Málfríður - 15.03.2015, Side 26
Í þessari samantekt ætla ég að segja lítillega frá sam-
tökunum English Speaking Union (ESU), hvernig starf-
semi þeirra er háttað hér á landi og á heimsvísu. Síðan
reifa ég samstarf Félags enskukennara á Íslandi (FEKÍ)
og ESU á Íslandi en ver meginhluta greinarinnar í að
lýsa alþjóðlegu ræðukeppninni sem við tókum fyrst
þátt í árið 2010 og undankeppninni hér á landi til að
velja keppendur sem fara til Lundúna og etja kappi við
jafnaldra sína frá meira en 50 löndum.
English Speaking Union
ESU eru alþjóðleg góðgerðarsamtök sem stofnuð voru
1916 í því augnamiði að nýta enska tungu til að stuðla
að skilningi og vináttu milli þjóða. Markmiði sínu
vinna þau að með ráðstefnum, fyrirlestrum, fræðslu-
starfsemi og styrkveitingum. Höfuðstöðvar þeirra eru í
Lundúnum en deildir starfa víðsvegar á Bretlandseyjum
og um heim allan. Áhersla er lögð á að styrkja alls konar
fræðslustarfsemi einkum til eflingar ræðumennsku. Til
frekari glöggvunar sjá: www.esu.org og www.esu.is.
ESU á Íslandi
Á Íslandi hófst undirbúningur að þátttöku okkar í
samtökunum haustið 2008 en fullgilding fór síðan
fram með pompi og prakt haustið 2011 með gestum
hvaðanæva að úr heiminum. ESU hefur í samstarfi
við Alþjóðastofnun HÍ staðið að fyrirlestrum erlendra
gesta, stutt Þjóðminjasafnið vegna fyrirlestra um jóla-
sveina og haldið menningarkvöld þar sem erlendum
samborgurum er boðið að segja frá upprunalandi sínu,
menningu og siðum. Nú þegar höfum við kynnst betur
Noregi, Filippseyjum og Ghana. Kennarar hafa farið
héðan á Shakespeare sumarnámskeið í Globe leik-
húsinu og verið boðið á kynningu á því hvernig megi
þjálfa nemendur í ræðulist.
Frá upphafi fannst stjórn enskukennarafélagsins
sjálfsagt að taka þátt í starfi ESU vegna þeirra mögu-
leika sem opnast kennurum og nemendum. Hlutverk
FEKÍ í samstarfinu hefur aðallega verið fólgið í því
að skipuleggja árlega ræðukeppni til að velja fulltrúa
okkar í alþjóðlegri ræðukeppni IPSC (International
Public Speaking Competition) sem haldin er ár hvert
í Lundúnum.
IPSC
ESU heldur árlega keppni IPSC (International Public
Speaking Competition) en í henni keppa þátttakendur
frá yfir 50 löndum. Við sendum fyrst keppendur árið
2010 en til þess að velja fulltrúa okkar höfum við efnt
til keppni meðal framhaldsskólanema en keppendur
eiga að vera á aldrinum 16–20 ára. Rétt er að benda á
að háskólanemar á þessum aldri eru jafn gjaldgengir.
Með þátttöku okkar í þessari keppni vonaði FEKÍ
að kennarar nýttu sér tækifærið til að leggja meiri
áherslu á talað mál í samræmi við námskrá, efndu til
keppni í sínum skóla og sendu þrautþjálfaða sveit til
aðalkeppninnar. Því miður hafa fáir skólar gripið þetta
tækifæri á lofti þannig að ekki hefur komið til margra
daga riðlakeppni. Hins vegar hafa sendiráðsmenn og
aðrir sem hlýtt hafa á málflutning ungmennanna í
ræðum sínum undrast framgöngu þeirra og málsnilld.
Keppnin sjálf
Haustið áður en keppnin fer fram er ákveðið hvaða
þema keppendur eiga að styðjast við t.d. „Words are not
Enough“ eða „Culture is not a Luxury but a Necessity.“
Ræðan skal vera sem næst 5 mínútur að lengd, titill er
að eigin vali og síðan svarar ræðumaður spurningum
í 4–5 mínútur. Þær geta komið frá viðstöddum, dóm-
urum eða jafnvel ræðustjóra.
Ræðukeppnin er ekki próf í ensku þótt vissulega
sé ákveðin færni í málinu nauðsynleg til að koma
hugsunum til skila. Af 100 stigum sem hæst eru gefin
geta keppendur fengið 35 fyrir ræðuflutning, 35 fyrir
röksemdafærslu, 15 fyrir uppbyggingu og meðferð
áhersluatriða og 15 fyrir það hvernig þeir bregðast
við spurningum að ræðu lokinni. Dómarar eru beðnir
um að meta hvernig ræðumaður ber sig og hvaða
sambandi hann nær við áhorfendur, hversu sann-
færandi hann er og leikinn í að bregðast við spurn-
ingum.
26 MÁLFRÍÐUR
Jón Ingi Hannesson, ensku-
kennari við Menntaskólann við
Hamrahlíð.
Samstarf Félags enskukennara og
English Speaking Union