Morgunblaðið - 21.07.2015, Qupperneq 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2015
• Fullkomin forgreiningarstöð. Forgreining segir okkur flest
allt um ástand bílsins og gæði.
• Sérhæft og vottað þjónustuverkstæði sem uppfyllir
allar ströngustu kröfur VW og Skoda.
• Hefur gæðavottun Bílgreinasambandsins
með gæðaúttekt frá BSI á Íslandi.
• Starfsleyfi til endurskoðunar frá Samgöngustofu.
Við leitumst við að vera samstíga því besta í Evrópu.
Komið, sjáið og sannfærist.
REGLULEGT VIÐHALD
HÆKKAR ENDURSÖLUVERÐ
forðastu verðrýrnun bílsins og pantaðu tíma í forgreiningu
Kletthálsi 9 • 110 Reykjavík • Sími 568 1090 • bilson@bilson.is • bilson.is
Kletthálsi 9 • Sími 568 1090
- V E R K S T Æ Ð I Ð -
Lifrarbólga C er al-
varlegur veirusjúkdóm-
ur sem getur valdið
skorpulifur og leitt til
lifrarbilunar og er ein
af ástæðum lifr-
arígræðslu þegar önnur
úrræði eru á þrotum.
Til er áhrifarík lyfja-
meðferð sem íslensk
heilbrigðisyfirvöld telja
sig ekki hafa efni á að
veita, a.m.k. nú um
stundir. Það hefur vakið athygli að
einstaklingur í þessum hópi skuli
grípa til þess úrræðis að stefna ís-
lenska ríkinu og krefjast þess að fá
slíka meðferð.
Fjöldi rannsókna hefur sýnt að
lyfjameðferð sem upprætir lifr-
arbólgu C veiruna stöðvar einnig
framrás lifrarskemmda. Þeir sem eru
með sjúkdóminn á frumstigi fá ekki
skorpulifur og þeir sem eru komnir
með skorpulifur geta haldist í stöð-
ugu ástandi til lengri tíma og þurfa
síður á lifrarígræðslu að halda.
Rúmlega 20 ár eru síðan fyrst var
farið að beita lyfjameðferð við þess-
um sjúkdómi. Í upphafi með tak-
mörkuðum árangri, en batnandi eftir
því sem árin hafa liðið. Sú meðferð
gat haft umtalsverðar og alvarlegar
aukaverkanir.
Ný tegund lyfja sem upprætir sýk-
inguna á nokkrum vikum og þolist vel
hefur komið fram á allra síðustu ár-
um og er m.a. notuð annars staðar á
Norðurlöndum. Vegna kostnaðar hef-
ur meðferðin víðast verið takmörkuð
við þann hóp sjúklinga sem eru með
umtalsverða örmyndun í lifur eða
komnir með skorpulifur.
Á Íslandi er enn stuðst er við eldri
meðferðarúrræðin sem hafa minni
virkni, tíðari og alvarlegri aukaverk-
anir og þolast mun verr af sjúklingum
en hin nýju lyf. Sérfræðilæknar í lifr-
arsjúkdómum hafa bent á nauðsyn
þess að þeir sem sýktir eru af lifr-
arbólgu C hafi aðgang að hinum nýju
meðferðarúrræðum og talsverður
hópur þeirra geti ekki beðið lengur.
Reynt hafi verið m.a. að meðhöndla
með eldri úrræðunum
án árangurs í sumum
tilfellum. Þrátt fyrir
augljósa þörf þessara
sjúklinga á frekari með-
ferð hefur reynst
ómögulegt að fá heimild
til að beita nýju lyfj-
unum. Í dag eru a.m.k.
20 til 30 einstaklingar í
brýnni þörf fyrir þessa
meðferð, en smitaðir
eru mun fleiri.
Afleiðingar
dómsmáls
Óskum sérfræðilækna í lifr-
arsjúkdómum á Landspítalanum, fyr-
ir hönd skjólstæðinga sinna í brýnni
þörf á meðferðinni, um að fá að beita
þessum nýju lyfjum, hefur verið hafn-
að af Lyfjagreiðslunefnd og Sjúkra-
tryggingum Íslands á þeirri forsendu
að ekki sé svigrúm innan áætlaðra
fjárveitinga til kaupa á svo dýrum
lyfjum. Þeirri ákvörðun hefur nú ver-
ið stefnt fyrir dómstóla. Þetta mál er
líka athyglisvert í ljósi þess að
ákvörðunin felur í sér að læknum á
Íslandi er meinað að beita gagn-
reyndum og viðurkenndum meðferð-
arúrræðum og bendir til að heilbrigð-
isþjónustan sé ekki lengur
sambærileg við það sem gerist ann-
ars staðar á Norðurlöndum. Dómur í
þessu máli, ef ákvörðun valdhafa fær
að standa, gæti því haft mun víðtæk-
ari þýðingu og fordæmisgildi en blas-
ir við í fljótu bragði.
