Morgunblaðið - 21.07.2015, Side 26

Morgunblaðið - 21.07.2015, Side 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2015 Smiðjuvegi 9, 200 Kópavogi ■ Sími 535 4300 ■ axis.is ■ Opið: mán. - fös. 9:00 - 18:00 Fataskápur Hæð 2100 mm Breidd 800 mm Dýpt 600 mm Tegund: Strúktúr eik TIL Á LAGER S KÁPATI LB OÐ Verð58.900,-m. vsk. Ágúst Elv-arsson er31 árs í dag. Hann er fæddur og uppal- inn á Höfn í Hornafirði og starfar sem að- stoðarhótelstjóri og móttökustjóri hjá Fosshóteli Vatnajökli, sem er rétt fyrir utan Höfn. Áður var hann rekstrar- stjóri hjá Jökuls- árlóni. Ágúst er með meistara- gráðu í alþjóða- viðskiptum frá Háskólanum í Reykjavík og þar á undan lauk hann BS-gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri. „Ég held ég verði að vinna. Það er háanna- tími og fullt hótel af túristum þann- ig að ég hugsa að ég verði mestmegnis að sinna rekstrinum. Maður reynir kannski að kíkja í góðan mat til mömmu, ef tími gefst,“ segir Ágúst um hvernig hann sér afmælisdaginn fyrir sér og bætir við að nóg hafi verið að gera á hótelinu í sumar, enda hafi það verið stækkað nýlega og þetta sé fyrsta heila sumarið þar eftir stækkun og endurnýjun. Ágúst ætlar á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í sumar og hlakkar mik- ið til. „Það hef ég ekki gert síðan árið 2009, þannig að það verður mjög gaman að fara á Þjóðhátíð núna aftur.“ Þegar Ágúst er ekki að vinna hefur hann gaman af því að vera með vinum og hlusta á góða tónlist. „Þetta er náttúrlega svakaleg klisja, þetta svar,“ segir hann kíminn. „Ég hef gaman af allskonar útivist þó maður geri alltof lítið af því. Ég reyni að fara í góða fjallgöngu þegar færi gefst á, en ég er alltof latur við það. isb@mbl.is Hornfirðingur Ágúst er 31 árs í dag og hann starf- ar sem aðstoðarhótelstjóri á Fosshóteli Vatnajökli. Fæddur og uppal- inn Hornfirðingur Ágúst Elvarsson er 31 árs í dag G uðni fæddist í Reykjavík 21.7. 1965 og ólst þar upp, fyrst í Vogunum til sjö ára aldurs og síðan í Bústaða- og Fossvogs- hverfi: „Ég ólst upp í miklu Víkings- hverfi en gekk samt í Val. Pabbi hafði verið í „Mulningsvélinni“ sem var sigursælt og frægt handboltalið hjá Val á sínum tíma. Auk þess var hann formaður Vals 1977-81. Annað félag kom því ekki til greina af minni hálfu.“ Guðni var í Breiðagerðisskóla og Réttarholtsskóla, stundaði nám við MS og lauk þaðan stúdentsprófi 1984. Hann hóf síðan nám í lögfræði og var á fjórða ári í lögfræðinni þeg- ar hann fór í atvinnumennsku hjá Tottenham. Hann kom síðan heim 1993, vegna bakmeiðsla, tók þá aftur upp þráðinn í náminu og lauk emb- ættisprófi í lögfræði frá HÍ 1997. Þá lauk hann hdl-réttindindaprófi árið 2004. Guðni hóf að æfa og leika knatt- spyrnu 1974 og handknattleik með Val 1976. Hann lék í meistaraflokki Vals í handknattleik 1981-86 og í unglingalandsliðinu í handknattleik, 18 ára og yngri 1982. Guðni lék með meistaraflokki Vals í knattspyrnu frá 1983, varð Reykja- víkurmeistari 1984 og 1987, Íslands- meistari 1985 og 1987 og bikarmeist- ari 1988. Hann lék í unglingalands- liðinu í knattspyrnu 1980-85, lék 80 A-landsleiki á árunum 1984-2003 og var þá lengi fyrirliði þess. Hann var kosinn besti yngsti knattspyrnu- maðurinn af leikmönnum deild- arinnar 1984. Guðni hóf atvinnuferil sinn er hann fór til Tottenham 1988 og lék með liðinu til 1993. Hann lék síðan með Bolton 1995-2003, var lengst af fyrirliði þess liðs og var kjörinn besti varnarmaður Bolton í 130 ára sögu félagsins, árið 2005. Guðni er enn í miklu uppáhaldi hjá Bolton-mönnum sem helst vildu reisa styttu af hon- um við sinn heimaleikvang. Guðni hóf störf á Stöð 2 árið 2003 og var þar með þáttinn Boltinn með Guðna Bergs, ásamt Heimi Karls- syni og Hilmari Björnssyni á ár- unum 2003-2009. Hann starfaði hjá Landsbankanum í Lúxemborg 2004- 2005, var sjálfstætt starfandi lög- maður 2005-2008, var meðeigandi að Lögfræðistofu Reykjavíkur 2008- 2011 og hefur síðan verið sjálfstætt starfandi lögmaður. Guðni Bergsson, lögmaður og fyrrv. knattspyrnukempa – 50 ára Fjölskyldan Guðni og Elín með börnunum sínum, Páldísi Björku og Bergi í sumarfríi á Mallorca nú í sumar. Trausti varnarmaðurinn Knattspyrnukempan Guðni og Ruud van Nistelrooy í Manchestur United. Ása María Viðarsdóttir (á myndinni) hélt tom- bólu með vinkonu sinni, Álfrúnu Bergþórsdóttur. Þær söfnuðu 3.962 krón- um og gáfu til styrktar Rauða krossinum. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.