Morgunblaðið - 21.07.2015, Side 11
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Fatahönnuðurinn Petra Bender ætlar að láta drauma sína rætast og hanna og framleiða fatnað sem er innblás-
inn af íþróttum, enda sjálf mikil hlaupakona og áhugamanneskja um tísku og tískustrauma frá unga aldri.
Hugmynd á hlaupum
Í gegnum vinnu sína fyrir Nike á
hönnunarstofunni í London kynntist
Petra hinum sístækkandi hlaupahópi
Run Dem Crew, sem ekki aðeins
hleypur um London þvera og endi-
langa heldur leggur einnig land undir
fót í New York, Amsterdam, Berlín
og fleiri borgum. Og Petra reimaði
oft á sig hlaupaskóna og slóst með í
för.
„Í hópnum er mikið um skapandi
og skemmtilegt fólk, sem finnst gam-
an að hittast, skiptast á hugmyndum
og hlaupa saman. Við ferðuðumst út
um allan heim, djömmuðum töluvert
og ég endaði oftar en ekki í hlaupa-
gallanum úti á skemmtanalífinu,“
segir Petra.
Þar sem henni fannst ekkert
sérstaklega gaman að vera úti á lífinu
í íþróttamúnderingu, velti hún fyrir
sér að hanna fatnað sem væri ekki að-
eins þægilegur og gjaldgengur til
íþróttaiðkana heldur líka smart og
töff alltaf og alls staðar.
„Út frá þessum pælingum kvikn-
aði hugmyndin að WERQ by Petra
Bender, hágæða fatalínu innblásinni
af virkum og á stundum djörfum lífs-
stíl. Fatnaði með einföldu sniði sem
fólk tæki sig vel út í á hreyfingu jafnt
á íþróttavellinum, skemmtanalífinu
sem og í hversdagslífinu.“
Bakgrunnur í prenti og
mynstri
Bakgrunnur Petru er í prent- og
mynsturgerð og því leggur hún mikla
áherslu á hvort tveggja í fatalínu
sinni. Þótt flíkurnar séu ennþá á
teikniborðinu, gefur innblástursverk/
myndband sem hún vann og birtir á
vefsíðu Karolina Fund, tóninn fyrir
Werq-fatalínuna og þann lífsstíl og
andrúmsloft sem hún gerir sér í hug-
arlund að fólk í slíkum flíkum lifi og
hrærist í.
Áþreifanlegan forsmekk í formi
bómullarbola með áletruninni Wel-
come Werq eða bananalímmiða fá
þeir sem styrkja hana með fram-
lögum. „Ég ætla ekki aðeins að fram-
leiða föt heldur líka taumerki með
áletrun eða mynd til að strauja á föt.“
Frá því Petra fluttist aftur til Ís-
lands hefur hún unnið sjálfstætt að
ýmsum verkefnum fyrir 66° Norður,
True North, Grapevine o.fl. Ef söfn-
unin á Karolina gengur eftir sér hún
fram á að geta gefið sér meiri tíma í
nánari útfærslur við að koma fatalínu
sinni í framleiðslu og síðan á markað.
„Ég stefni á að opna netverslun
næsta sumar,“ segir hún.
Innblástursverk Myndbandi sem gefur tóninn fyrir Werq-fatalínu Petru og
þann lífsstíl og andrúmsloft sem fólk í slíkum flíkum lifir og hrærist í.
Nánari upplýsingar: www.karol-
inafund.com/project/view/985
„Við ferðuðumst út um
allan heim, djömmuðum
töluvert og ég endaði
oftar en ekki í hlaupa-
gallanum úti á skemmt-
analífinu.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2015
...með nútíma
svalalokunum
og sólstofum
Skútuvogur 10b, 104 Reykjavík, sími 517 1417, glerogbrautir.is
Opið alla virka daga frá 9-17 og á föstudögum frá 9-16
• Svalalokanir
• Glerveggir
• Gler
• Felliveggir
• Garðskálar
• Handrið
Við færumþér logn & blíðu
húðuðu spjaldtölvurnar, sem reyndar
eru jafnt börnum sem fullorðnum til
frjálsra afnota meðan á dvölinni
stendur.
Synt með hafmeyju
Cheval Blanc-hótelið á eyjunni St-
Barth í Karíbahafinu getur útvegað
það næstbesta við að umbreyta börn-
unum í sjálfa Ariel úr Disney-
kvikmyndinni Litla hafmeyjan. For-
eldrar geta nefnilega bókað hafmeyj-
una Amarylis í snorkluleiðangur með
börnum sínum. Þegar þau verða
þreytt á skjaldbökum, ígulkerjum og
furðufiskum er Amarylis flautuð til
leiks fyrir rúmar fimmtíu þúsund
krónur. Ekki fylgir sögunni hvort það
sé tímakaupið.
Í dótabúð með bangsa
Bayr au Lac-hótelið í Zürich getur
komið því til leiðar að ungviðið fái að
valsa um í fylgd starfsmanns í
stærstu dótabúð borgarinnar eftir
lokun. Starfsmaður hótelsins skrýðist
bangsabúningi og hans hlutverk er að
þefa uppi flottustu leikföngin. Við-
vikið er á rúmar 400 þúsund íslenskar
krónur og ekki er ólíklegt að inn-
kaupin kosti annað eins.
Rosewood Abu Dhabi gerir betur en
að útvega barnapíu því þar á bæ gefst
foreldrum kostur á að leigja eftirlætis
Disney-fígúru ungviðisins, sem það
getur leikið við daglega fyrir 55 þús-
und krónur íslenskar á dag.
Eru ekki allir á leiðinni í Borgarfjörð?
Togvagn stytta stundirnar