Ljóst er að sama hver niðurstaða
málareksturs fyrir dómstólum lands-
ins verður, sú siðferðilega kvöð á heil-
brigðisyfirvöldum að veita þessum
sjúklingahópi bestu mögulega og
lífsnauðsynlega meðferð breytist
ekki. Fjárveitingar til lækninga verð-
ur að sníða að verkefnum, fremur en
reyna að knýja þörf og úrræði að
áætluðum og í þessu tilfelli vanáætl-
uðum fjárheimildum. Sveigjanleiki
verður að vera til staðar til að taka á
uppákomum sem þessum. Fyrir
læknum eru allir sjúklingahópar og
veikindi þeirra jafnrétthá. Grundvall-
aratriði er að aðgengi að við-
urkenndri og gagnreyndri meðferð sé
miðlað jafnræðisgrundvelli óháð því
hver á í hlut og hver veikindin eru. Ef
ætlun stjórnvalda er að forgangsraða
meðferðarúrræðum er mikilvægt að
það sé gert á heildrænan hátt og með
viðurkenndu samráðsferli áður en til
framkvæmda kemur. Gera má því
skóna að á það hafi skort í þessu máli.
Verði dæmt ríkinu í vil og ákvörð-
unin fær að standa á forsendum fjár-
heimilda óháð þörf hinna veiku á
slíkri lífsnauðsynlegri meðferð og
ráðleggingum lækna er sú útkoma
bæði siðferðilega og læknisfræðilega
óásættanleg og óhugsandi. Því er
mikilvægt að fjárveitingavaldið og
heilbrigðisyfirvöld sameinist um að
beita sér fyrir því að sátt náist í þessu
máli án aðkomu dómstóla og að sá
hópur sem er í brýnni þörf fyrir með-
ferðina geti hafið hana án frekari
málalenginga.
Lyfjameðferð hafnað
á forsendum fjárskorts
Eftir Reyni
Arngrímsson » Þetta er líka athygl-
isvert í ljósi þess að
ákvörðunin felur í sér að
læknum á Íslandi er
meinað að beita gagn-
reyndum og viður-
kenndum meðferð-
arúrræðum.
Reynir
Arngrímsson
Höfundur er formaður Læknaráðs
Landspítalans.
Enn og aftur ætlar
Isavia að takmarka
flugumferð til
Vestmannaeyja á
þjóðhátíðinni um
verslunarmannahelg-
ina og var það eftir
að hafa rætt við einn
hagsmunaaðila en
aðrir látnir sitja á
hakanum. Okkur var
hins vegar boðið á
fund þar sem við héldum að það
ætti að ræða þessi mál en þá var
það bara kynning á því hvernig
þetta á að vera. Fyrirhugað er að
setja upp svokallað „slotta“-kerfi
en þá verða flugmenn að panta
slott og hefur atvinnuflugið að
sjálfsögðu forgang sem við skilj-
um, en eitt skiljum við ekki að að-
eins verða átta slott á hálftíma, en
ein hreyfing tekur tvö slott og þar
af leiðandi fá átta vélar að hreyfa
sig á hverri klukkustund. Isavia
hefur gert Vestmannaeyjaflugvöll
að haftasvæði þessa helgi sem við
teljum að stangist jafnvel á við
reglugerðir þar sem flugvöllurinn í
Vestmannaeyjum er skilgreindur
sem AFIS-þjónusta. Það er alveg
klárt að verið er að gera þetta til
að neita hinum al-
menna flugmanni að
skreppa út í Eyjar
þessa vinsælu helgi,
þetta er ekki ósvipað
og að leyfa bara rútum
aðgang að Þórsmörk-
inni en ekki jeppafólki,
kannski er það bara
næst? Þegar eldgosið
var á Fimmvörðuhálsi
var mikil flugumferð á
svæðinu í óstjórnuðu
rými og var það ekk-
ert vandamál. Eins má nefna hina
frægu Oshkosh-flugsýningu í
Bandaríkjunum þar sem flugmenn
stjórna sjálfir traffíkinni og geng-
ur það mjög vel. Það virðist vera
alveg sama hvað forsvarsmenn
þessa opinbera hlutafélags gera,
þeir verða að vinna gegn almanna-
flugi.
