Morgunblaðið - 21.07.2015, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 2 1. J Ú L Í 2 0 1 5
Stofnað 1913 169. tölublað 103. árgangur
SMÁSKÍFA TÓNN
AÐ BREIÐSKÍFU
OG EVRÓPUTÚR SÖNGFÖR UM LANDIÐ
TÖFFARABÍLL,
TRYLLITÆKI OG
REYNSLUAKSTUR
SÖNGHÓPURINN OLGA 33 BÍLARJÚNÍUS MEYVANT 30
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Vala Valtýsdóttir, sviðsstjóri
skatta- og lögfræðisviðs Deloitte,
segir að breytingar sem gerðar
hafa verið á virðisaukaskattsskyldu
ferðaþjónustufyrirtækja muni í
ákveðnum tilvikum skila því að við-
komandi fyrirtæki muni fá meira úr
ríkissjóði en þau inna af hendi í
formi virðisaukaskatts. „Þeir aðilar
sem selja út þjónustu sem ber 11%
virðisaukaskatt en greiða 24% virð-
isauka af aðföngum sínum eru í
raun og veru að fá dálítinn ríkis-
styrk,“ segir hún.
Með breytingum á virðisauka-
skattslögum munu nú ýmis fyrir-
tæki í ferðaþjónustu á borð við þau
sem bjóða upp á skemmtisiglingar,
hvalaskoðun og aðra afþreyingu af
því tagi, rétt eins og heilsulindir á
borð við Jarðböðin á Mývatni og
Bláa lónið, þurfa að innheimta út-
skatt af þjónustu sinni en á sama
tíma munu þau, ólíkt því sem áður
var, hafa möguleika til frádráttar
gagnvart þeim innskatti sem þau
hafa greitt af aðföngum sínum. Hin
ólíku skattþrep sem gilda um þessa
vöru og þjónustu valda ákveðnu
misgengi við innheimtu og skil á
skattinum. „Þetta er einfaldlega
hættan sem skapast þegar tvö þrep
eru í skattheimtunni,“ segir Vala en
hún bendir á að þetta eigi ekki að
koma á óvart enda hafi þessi staða
lengi verið uppi, m.a. í tengslum við
hótelrekstur hér á landi.
Hagnast á ólíkum skattþrepum
Skattheimtan mun í ákveðnum tilvikum skila sér í ríkisstyrk, að mati sérfræðings
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Skattur Hvalaskoðun verður skatt-
skyld frá og með næstu áramótum. MVirðisaukaskattur leiðir … »16
Það er þolinmæðisverk að ná mynd, eins og þessari sem hér sést af hafern-
inum, eins og Gyða Henningsdóttir ljósmyndari fékk að reyna í fyrradag.
Hún og eiginmaður hennar, Einar Guðmann, sitja um hreiðrin dag eftir dag,
allt upp í fjórtán tíma samfleytt, saman á óþægilegum kollum í litlu felulituðu
einmenningstjaldi. Biðin er til þess að fá stuttan glugga, kannski þriggja sek-
úndna langan, þegar hægt er að mynda örninn að færa ungunum mat. Hann
veiðir ekki á hverjum degi og þegar hann fiskar ekki gildir hið sama um þau.
Aðspurð um hvað fái fólk til þess að gera þetta segir Gyða það fyrst og
fremst áhugann á ljósmyndun sem laði þau að. „Það hjálpar líka til, sér-
staklega í þessari löngu yfirlegu yfir haferninum, að við erum í þessu saman.
Það munar miklu um það. Maður gæti þetta, held ég, ekki aleinn.“ Blaða-
maður spyr hvort það taki ekki á sambandið að sitja svona lengi yfir þessu og
Gyða neitar því ekki. „Það tekur vel á. Það er þröngt um okkur svo það er
eins gott að það sé gott samkomulag í tjaldinu. Sem betur fer er ég ekki há í
loftinu svo það fer ekki mikið fyrir mér, a.m.k. stærðarlega séð,“ segir Gyða
og hlær. „En þetta tekur vel á.“
Náttúruljósmyndun er ekki eina viðfangsefni Gyðu, en dags daglega vinn-
ur hún sem rekstrarstjóri Levi’s- og Benetton-verslana á Akureyri. „Sumum
finnst maður stórfurðulegur að standa í þessu.“
Þau hjónin leggja mikið upp úr því að ljósmyndunin sé eins ekta og mögu-
legt er. Hún tæki það ekki í mál t.d. að mynda handfóðraða erni eins og gert
er sums staðar. „Þetta þarf að vera alvöru, annars telur það ekki.“ bso@mbl.is
Ekki fiskað á hverjum degi
Lífsbarátta hafarnarins ljósmynduð
Ljósmynd/Gyða Henningsdóttir
Heildarsala á
kjöti dróst saman
um 1,3% síðast-
liðið ár. Setti
verkfall dýra-
lækna strik í
reikninginn þeg-
ar kom að kjöt-
sölu. Þannig varð
samdráttur upp á
8,3% á síðasta
ársfjórðungi. Sala á lambakjöti jókst
um 5,8% síðastliðið ár og nutu
lambakjötsframleiðendur aukinnar
eftirspurnar m.a. vegna skorts á
öðrum kjötvörum í verkfallinu.
Mestur samdráttur hefur orðið í sölu
á hrossa- og nautakjöti undanfarið
ár. Helgast það m.a. af því að óvenju
miklu var slátrað af hrossakjöti í
fyrra og af því að margir naut-
griparæktendur kjósa að nýta kýr
sínar fremur til mjólkurframleiðslu.
„Svínaræktin fékk mesta höggið í
þessu verkfalli. Framleiðsluaukn-
ingin var 34,5% í júní því svínin voru
svo mörg inni í stíunum og það var
komin uppsöfnuð þörf á mark-
aðinn,“ segir Erna Bjarnadóttir að-
stoðarframkvæmdastjóri Bænda-
samtaka Íslands. »4
Verkfallið hafði
áhrif á kjötsöluna
Erna Bjarnadóttir
Lögreglan á
Blönduósi segir
áfengissölu á
matsölustöðum
N1 í Staðarskála
og á Blönduósi
ekki hafa leitt til
aukinna vand-
ræða eða
ölvunaraksturs.
Þó hefur fyrir-
komulagið mætt
gagnrýni hjá ýmsum félagasam-
tökum en Árni Guðmundsson hjá
Foreldrasamtökum gegn áfengis-
auglýsingum segir áfengissölu Olís
um verslunarmannahelgina vera
fyrir neðan allar hellur. »18
Ýmsir gagnrýna bjór
á bensínstöðvum
Umdeilt Vín og
bensín til sölu.
Tímasetning
og staðsetning
eldgossins í
Holuhrauni
komu í veg fyrir
að áhrif eldgoss-
ins yrðu enn
meiri en raunin
varð. Þetta er
mat Sigurðar
Reynis Gísla-
sonar, vísinda-
manns við Háskóla Íslands.
Ný vísindagrein eftir Sigurð
Reyni og samstarfsfólk hans um
umhverfisáhrif gossins í Holu-
hrauni var birt í gær.
„Við vorum heppin með Holu-
hraun í sambandi við tímasetningu
og staðsetningu. Að sama skapi
voru menn eins óheppnir og hægt
var með Skaftárelda,“ sagði Sig-
urður Reynir. »12
Heppni með stað-
setningu og tíma-
setningu gossins
Holuhraun Mikið
hraun og gas.