Morgunblaðið - 21.07.2015, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2015
Ármúli 32, 108 Reykjavík
Sími 568 1888
www.parketoggolf.is
Glæsilegur
aðhaldskjóll
Super Control Dress
Í stærðum S,M,L,XL,2X
kr. 12.850
Póstsendum hvert á land sem er | Laugavegi 178 | Opið mán-fös 10-18 | S. 551-2070/551-3366 | www.misty.is
Vandaðir dömuskór úr leðri.
Einnig til í svörtu.
Áður kr. 16.700
NÚ kr. 8.350
Vandaðir dömuskór úr leðri.
Áður kr. 18.975
NÚ kr. 9.487
Einstaklega mjúkir og léttir dömuskór
úr leðri. Frábærir í ferðalagið!
Einnig til í ljós bláu.
Áður kr. 14.800
NÚ kr. 7.400
Einstaklega mjúkir og
léttir dömuskór úr leðri.
Frábærir í ferðalagið!
Áður kr. 15.575
NÚ kr. 7.787
Úrval af
dömuskóm úr leðri
50%
afsláttur
Hin árlega Þönglabakkamessa
verður haldin í Þorgeirsfirði, milli
Eyjafjarðar og Skjálfandaflóa,
sunnudaginn 26. júlí nk. kl. 14.
Sr. Bolli Pétur Bollason Laufás-
prestur fer fyrir söfnuði í þjónustu
og Petra Björk Pálsdóttir organisti
stýrir söng og almennri gleði. Skip-
ið Húni ætlar að sigla og fer frá Ak-
ureyri kl. 8 og frá Grenivík kl. 10.
Hægt er að panta ferð með því að
senda tölvupóst á eftirfarandi net-
fang: steinipje@simnet.is. Svo má
líka bara mæta um borð.
Fargjald er 6 þúsund kr. Land-
leiðin verður jafnframt fær og
hægt að aka að Tindriðastöðum og
ganga yfir hálsinn. Gott að fólk gefi
sér tíma í það, en það tekur um klst.
að aka og aðra klst. að ganga.
Þorgeirsfjörður Frá síðustu Þöngla-
bakkamessu. Sr. Bolli Pétur þjónaði.
Þönglabakkamessa
í Þorgeirsfirði
Menningarveisla
Sólheima 2015
heldur áfram um
komandi helgi
þegar þau Krist-
jana Stefáns og
Svavar Knútur
verða með dúnd-
urþétt dúetta-
prógram, eins og
segir í auglýs-
ingu. Aðgangur
er ókeypis og allir eru velkomnir.
Menningarveislan hófst 6. júní og
henni lýkur 22. ágúst með tón-
leikum Ragga Bjarna og Þorgeirs
Ástvalds. Meðal viðburða í veisl-
unni eru listsýningar, fjölbreytt úr-
val tónlistarviðburða og umhverf-
iskynningar.
Dúndurþétt dúetta-
prógram um helgina
Dúett Kristjana og
Svavar Knútur.
Mikilvægt er að tryggja áfram góð-
an undirbúning í raungreinum við
styttingu framhaldsskólanáms.
Þetta kemur fram í ályktun fólks
við raunvísindadeild HÍ sem segir
undirbúning í stærðfræði vera
nauðsyn, enda sé það undirstöðu-
grein í verkfræðinámi og nátt-
úruvísindum. Nám HÍ miðist við
góðan stærðfræðigrunn sem breyt-
ist ekki, hvað sem skemmra fram-
haldsskólanámi líði.
Grunnur í stærð-
fræði verði tryggður
STUTT
Framkvæmdir eru hafnar við vegagerð og brúar-
smíði við Fellsveg í Úlfarsárdal í Reykjavík. Með
þessu á að skapa vegtengingu og greiðari leiðir milli
Grafarholts, Reynisvatnsáss og Úlfarsárdals, en
þessar þrjár byggðir eru taldar eitt og sama hverfið
og mun uppbygging í þjónustu borgarinnar miðast
við það.
Um 6.200 manns búa í hverfinu í dag og bygging
skóla-, íþrótta- og menningarhúss, sem verður í Úlf-
arsárdalnum og mun þjóna byggðinni allri, hefst á
næstu mánuðum. Verkinu á að ljúka árið 2022. Þeg-
ar er nokkur starfsemi komin í Úlfarsárdalinn, svo
sem grunnskóli og íþróttavöllur Fram sem nú kemst
í alfaraleið með brúnni nýju. sbs@mbl.is
Ný brú tengir hverfi saman
Morgunblaðið/RAX
Mjólkurbúið KÚ ætlar að kæra til
Samkeppniseftirlitsins það sem það
kallar „óeðlilega“ hækkun Mjólkur-
samsölunnar á verði ógerilsneyddr-
ar hrámjólkur. Smærri úrvinnsluað-
ilar þurfi að greiða MS „sam-
keppnisskatt“ ofan á mjólkurverð og
verði fyrir fjárhagslegu tjóni.
Verðlagsnefnd búvara hefur tekið
samhljóða ákvörðun um að heild-
söluverð á mjólk og mjólkurafurð-
um, sem nefndin verðleggur, hækki
1. ágúst næstkomandi um 3,58%,
nema verð á smjöri, sem hækkar um
11,6%.
Þessu mótmælir KÚ harðlega í yf-
irlýsingu. Hækkun upp á tæp 4%
eigi sér stað á sama tíma og afurða-
verð til bænda hækki aðeins um 1,47
krónur, eða 1,77%. Smærri úr-
vinnsluaðilar þurfi því að greiða
17,44% samkeppniskatt til MS ofan á
mjólkurverð.
„Þessari hækkun er stefnt gegn
samkeppni á mjólkurvörumarkaði
og mun valda smærri fyrirtækjum
sem starfa á þessum markaði fjár-
hagslegu tjóni. Ákvörðun er með öllu
óskiljanleg þar sem mjólkurverð
hækkar aðeins um 1,47 krónur, eða
1,77%, til bænda og engin hækkun
hefur orðið á flutningskostnaði sem
er eftir sem áður 3,5 krónur á hvern
lítra. Þannig er samkeppnisaðilum
MS ætlað að greiða niður rekstur
MS enn frekar með tilheyrandi
skaða fyrir neytendur. Samkeppnis-
aðilar MS greiða því 17,44% hærra
hráefnisverð en MS sem er ólíðandi,“
segir m.a. í yfirlýsingunni.
Hækkun MS
talin óeðlileg
KÚ kærir til Samkeppniseftirlitsins
Morgunblaðið/Sverrir
Mjólk Ólafur M. Magnússon hjá KÚ,
sem áður rak fyrirtækið Mjólku.