Hentistefna Isavia
um flug á þjóðhátíð
í Vestmannaeyjum
Eftir Val
Stefánsson
Valur Stefánsson
» Þetta er ekki ósvipað
og að leyfa bara rút-
um aðgang að Þórs-
mörkinni en ekki jeppa-
fólki
Höfundur er formaður Félags
flugmanna og flugvélaeigenda.
Níu ára gömul stúlka, með áhuga á
náttúrunni, gæludýrum, fugla-
skoðun, lestri og teikningu, óskar
eftir pennavinum á aldrinum 9-11
ára. Heimilisfang hennar er:
Gillian Armstrong
415 Manor Rd. East
Toronto, ON
M4S ITI
Canada.
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is
Pennavinir óskast
Sendibréf Ýmis bréf frá ýmsum tímum,
það elsta frá 19. öldinni.
Umhyggjusami og
umvefjandi Guð, frels-
ari og eilífi lífgjafi!
Blessaðu öll þau
sem ferðast um landið
okkar í sumar. Gef að
þau fái notið náttúr-
unnar, hins óviðjafn-
anlega landslags, feg-
urðar sköpunar
þinnar. Forðaðu þeim
sem ferðast um landið
okkar frá öllu illu,
hættum, slysum og tjóni. Hjálpaðu
okkur að reynast góðir gestgjafar og
minntu ferðamennina og okkur öll á
að sýna ábyrgð og tillitssemi og leið
þau heil heim með dýrmætar minn-
ingar í farteskinu.
Blessaðu einnig þau okkar sem
takast á hendur ferðalög til fjar-
lægra landa. Forðaðu okkur einnig
frá slysum, hættum og öllu illu. Frá
hverskyns háska eða tjóni. Gefðu að
ferðalagið gangi vel og samkvæmt
áætlun. Gef að við fáum að upplifa
eitthvað nýtt og spennandi og getum
um leið notið áningar og friðar með
góðum ferðafélögum og í þakklæti til
þín sem skapar, græðir, nærir og
gefur líf. Í þakklæti til þín sem vilt
að við njótum þess besta sem þú hef-
ur skapað og gefið og lífið hefur upp
á að bjóða.
Hjálpaðu okkur öllum að minnast
ábyrgðar okkar gagnvart náung-
anum og náttúrunni hvar sem við er-
um og hvert sem við förum. Minntu
okkur á að sýna aðgát og tillitssemi í
umferðinni og í samskiptum öllum.
Vera umburðarlynd og kurteis og
sýna þeim virðingu sem á vegi okkar
verða og veita þeim að-
stoð og stuðning sem á
þurfa að halda.
Gefðu að ferðin og
fríið verði skemmtilegt
og skilji eftir bjartar og
góðar minningar.
Hjálpaðu okkur að
njóta eðlilegra samvista
í faðmi fjölskyldu, vina
eða kunningja og gef
við eignumst jafnvel
nýja kunningja og vini.
Hjálpaðu okkur að hafa
augun opin fyrir eigin
velferð og náungans og koma þeim
til hjálpar sem hjálpar er þurfi.
Leiddu okkur svo öll heil og sæl
heim að nýju.
Þess biðjum við þig, náðugi og
miskunnsami Guð. Þig sem ert höf-
undur lífsins og einn ert fær um að
viðhalda því um eilífð.
Í Jesú nafni. Amen.
Friðarkveðja
Láttu friðinn úr hjarta þínu
spretta sem ilmandi blóm svo hann
verði að angan sem smýgur og fyllir
loftið af kærleika.
Bæn fyrir fólki
á ferðalögum
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn
Þorkelsson
» Forðaðu þeim sem
ferðast frá slysum,
háska og tjóni. Gef að
þau fái notið náttúrunn-
ar, hins óviðjafnanlega
landslags, fegurðar
sköpunar þinnar.
Höfundur er rithöfundur
og aðdáandi lífsins.