Málfríður - 15.03.2015, Page 27
Æskilegt væri að fleiri skólar tækju þátt í keppninni
sem hefur oftast verið haldin um miðjan febrúar í húsa-
kynnum Háskólans í Reykjavík. Undantekningarlítið
virðast keppendur hafa haft gaman af að spreyta sig
og þeir kennarar sem viðstaddir hafa verið haft gaman
af. Tvisvar hefur keppendum verið boðið í námsferð
til Bandaríkjanna vegna frammistöðu sinnar og allir
keppendur fá ársaðild að ESU á Íslandi. Þeir sex sem
keppa til úrslita hafa fengið verðlaun og sigurvegarinn
og sá sem lendir í öðru sæti sérstök verðlaun þess utan.
Gott væri að kennarar hefðu samband við greinarhöf-
und og gæfu honum ráð til að efla þennan viðburð
en Félag enskukennara er reiðubúið að styðja þá eftir
megni.
Úr hverjum riðli fara einhverjir í undanúrslit en í
þeim er annar háttur hafður á. Keppendur fá að draga
um þrjú þemu sem þeir hafa ekki fengið að vita um
fyrirfram og fá 15 mínútur til að undirbúa þriggja mín-
útna ræðu sem ekki fylgir spurningalota. Sex kepp-
endur komast í úrslit en sigri fylgir sá böggull að mæta
í höllu drottningar um haustið.
Keppendum er ætlað að koma til Lundúna á mánu-
degi í þeirri viku sem keppnin er haldin. Þeir þurfa
sjálfir að koma sér á fundarstað en annað uppihald er
að mestu kostað af ESU og aðildarlöndum sem greiða
hófstillt skráningargjald. Keppendum er boðið upp á
fjölbreytta viðburði áður en keppnin hefst auk þjálf-
unar í ræðumennsku. Á fimmtudegi hefst riðlakeppn-
in, en undanúrslit og lokakeppni eru á föstudeginum.
Valinn er sigurvegari að mati dómara og annar sem er
vinsælastur meðal áhorfenda.
NPSC (National Public Speaking
Competition)
Eins og að ofan getur hófum við leik árið 2010. Þá mátti
senda tvo keppendur frá hverju landi og urðu tveir
Verslunarskólapiltar fyrir valinu. Næst voru það stúlkur
úr VÍ og MH. Árið 2012 hafði þátttökulöndum fjölgað
svo að frá hverju landi kemur nú aðeins einn keppandi.
Við höfum sent stúlkur úr VÍ, MH, MA og núna í maí
aftur stúlku úr MH. Kynjahlutföllin eru sem sagt 6:2.
MÁLFRÍÐUR 27
Alþjóðleg ræðukeppni ESU.
30 ára afmæli STÍL
laugardaginn
31. október 2015
kl. 14:00 – 17:00
STÍL heldur upp á 30 ára afmæli sitt á
léttum nótum með frumkvöðlum og
tónlistaratriðum.
Staða tungumála í dag skoðuð.
Nákvæm dagskrá verður send út síðar.