Morgunblaðið - 21.07.2015, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 21.07.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2015 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Sala á nauta, svína- og hrossakjöti dróst saman undanfarið ár sam- kvæmt tölum frá Bændasamtökum Íslands. Hins vegar ber að hafa í huga að verkfall dýralækna sem stóð í tæpar tíu vikur og lauk í júní setti strik í reikninginn og skekkir út- reikningana þar sem nær engum dýrum var slátrað á þeim tíma. Sala á lamba- og alifuglakjöti jókst á sama tímabili, þrátt fyrir að verk- fallið hafi haft talsverð áhrif á slátr- un alifugla. Verkfallið hafði ekki áhrif á lambaslátrun og jókst salan um 5,8% síðastliðið ár, m.a. fyrir til- stilli minna framboðs af öðrum kjöt- vörum á meðan á verkfallinu stóð. Hörður Harðarson, framkvæmda- stjóri Svínaræktendafélags Íslands, segir að þegar tekið sé mið af fyrstu fjórum mánuðum þessa árs hafi sala á svínakjöti aukist lítillega. „Fram- leiðslan jókst lítillega. Hins vegar eru tölur um árlega sölu ekki alveg marktækar vegna verkfallsins. Að auki tekur nokkurn tíma að koma því út sem safnaðist fyrir í verkfall- inu,“ segir Hörður, en svínum var slátrað og kjötið fryst á undanþágu vegna velferðarsjónarmiða í verk- fallinu. 8,3% samdráttur í kjötsölu Af tölunum í meðfylgjandi töflu má sjá að heildarsamdráttur í sölu kjötafurða var upp á 8,3% á síðasta ársfjórðungi en þá gætti áhrifa verk- fallsins. Þegar horft er yfir árs- tímabil má sjá að sala á hrossa- og nautakjöti hefur dregist mest sam- an, eða um 13,8% og 12,4%. Þó verk- fallið skekki tölurnar nokkuð er ljóst að samdráttur hefur orðið, óháð verkfallinu. „Það var minni slátrun á hrossum nú því bændur áttu meira hey en í fyrra. Eins var miklu slátr- að árið á undan auk þess sem verk- fallið hafði áhrif,“ segir Andrés. Mjólk í stað nautakjöts Þá bendir hann á að sala á hrossa- kjöti á Rússlandsmarkað hafi fallið niður í kjölfar þess að athugasemdir voru gerðar við slátrunina af eftir- litsmönnum. Að sögn hans hafði verkfallið minni áhrif á nautakjöts- slátrun þar sem alla jafna sé minna framboð af kjöti til slátrunar á þeim tíma sem verkfallið stóð yfir. Minni sala nautakjöts stafi ekki síst af því að tekjur af mjólkurframleiðslu hafa aukist. Því fara nautgripir síður til slátrunar. Minni nauta- og hrossakjötsala  Verkfall skekkir tölur um kjötsölu  Meira selt af lambi og alifuglum Sala á kjötafurðumfrá 1. júlí 2014 til 1. júlí 2015 Heimild: Bændasamtök Íslands Afurð Ár Mánuður Ársfjórð. Ár Hlutdeild Alifuglakjöt 7.985.052 10,3% -2,9% 1,9% 33,0% Hrossakjöt 541.417 -22,8% -6,4% -13,8% 2,2% Nautakjöt 3.198.939 12,8% -37,8% -12,4% 13,2% Sauðfé * 6.774.317 12,7% -1,5% 5,8% 28,0% Svínakjöt 5.687.933 40,7% -5,7% -4,8% 23,5% Samtals kjöt 24.187.658 18,4% -8,3% -1,3% * Sala á sauðfé p.r. mánuð er sala frá afurðastöðum til kjötvinnsla og verslana. 24,2 tonna heildarkjötsala frá 1. júlí 2014 til 1. júlí á þessu ári. 8,3% samdráttur í kjötsölu á síðasta ársfjórðungi. 5,8% aukning í sölu á lambakjöti frá 1. júlí 2014 til 1. júlí 2015. ‹ KJÖTSALA › » Jón Birgir Eiríksson jbe@mbl.is Hans Herbertsson, framhaldsskóla- kennari við viðskipta- og hag- fræðideild Borgarholtsskóla og vinningshafi í áskrifendahapp- drætti Morgunblaðsins, sótti vinn- ing sinn, Mercedes Benz B-Class bifreið, í bílaumboðið Öskju á Krókhálsi 11, síðdegis í gær. Með í för voru eiginkona hans, Aldís Daníelsdóttir og barnabarn, Katla Sigurþórsdóttir. Áskrifendahappdrættið var sam- starfsverkefni Morgunblaðsins og Öskju í þetta skiptið og þeir Har- aldur Johannessen, ritstjóri Morg- unblaðsins, og Jón Trausti Ólafs- son, framkvæmdastjóri Öskju, afhentu bifreiðina með viðhöfn í bílaumboðinu. Hans hefur verið áskrifandi Morgunblaðsins í meira en 40 ár og var hæstánægður með útkomu happdrættisins, en útdrátturinn kom honum algjörlega í opna skjöldu. Hefur aldrei unnið neitt áður „Þetta er alveg gjörsamlega frá- bært. Mig hefur aldrei dreymt um annað eins,“ sagði hann. „Ég var mjög hissa. Ég hef aldrei unnið neitt, svo þetta kom verulega á óvart. Ég bjóst ekki við þessu sím- tali,“ bætti hann við, aðspurður um viðbrögðin þegar honum var til- kynnt um að hann hefði hlotið vinn- inginn. „Þetta er flottur bíll. Það getur vel verið að ég skipti honum í dýr- ari bíl frá Benz,“ sagði hann. Ekki veitti af stærra skotti svo golfsett og kerrur kæmust fyrir, en golfið er helsta áhugamál þeirra Aldísar. Þær Aldís og Katla voru ekki síður ánægðar með gripinn og hlökkuðu til að prufukeyra nýja bíl- inn. Aðspurður hvort til standi að ferðast á nýja bílnum svaraði Hans því játandi. „Ætli maður elti ekki sólina, eins og allir Íslendingar gera,“ sagði hann, áður en hann ók glaðbeittur af stað á nýja bílnum. Gott samstarf Áskrifendahappdrættið hófst 29. apríl en dregið var út 17. júlí. Jón Trausti, framkvæmdastjóri Öskju, ræsti þá forrit sem dró út nafn vinningshafans þar sem nafn Hans kom upp úr pottinum. „Við erum mjög ánægð með hvernig sam- starfið lukkaðist. Þessi tvö vöru- merki eiga vel saman, Mercedes Benz og Morgunblaðið. Morgun- blaðið er elsta dagblað á Íslandi og Mercedes Benz elsti bílaframleið- andi í heimi og smellpassa því sam- an í samstarfi, Mogginn rúmlega 100 ára og Mercedes að verða 130 ára, “ sagði Jón Trausti og bætti því við að bíllinn hafi endað á góðu heimili. Því fari allir ánægðir út úr samstarfinu. Gæðagripur í vinning Jón Trausti sagði mikla grósku í sölu Mercedes Benz-bifreiða á Ís- landi. „Íslendingar eru hrifnir af þessu merki. Það er komin mikil breidd í línuna og breitt verðbil,“ sagði hann og bætti við að bílarnir séu fjölbreyttir og af öllum stærð- um og gerðum, þeir henti því ótal mörgum. Bifreiðin sem var til vinnings er af gerðinni Mercedes Benz B-Class og er 2015 árgerð. Hún er fimm dyra og útbúin fjórhjóladrifi og 7Gtronic-sjálfskiptingu. Í bifreið- inni eru einnig skynjarar sem skynja svefnþörf ökumanns ásamt árekstursskynjurum. Að auki er bifreiðin útbúin nýj- ustu tækni í umhverfisvænum akstri, svonefndri Blue Efficiency, sem sparar eldsneyti til góða fyrir ökumann og umhverfi. Verðmæti bílsins er um sjö milljónir króna. Happdrætti í þriðja sinn Allir áskrifendur Morgunblaðsins komu til greina sem vinningshafar í happdrættinu um Benz-bifreiðina. Þetta var í þriðja skiptið í vetur sem áskrifendum blaðsins gafst kostur á að vinna glæsilega bifreið. Hinn 20. febrúar unnu hjónin Einar Guðmundsson og Ásdís Svava Hrólfsdóttir bifreið af gerð- inni Volkswagen e-Golf og 22. apríl var Freyja Jónsdóttir svo dregin úr pottinum, en hún fékk í vinning bifreið af gerðinni Toyota Corolla. Einhvern tímann er allt fyrst  Heppinn vinningshafi í áskrifendahappdrætti Morgunblaðsins vann Mercedes Benz-glæsibifreið  Hefur verið áskrifandi að Morgunblaðinu í meira en 40 ár  „Þetta er alveg gjörsamlega frábært“ Morgunblaðið/Eggert Vinningshafi F.v. Haraldur Johannessen, Aldís Daníelsdóttir, Katla Sigurþórsdóttir, vinningshafinn Hans Herbertsson og Jón Trausti Ólafsson. „Með þessum glæsilega Mercedes Benz-bíl lauk þriðja bílahappdrætti Morgunblaðsins á árinu. Við erum mjög ánægð með hvernig til hefur tekist og finnum að ánægjan er einnig mikil meðal áskrifenda og þeirra fyrirtækja sem við höfum unnið þetta með. Vegna þess hversu vel hefur tekist til höf- um við ákveðið að halda leiknum áfram og munum eftir um það bil mánuð kynna næsta vinning, sem dreginn verður út í haust. Þar verður einnig um að ræða mjög spennandi bílavinning, en til að halda spennunni í leiknum ætlum við að bíða aðeins með að segja frá því hvaða bíl um er að ræða,“ segir Haraldur Johannessen, ritstjóri Morgunblaðsins og framkvæmda- stjóri Árvakurs, um framhaldið á áskrifendahappdrætti Morgunblaðsins. Leikurinn heldur áfram MIKIL ÁNÆGJA ÁSKRIFENDA OG FYRIRTÆKJA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.