Morgunblaðið - 21.07.2015, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2015
Ástfangnir vegfarendur við Tjörnina hafa sett
upp lása á brúna yfir í Ráðhúsið. Borgarstarfs-
menn höfðu áður tekið lásana niður þar sem þeir
þóttu orðnir umhverfislýti. Þessir lásar hafa not-
ið vinsælda meðal elskenda sem hafa viljað tjá
ævarandi ást sína með þessum hætti.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Ástarlásarnir komnir upp aftur við Tjörnina
VIÐTAL
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
„Nú skiptir mestu máli að heyra með
hvaða hætti bregðast á við þessu
ástandi,“ segir Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir, formaður velferðarnefndar
Alþingis, en nefndin hefur boðað til
fundar í dag klukkan 13 til þess að
ræða viðbrögð stjórnvalda vegna upp-
sagna heilbrigðisstarfsfólks og kjara-
mála heilbrigðisstétta.
Á fundinn hafa verið boðaðir heil-
brigðisráðherra, landlæknir og for-
stjóri Landspítalans.
Sú staða sem nú er uppi í kjaradeil-
unni er að sögn Sigríðar Ingibjargar
grafalvarleg og getur hún um leið haft
ófyrirsjáanlegar afleiðingar í för með
sér. „Velferðarnefnd hefur í verkföll-
um heilbrigðisstétta fyrst og fremst
horft til þess með hvaða hætti þau hafa
haft áhrif á heilbrigðiskerfið. Nú
stöndum við hins vegar frammi fyrir
því að deilan er komin í erfiðan hnút
sem leitt getur til gríðarlegs missis
innan kerfisins,“ segir Sigríður Ingi-
björg.
Leysir ekki vandann
Til þess að bregðast við vandanum
hafa stjórnvöld meðal annars skoðað
þann möguleika að fá hingað til lands
erlenda hjúkrunarfræðinga. Spurð
hvort slíkt sé til þess fallið að leysa
þann vanda sem nú er uppi kveður Sig-
ríður Ingibjörg nei við.
„Það að ráða erlent fólk til starfa
leysir ekki þann vanda sem við stönd-
um frammi fyrir. Bæði getur það
reynst mjög erfitt
að finna erlent fólk
til þess að starfa
hér á landi en á
sama tíma erum
við einnig að missa
úr landi einstak-
linga með mikla
menntun og starfs-
reynslu,“ segir hún
og bætir við: „Ef
við missum þetta
fólk úr landi þá verður það ekki ein-
ungis erfitt fyrir heilbrigðiskerfið held-
ur mun það einnig leiða til langvarandi
mönnunarvanda til framtíðar.“
Heilbrigðiskerfið sett í forgang
Aðspurð segir Sigríður Ingibjörg
nauðsynlegt að auka til muna þá fjár-
muni sem renna til heilbrigðiskerfisins.
„Íslendingar eru allir sammála um að
heilbrigðiskerfið eigi að vera í for-
gangi. Að undanförnu hafa ríkisstjórn-
arflokkarnir barið sér á brjóst og lýst
því yfir að búið sé að auka fjármuni inn
í heilbrigðiskerfið. Það kemur hins
vegar hlutfallslega séð ekki nóg þar
inn og því verður að auka það,“ segir
hún.
Þá segir Sigríður Ingibjörg einnig
umhugsunarvert hvernig stjórnvöld
hafa talað til þeirra heilbrigðisstarfs-
manna sem sagt hafa upp að undan-
förnu. „Ríkisstjórnin hefur ekki af
neinni alvöru tekið á þessari deilu. Tal-
að hefur verið niður til þessara stétta
og það gefið í skyn að um sé að ræða
einhvers konar óeðlilega frekju af
þeirra hálfu og virðist því algerlega
skorta skilning á mikilvægi þessara
stétta,“ segir hún.
Langvarandi vandi blasir við
Heilbrigðisráðherra, landlæknir og forstjóri Landspítala á fund velferðarnefndar í dag Skilning
skortir á mikilvægi heilbrigðisstétta, segir formaður nefndarinnar Kjaradeilan komin í erfiðan hnút
Sigríður Ingibjörg
Ingadóttir
2012,“ sagði heilbrigðisráðherra þeg-
ar borin var undir hann umfjöllun í
Sunnudagsmogganum.
Í blaðinu sagði Ragnheiður Har-
aldsdóttir, forstjóri Krabbameins-
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Kristján Þór Júlíusson heilbrigðis-
ráðherra segir að kostnaðarþátttaka
sjúklinga hér á
landi sé komin
undir 19%, sam-
kvæmt upplýsing-
um frá Hagstofu
Íslands.
