Morgunblaðið - 21.07.2015, Qupperneq 9

Morgunblaðið - 21.07.2015, Qupperneq 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2015 Kjólar á ÚTSÖLU 30-50% afsláttur Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook UTSALA UTSALA Óvissa ríkir um hver ber ábyrgð á viðhaldi beit- arhólfs í nágrenni Voga á Vatnsleysuströnd, sem tómstundabændur hafa notað um árabil. Girð- ingin er nú orðin götótt, en bann er við lausa- göngu fjár í sveitarfélaginu. Virgill Scheving Ein- arsson, landeigandi á Efri-Brunnastöðum, segir sveitarfélagið hafa vanrækt skyldu sína til að við- halda beitarhólfinu. Afleiðingar vanrækslunnar séu að fé hafi ítrekað leitað upp á Reykjanes- braut með tilheyrandi hættu fyrir ökumenn. Hann segir forsöguna liggja í samkomulagi milli Voga og Vegagerðarinnar frá árinu 1991. „Vegagerðin lét verktaka girða hólfið á sínum tíma og í kjölfarið var sett reglugerð af hálfu sveitarfélagsins um bann við lausagöngu fjár. Sveitarfélagið hefur alltaf haldið því fram að Vegagerðin eigi að halda girðingunni við en Vegagerðin hefur neitað. Þegar tilkynnt er um laust fé á Reykjanesbraut er bændum gert að sækja það,“ segir hann. Virgill heldur því fram að reglugerðin sé í raun úr gildi fallin. „Það er ekki hægt að semja við bændur um að banna lausagöngu með því að skaffa þeim beitarhólf og standa síðan ekki við gerða samninga,“ segir hann. Hyggst óska eftir samstarfi við bændurna Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri Voga, segir rétt að sveitarfélagið hafi ekki haldið girðingunni við og bætir við að hvergi komi fram að sveitarfélag- ið beri ábyrgð á beitarhólfinu. Ásgeir segir ekki gott að segja til um hver beri hana, en miðað við samkomulag og samninga gegnum tíðina bendi ekkert til þess að sveitarfélagið beri ábyrgð. „Í haust var því sjónarmiði velt upp að það yrði efnt til samstarfs milli sveitarfélagsins og bændanna um beitarhólfið,“ segir hann. Málið hefur ekki þokast síðan í haust, en Ásgeir hyggst senda tómstundabændunum bréf vegna þess og óska eftir samstarfi um hvernig viðhaldi girðing- arinnar skuli háttað í framtíðinni. jbe@mbl.is Óljóst hver ber ábyrgðina  Sauðfjárbændur og bæjaryfirvöld í Vogum greinir á um viðhald beitarhólfs Morgunblaðið/Árni Sæberg Vogar Beitarhólfið hefur verið bitbein um árabil. Alþjóðlega Gídeonfélagið fagnar því um þessar mundir að félagið hefur gefið tvær milljónir eintaka af Nýja testamentinu og biblíunni um allan heim. Sérstök viðhafnar- biblía er gefin út í tilefni af því og afhent þjóðhöfðingjum í öllum þeim löndum sem félagið starfar í, kjósi þeir að þiggja hana. Guðmundur Örn Ólafsson, for- seti Gídeonfélagsins á Íslandi, og Ragnheiður Harpa Arnardóttir, forseti landssambands kvenna- deilda Gídeon, afhentu Ólafi Ragn- ari Grímssyni áletraða viðhafn- arbiblíu í gær. Biblían er svört með áletrun til minnis um tíma- mótin auk þess sem nafn Ólafs er ritað inn í hana. Guðmundur segir þau hafa átt góða kaffistund með Ólafi og spjallað um félagsstarfið og stöðu kristninnar á Íslandi. Þrátt fyrir neikvæða umfjöllun oft á tíðum segir Guðmundur kirkjustarf á Ís- landi í miklum blóma. „Sé talið saman allt það fólk sem stundar fé- lagsstarf á vegum kirkjunnar er alveg ljóst að þar er um að ræða gríðarlega öflugt félag.“ Stefna á 400 þúsund Gídeonfélagið á Íslandi var stofnað árið 1945 og samkvæmt tölum Guðmundar hefur félagið hér gefið rúmlega 390 þúsund bibl- íur í skóla, á hótel, sjúkrahús og víðar. Guðmundur segir stutt að bíða eftir næsta áfanga. „Við náum 400 þúsundum í vetur. Sennilega í kringum áramótin.“ Starf Gídeonfélaganna á heims- vísu er afar umfangsmikið en Guð- mundur segir félagið gefa tvær biblíur víðs vegar um heiminn á hverri sekúndu. Það tók félagið 93 ár að dreifa fyrsta milljarði eintaka. „Sami milljarður í viðbót tók fjórtán ár,“ segir Guðmundur og bætir við: „Það tekur sama tíma eða styttri að gera það aftur.