta í 19. sinn sem
frönskukeppni framhaldsskólanema var haldin og
er ekki úr vegi að segja aðeins frá tilurð hennar og
sögu. Það var árið 1996 að til hennar var stofnað að
frumkvæði stjórnar Félags frönskukennara á Íslandi
en fyrsta keppnin fór fram ári seinna. Fyrstu þrjú árin
var keppnin haldin í húsnæði MH en síðan hefur hún
farið víða t.d. í MR, í Borgarleikhúsið, Iðnó og und-
anfarin ár hefur Borgarbókasafnið við Tryggvagötu
hýst keppnina. Framan af fólst frönskukeppnin í
ljóðaflutningi keppenda sem yfirleitt völdu ljóð
eftir frönskumælandi skáld til að flytja fyrir framan
dómnefnd og aðra viðstadda. Voru ljóðin frá ýmsum
tímabilum, jafnvel frá miðöldum, þó að vinsælasta
skáldið hafi án efa verið 20. aldar ljóðskáldið Jacques
Prévert sem höfðar vel til framhaldsskólanema með
hnyttnum, auðskiljanlegum prósaljóðum. Einnig
kom fyrir að nemendur fluttu frumsamið ljóð. Árið
2009 var tekin ákvörðun um að breyta fyrirkomulagi
keppninnar. Það ár sömdu nemendur eigin texta um
ákveðið þema, ýmist ljóð, lagatexta eða stuttan fyrir-
lestur með myndasýningu sem þeir fluttu fyrir fram-
an dómnefnd. Fyrirkomulag keppninnar hefur síðan
þá verið í þessum anda.
Verðlaun og dómnefndir
Fyrstu verðlaun hafa verið vegleg allt frá stofnun
keppninnar, ferð til Frakklands í boði sendiráðs
Frakklands á Íslandi, og fyrstu fimm árin voru veitt
tvenn ferðaverðlaun fyrir tvö efstu sætin. Ferðirnar eru
gjarnan tengdar við hátíðir sem fara fram í Frakklandi
t.d. tónlistar- eða kvikmyndahátíð og alltaf fá nemend-
ur að sækja námskeið á frönsku ásamt ungmennum frá
öðrum löndum.
Yfirleitt hefur verið auðvelt að fá frönskumælandi
MÁLFRÍÐUR 25
Vinningshafarnir: Sindri Máni Ævarsson og Brynhildur
Ásgeirsdóttir.