Morgunblaðið - 21.07.2015, Side 13

Morgunblaðið - 21.07.2015, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2015 á fallegum, notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. ERFIDRYKKJA Perlan • Sími 562 0200 • Fax 562 0207 • perlan@perlan.is Pantanir í síma 562 0200 Comfort line plastparket, dökk eik 1215x194x8,3 mm 1.655 kr. m2 8,3 mm þykkt 8,3mm þykkt Fösuð eik, natur og dökk 1.790 kr. m2 Neytendur athugið! Múrbúðin selur al lar vörur s ínar á lágmarksverði fyr ir al la , al l taf . Gerið verð- og gæðasamanburð! Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is Reykjavík Kletthálsi 7. Opið virka daga kl. 8-18, laug. 10-16 Reykjanesbær Fuglavík 18. Opið virka daga kl. 8-18 2mm undirlag 16,5m kr 2.890 2 Gæða harðparket 8 TEGUNDIR Ljós eik 1.655 kr. m2 Forvarnadeild VÍS gerði könnun í gærmorgun á notkun ökumanna á stefnuljósum í hringtorginu í Fjarð- arhrauni, við Flatahraun. Sam- kvæmt niðurstöðum hennar gáfu 53% ökumanna ekki stefnuljós þeg- ar þeir óku út úr hringtorginu. Fyrir tveimur árum var hlutfallið 66% sem ekki gaf stefnuljós í samskonar könnun svo eitthvað virðist hafa áunnist á þeim tíma. Sigrún A. Þorsteinsdóttir er sér- fræðingur í forvörnum hjá VÍS. Hún segir mikinn mun á notkun stefnu- ljósa eftir staðsetningu. „Stefnu- ljósanotkunin er mun betri á þjóð- vegum.“ VÍS hafi rannsakað notkunina utanbæjar og á afleggj- urum á þjóðvegum sé fólk meðvit- aðra um ljósin. Margir gefi þó stefnuljós of seint, þegar þeir eru þegar byrjaðir að beygja. Farsímanotkun breytt Sigrún segir kannanir hafa verið gerðar áður á notkun ökumanna á farsímum. Þær kannanir séu orðnar marklitlar í dag. „Farsímanotkunin hefur mikið breyst. Fólk er með þetta handfrjálst, á hátalara í kjölt- unni eða bara að lesa á skjáinn. Það eru svo fáir með símann upp að eyr- anu.“ Kannanir á notkuninni og lög um hana dugi skammt í því ljósi. Hjólreiðar eru orðnar vinsælt sport meðal landsmanna og menn- ingin í kringum hjólanotkun hefur breyst mikið. Sigrún segir hraðann hafa aukist en sem betur fer hafi notkun á hjálmum færst mikið í vöxt. Fólk virðist stunda hjólreiðar frekar sem íþrótt en áður og búi sig betur í samræmi við það. Slysagildrur á stígum Þá segir hún mikið hafa áunnist í gerð hjólastíga á höfuðborgarsvæð- inu en það þyrfti að aukast frekar. „Það er eina vitið að aðskilja hjóla- stíga frá umferðargötum.“ Alvarleg- ustu slysin verði þegar bílar og hjól- reiðafólk mætast. Fólk slasist þó oft töluvert í slys- um þar sem enginn annar en hjól- reiðamaðurinn kemur við sögu. Söndugir stígar á vorin séu sér- stakar slysagildrur. Umferðin batnað en mætti vera betri Morgunblaðið/Þórður Akstur Í könnun Umferðarstofu segja þrír af hverjum fjórum skort á stefnuljósum vandamál í umferðinni, fleiri en gáfu stefnuljós í könnuninni.  Helmingur gaf ekki stefnuljós á hringtorgi í könnun VÍS  Hjálmanotkun við hjólreiðar aukist en hjólaslys algeng Jóhann Ólafsson johann@mbl.is Það virðist stöðugt vera að færast í vöxt að fólk kaupi hreint íslenskt vatn í búðum. Ferðamenn kaupa vatnið en Íslendingar virðast einnig grípa með sér flösku af kranavatni þegar það stekkur inn í búð. „Við seljum mjög mikið af vatni hjá okkur, venjulegu kranavatni,“ segir Guðmundur Hafsteinsson, verslunarstjóri 10-11 í Austurstræti, í samtali við mbl.is. Hann segir ferðamennina duglega að kaupa vatnið en þeir séu ekki einir um það. „Mér finnst ásókn Íslendinga stöðugt að aukast. Það er svolítið sérstakt en ég tek eftir því að fleiri og fleiri kippa einni flösku af vatni með sér.“ Blaðamaður tekur undir með Guðmundi að það sé sérstakt að vita til þess að Íslendingar, og út- lendingar, kaupi kranavatn. Þægilegt að kippa flösku með Aðspurður telur Guðmundur að ferðamenn viti af því að vatnið í krananum sé eins gott og það verð- ur. „Þeir virðast alveg vita það og við hér bendum þeim oft á það. Samt virðast margir einhverra hluta vegna grípa flösku með sér.“ Hann bætir við að þetta gæti að einhverju leyti snúist um þægindi. „Slatti af fólki fer í rútuferðir úr miðbænum og vill taka vatn með sér. Þá er þægi- legt að kippa einni flösku með á leið í rútuna.“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Kranavatn Verslunarstjóri 10-11 segir að talsvert sé selt af kranavatni í flöskum í versluninni. Íslendingar kaupa það ekki síður en útlendingar. Kranavatnið renn- ur út í búðunum  Íslendingar drekka meira flöskuvatn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.