“ bso@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Gídeonfélagið fagnar tveimur milljörðum gefinna biblía Gefa tvö ein- tök á hverri sekúndu Bessastaðir Ragnheiður Harpa Arnardóttir og Guðmundur Örn Guð- jónsson afhentu Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, biblíuna. Ferðaþjónustufyrirtækið Ferða- miðlun ehf. harmar að ferðamenn á vegum fyrirtækisins hafi misboðið ábúendum á Skjöldólfsstöðum á Jökuldal sl. laugardag með því að létta á sér á landareigninni þegar hópferðabifreið gerði þar stutt stopp til að taka eldsneyti. Ábúendur hafa þegar verið beðnir afsökunar. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Ferðamiðlun ehf. sendi frá sér í gær. Þar er því alfarið vísað á bug að fararstjóri hafi beint farþegum inn á landareignina í fyrrgreindum til- gangi. „Ferðir á vegum Ferðamiðl- unar ehf. eru alltaf skipulagðar þannig að farþegar komist á salerni með reglulegu millibili. Sökum elds- neytisskorts var þarna brugðið út af venjunni.“ Þar segir ennfremur að þetta atvik varpi ljósi á stærra vandamál, sem ítrekað hefur ratað í fréttir að undanförnu, en það er við- varandi skortur á salernis- og hrein- lætisaðstöðu fyrir ferðamenn um allt land. „Yfirvöld ferðamála verða að opna augun fyrir knýjandi þörf um úrbæt- ur,“ segir í yfirlýsingunni. Ferðamenn Þeim hefur fjölgað mjög hér á landi undanfarin ár. Báðu ábúendur afsökunar Veðurstofan gerði í veðurspá í gær- kvöld ráð fyrir norðan- og norð- austanátt 8-15 m/s í dag en 5-10 m/s um landið norðaustanvert. Skýjað verður með köflum en þurrt að mestu vestantil, rigning suðaustanlands en þokuloft fyrir norðan. Síðdegis í dag á að stytta upp suðaustantil á landinu og létta til suðvestanlands. Spáð er 5-16 stiga hita og að hlýjast verði fyrir sunnan í dag. Á morgun er gert ráð fyrir 4-15 stiga hita og að hlýjast verði suð- vestantil á landinu. Þá á að vera norðaustlæg átt, 5-13 m/s, skýjað og vætusamt norðaustan- og aust- anlands en úrkomulítið á Vest- fjörðum og bjartviðri sunnan jökla. Spáð er 5-16 stiga hita í dag á landinu „Þær undirtektir sem þessi undir- skriftasöfnun hlaut sýnir hve brýnt þjóðin metur þetta málefni og ætti því jafnframt að verða Al- þingi hvatning um að setja inni- haldsríkt ákvæði um þjóðareign á auðlindum í stjórnarskrána,“ sagði Bolli Héðinsson hagfræðingur. Hann er einn af forsvars- mönnum undirskriftasöfnunar- innar þjóðareign.is en í gær af- hentu þeir formlega forseta Íslands undirskriftalista með nöfnum 53.571 einstaklinga. Markmið söfnunarinnar var að skora á forsetann að vísa í þjóð- aratkvæðagreiðslu hverjum þeim lögum sem útdeildu notkunarrétti á fiskveiðiauðlindum til meira en eins árs, en áform voru uppi á nýyfirstöðnu þingi um að útdeila kvóta á makríl til nokkurra ára í senn. Vísaði til fyrri yfirlýsinga Ólafur Ragnar Grímsson sagði við tilefnið að þetta væri í fyrsta sinn sem hann fær afhentan und- irskriftalista einungis á rafrænu formi. Hann ítrekaði fyrri orð sín, frá 2013 þegar skorað var á hann að vísa lögum um veiðigjald í þjóð- aratkvæði, en hann staðfesti í kjölfarið þau lög. Þá sagði hann lögin ekki fela í sér grundvall- arbreytingu á nýtingu fiskveiði- auðlinda og vildi ekki skapa því fordæmi að slík lög væru sett í þjóðaratkvæði. Sýnir mikla réttlætiskennd Að svo stöddu liggja engin frumvörp fyrir um þetta á Alþingi svo ekki er tilefni nú til sérstakra aðgerða en Ólafur sagðist þó ætla að halda upp á undirskriftirnar. Ólafur sagði þann mikla fjölda sem skrifaði undir yfirlýsinguna dæmi um þann mikla vilja og rétt- lætiskennd sem þjóðin hefur í þessu málefni. Ýmsir hefðu í gegn- um tíðina dregið í efa gildi mál- skotsrétt forsetans. Hann hefði beitt honum þrisvar í sinni forseta- tíð, í fyrsta skiptið hefðu lögin ver- ið dregin til baka og í þeim seinni hefði þjóðin staðfest öndverðan vilja sinn og þingsins í atkvæða- greiðslu. Þessi undirskriftasöfnun og aðr- ar viðlíka séu hluti af því að þróa þennan málskotsrétt en hann hefði nú fest sig í sessi og væri virkur. Ólafur benti ennfremur á það að hann væri og hefði verið talsmaður þess að setja ákvæði í stjórnarskrá um þjóðareign auðlinda. Krefjast skýrs eignarhalds  Undirskrifta- listi Þjóðareign.is afhentur forseta Morgunblaðið/Árni Sæberg Bessastaðir Bolli Héðinsson ásamt öðrum forsvarsmönnum söfnunarinnar afhenti forsetanum undirskriftalistann.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.