„Þessar stað-
hæfingar Ragn-
heiðar Haralds-
dóttur stangast á
við það sem Hag-
stofa Íslands hef-
ur gefið út, um að
kostnaðarhlutdeild sjúklinga hér á
landi hafi farið lækkandi frá árinu
félagsins, að það væri mjög kostnað-
arsamt að greinast með krabbamein,
„og hagur krabbameinssjúklinga hef-
ur farið versnandi á Íslandi“.
Þar kom fram að kostnaður sjúk-
linga vegna krabbameins gæti orðið
talsverður hér á landi, en á hinum
Norðurlöndunum og á Bretlandseyj-
um tækju sjúklingar engan eða afar
takmarkaðan þátt í fjármögnun með-
ferðarinnar.
Hæst var hlutdeildin 2010
Kristján Þór segir að hæst hafi
hlutdeild sjúklinga orðið 19,7% árið
2010, en þó þátttaka sjúklinga sé nú
komin undir 19% af heildarkostnaði
sé áfram stefnt að því að hlutfallið
lækki, ekki síst vegna þess að kostn-
aður einstakra sjúklinga geti að
óbreyttu kerfi orðið óheyrilega hár.
Kristján Þór segir að á sínum veg-
um sé nú í gangi vinna, sem sé grund-
völluð á vinnu, sem Pétur Blöndal
heitinn, alþingismaður, hafi leitt. „Ég
er að vonast eftir því að við verðum
með tillögur til breytinga, sem lækki
enn frekar kostnaðarþátttöku sjúk-
linga í heilbrigðiskerfinu, öðru hvor-
um megin við næstu áramót,“ sagði
Kristján Þór Júlíusson.
Hlutdeild sjúklinga lækkar
Áfram er unnið
að lækkun kostn-
aðar sjúklinga
Morgunblaðið/Ómar
Landspítalinn Kristján Þór Júlíusson heilbrigðisráðherra segir unnið að til-
lögum sem lækki kostnaðarþátttöku sjúklinga í heilbrigðiskerfinu.
Kristján Þór
Júlíusson
Á morgun, 22. júlí, verða fjögur ár
liðin frá hryðjuverkaárásunum í
Ósló og Útey. Ungir jafnaðarmenn
ætla að minnast fórnarlamba
hryðjuverkaárásanna annað kvöld
klukkan 20. Athöfnin fer fram við
Minningarlundinn í Vatnsmýri og
eru allir velkomnir.
Sprengjutilræðið við ríkisstjórn-
arbyggingarnar í Osló hinn 22. júlí
árið 2011 varð átta manns að bana.
Þá féllu 69 ungliðar norska Verka-
mannaflokksins í skotárás hryðju-
verkamannsins í Útey. Ungir jafn-
aðarmenn hafa staðið fyrir
minningarathöfn á hverju ári til að
minnast fallinna félaga í ungliða-
hreyfingu norska Verkamanna-
flokksins, AUF, að því er segir í
fréttatilkynningu frá Ungum jafn-
aðarmönnum.
Gengið verður frá Norræna hús-
inu og niður að Minningarlund-
inum, þar sem þeirra sem létust
verður minnst. Allir eru velkomnir
og gestir eru hvattir til að koma
með rósir.
Minningarathöfn
vegna hryðjuverk-
anna í Ósló og Útey
Útey og Ósló Frá vígslu minningarlunds-
ins í Vatnsmýri um atburðina árið 2011.
Hæstiréttur þingfesti mál
Bandalags háskólamanna
(BHM) sl. föstudag eftir að BHM
áfrýjaði niðurstöðu Héraðs-
dóms Reykjavíkur. Hafði dóm-
urinn hafnað kröfu BHM um að
félagsmönnum væri heimilt að
efna til verkfalla og að ákvörðun
gerðardóms réði ekki kjörum
þeirra. Ber gerðardómi að ljúka
störfum fyrir 15. ágúst nk.
Eigi síðar en
15. ágúst
GERÐARDÓMUR UM BHM
Íslenskar stúlkur
mega ekki heita
Eileithyia en
mega hins vegar
fá nafnið Eileiþía.
Beiðni um báða
rithættina barst
mannanafna-
nefnd og var úr-
skurðað um málið
á fundi nefnd-
arinnar 9. júlí.
Nafnið Eileithyia telst ekki uppfylla
skilyrði mannanafnanefndar varð-
andi hefð, en vegna þess máls ákvað
nefndin að úrskurða nafnið Eileiþía
á mannanafnaskrá sem eiginnafn.
Á sama fundi var einnig tekin
fyrir beiðni um nafnið Remek. Nið-
urstaða nefndarinnar var að nafnið
tekur íslenskri beygingu í eign-
arfalli, Remeks og telst að öðru
leyti uppfylla ákvæði laga um
mannanöfn. Nafnið er því sam-
þykkt og fært á mannanafnaskrá.
Þá samþykkti mannanafnanefnd
einnig kvenmannsnafnið Ilse.
Mega heita Eileiþía,
Remek og Ilse
Skírn Hvað mega
börnin heita?