Morgunblaðið - 21.07.2015, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 21.07.2015, Qupperneq 27
Guðni hefur tekið þátt í þróun og rekstri Knattspyrnuakademíu Ís- lands frá 2003, ásamt félögum sín- um, Ásgeiri Sigurvinssyni, Arnóri og Eiði Smára Guðjohnsen og Loga Ólafssyni, en félagið hefur sinnt um- fangsmiklu námskeiðahaldi fyrir yngri knattspyrnuiðkendur, verið í samstarfi við Fjölbrautaskóla Suð- urlands með knattspyrnubraut sem starfrækt hefur verið við skólann frá 2006 og hyggur á námskeiðahald fyrir ungt knattspyrnufólk í Afríku. Guðni sat í stjórn Valsmanna hf. og sjálfeignarstofnunar knatt- spyrnufélagsins Vals og hefur að öðru leyti verið virkur í starfi Vals. Hann var formaður undirbúnings- nefndar Alþjóðaleika ungmenna sem haldnir voru í Reykjavík árið 2007 á vegum ÍTR og hefur setið í stjórn ýmissa fyrirtækja og félaga, s.s. Di- gon Games Soccer Genius. Guðni fylgist að sjálfsögðu vel með íslenska og enska boltanum og er sami gamli Valsarinn. Þau hjónin eiga sumarhús í Hálsasveit með mágkonum hans og svilum. Það er mikið notað: „Svilar mínir eru húsa- smíðameistari og arkitekt svo þeir sáu að mestu um það að koma bú- staðnum upp. Ég var nú bara hand- langari og sá um að blanda í glös og halda uppi stemningunni.“ Loks má svo geta þess að Guðni er ekki enn farinn að leika golf að neinu viti: „Ég vildi gefa félögum mínum gott forskot áður en ég tæki golfið alvarlega. En nú er komið að því svo þeir mega fara að vara sig.“ Fjölskylda Eiginkona Guðna er Elín Kon- ráðsdóttir, f. 30.3. 1963, fé- lagsráðgjafi hjá Ráðagjafar- og greiningarstöð ríkisins. Hún er dótt- ir Konráðs Davíðs Jóhannessonar, f. 12.11. 1922, d. 21.11. 1985, kaup- manns, og Páldísar Eyjólfs, f. 22.9. 1921, d. 5.1. 2011, húsfreyju. Börn Guðna og Elínar eru Bergur Guðnason, f. 6.1. 1992, nemi í fata- hönnun við Listaháskóla Íslands, en unnusta hans er Margrét Rajani Davíðsdóttir, nemi í mannfræði við HÍ, og Páldís Björk Guðnadóttir, f. 10.2. 1998, nemi við VÍ. Hálfbróðir Guðna, samfeðra, er Þorsteinn Bergsson, f. 27.6. 1964, bóndi og þýðandi að Unaósi í Hjalta- staðaþinghá. Alsystkini Guðna eru Sigríður Bergsdóttir, f. 23.11. 1966, skrif- stofustjóri, búsett í Reykjavík; Böðvar Bergsson, f. 19.9. 1970, starfsmaður við Morgunblaðið, bú- settur í Reykjavík; Bergur Þór Bergsson, f. 26.7. 1977, starfsmaður við Morgunblaðið, búsettur í Mos- fellsbæ. Foreldrar Guðna: Bergur Guðna- son, f. 29.9. 1941, d. 5.11. 2009, lög- maður og fyrrum handboltakempa með Val, og Hjördís Böðvarsdóttir, f. 22.6. 1944, d. 6.6. 2012, versl- unarmaður og húsfreyja. Úr frændgarði Guðna Bergssonar Guðni Bergsson Guðni Guðnasson trésm. á Siglufirði Pálína Jónsdóttir húsfr. á Siglufirði Ingibjörg Guðnadóttir húsfr. í Rvík Böðvar Egilsson vélstj. í Rvík Hjördís Böðvarsdóttir verslunarm. og húsfr. í Rvík Hrafnhildur Eiðsdóttir húsfr. á Ísafirði Egill Jónsson símaverkstj. á Ísafirði, af Eyrarætt Valgerður Jónsdóttir húsfr. Miðdal Sigríður Hjördís Einarsdóttir húsfr. í Rvík Guðmundur Einarsson frá Miðdal Inga Valfríður (Snúlla), húsfr. í Rvík Þuríður Sigurðard. söng- og myndlistarkona Guðni Jónsson prófessor í Rvík Lúðvík Jónsson bakaram. á Selfossi Ásta Lúðvíksdóttir húsfr. í Hafnarfirði Lúðvík Geirsson fyrrv. bæjarstj. í Hafnarfirði og alþm. Gunnar Marel skipasmiður í Eyjum Eggert Gunnarss. skipasmíðam. í Eyjum Gunnar Marel Eggertsson skipasmíðam. í Rvík Jónína Helga Jónsdóttir húsfr. í Rvík Bergur Guðnason lögfr. í Rvík Ingibjörg Gíslína Jónsdóttir húsfr. Gamla-Hrauni Jón Guðmundsson b. og form. á Gamla-Hrauni í Flóa Erró Ari Trausti Guðmundss. Einar Helgi Guðmundsson b. í Miðdal, Mosfellssveit Eiríkur Guðmundss. trésmiður í Rvík. Sigríður Eiríksdóttir hjúkrunar- kona Vigdís Finnbogad. fyrrv. forseti Jón Guðnason prófessor við HÍ Bjarni Jónsson varaform. Siðmenntar Bjarni Guðnas. prófessor emeritus og fyrrv. alþm. Tryggvi Bjarnas. lögfr. og fulltrúi á Akranesi Jón Eldon Logason byggingam. í Rvík Ingibjörg Eldon Logadóttir Logi Geirsson handboltakempa Þór Eldon tónlistarm. ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2015 Tómas fæddist á Hánefsstöðumvið Seyðisfjörð 21.7. 1923.Foreldrar hans voru Árni Vilhjálmsson útgerðarmaður og síð- ar erindreki Fiskifélags Íslands og Guðrún Þorvarðardóttir húsfreyja. Árni var bróðir Sigríðar, móður Vilhjálms Einarssonar skólameist- ara, föður Einars spjótkastara. Árni var sonur Vilhjálms Árnasonar, út- vegsb. á Hánefsstöðum, og Bjargar Sigurðardóttur, systur Stefaníu, móður Vilhjálms Hjálmarssonar, fyrrv. ráðherra. Guðrún var dóttir Þorvarðar Þorvarðarsonar, útvegs- bónda í Keflavík. Systkini Tómasar voru Vilhjálmur Árnason hrl; Þorvarður Árnason forstjóri og Margrét Árnadóttir hönnuður, móðir Valgeirs Guðjóns- sonar tónlistarmanns. Eiginkona Tómasar var Þóra Kristín Eiríksdóttir frá Norðfirði, en hún lést 2007. Þau hjón eignuðust fjóra syni; Eirík, Árna, Tómas Þór og Gunnar Guðna. Tómas stundaði nám í Alþýðu- skólanum á Eiðum, lauk stúdents- prófi frá MA 1945 og embættisprófi í lögfræði frá HÍ 1949. Hann stundaði framhaldsnám í alþjóðaverslunar- rétti við Harvard Law School í Bandaríkjunum 1951-52. Tómas rak málflutningsskrifstofu á Akureyri og var erindreki fram- sóknarfélaganna og blaðamaður við Dag. Hann var deildarstjóri varn- armáladeildar í utanríkisráðuneyt- inu 1953-60, starfrækti málflutn- ingsskrifstofu í Reykjavík ásamt Vilhjálmi, bróður sínum, 1960-72 og framkvæmdastjóri Tímans 1960-64. Tómas var framkvæmdastjóri Framkvæmdastofnunar ríkisins 1972-78 og 1983-84, alþingismaður Austurlands fyrir Framsóknarflokk- inn 1974-84, fjármálaráðherra 1978- 79, viðskiptaráðherra 1980-83 og bankastjóri við Seðlabanka Íslands 1985-93. Tómas stundaði ungur ýmsar íþróttagreinar, m.a. frjálsar íþróttir, knattspyrnu og fimleika. Hann fór mikið í fjallgöngur, á skíði, í veiði og hafði áhuga á skák. Frá miðjum aldri lék hann golf reglulega. Tómas lést 24.12. 2014. Merkir Íslendingar Tómas Árnason 85 ára Ágúst Frankel Jónasson Steinn Hansson 80 ára Ásberg Lárentsínusson Ingibjörg Ólafsdóttir Ólöf Ingimundardóttir Sigríður María Sigmarsdóttir Svava Svavarsdóttir 75 ára Aðalheiður Guðmundsdóttir Ester Valgarðsdóttir Hallbjörn Þórarinn Þórarinsson Sigurður Andrésson 70 ára Arnlaugur Guðmundsson Eiríkur S. Helgason Eyrún Þorsteinsdóttir Gunnar Gunnarsson Halldóra Sigurðardóttir Hugrún Óskarsdóttir Hulda Ósk Skarphéðinsdóttir Páll Árnason Sigríður Finnbogadóttir Sigrún Guðlaugsdóttir Sigurgeir Söebech Sigurjón Einarsson Sveinn Sigurbjarnarson Tómas K. Þórðarson 60 ára Anu Junburom Ásthildur Sigurjónsdóttir Friðsemd Rósa Magnúsdóttir Jóel Berg Friðriksson Kristinn B. Ásmundsson Páll Jónsson Sigurjón Ingvarsson Sigurlína Óskarsdóttir Þorsteinn Þorsteinsson 50 ára Anna G. Kristjánsdóttir Ásdís Brynja Jónsdóttir Chithrani Kanthi Sangaran Ellen Ólafsdóttir Gyða Breiðfjörð Svansdóttir Magnea Sturludóttir Ragnheiður Snorradóttir Sigurhans Þ. Jónsson Tryggvi Hafstein Þóra Guðrún Þórsdóttir 40 ára Ágúst Ragnar Magnússon Bozena Swiatkowska Finnur Hákonarson Guðni Rafn Gunnarsson Harpa Björgvinsdóttir Hekla Gefn Geirdal Jónasdóttir Mira Yuliawati Sigurvin Breiðfjörð Pálsson Sonja Björk Elíasdóttir Valur Freyr Steinarsson 30 ára Elin Holst Elín Rún Sizemore Fredrik Richard Salenius Helgi Jóhann Björgvinsson Minh Ngoc Nguyen Teodora Stefanova Milinkova Til hamingju með daginn 30 ára Ragnheiður ólst upp í Reykjavík, býr í London, stundaði söng- nám og lauk MA-prófi í óperusöng frá Kon- unglega listaháskólanum í Skotlandi og syngur og nemur í London. Foreldrar: Kristjana Björnsdóttir, f. 1962, kennari, og Óli Guð- mundur Guðmundsson, f. 1961, húsasmiður og at- hafnamaður. Þau búa í Reykjavík. Ragnheiður Lilja Óladóttir 30 ára Kjartan ólst upp á Akureyri, býr þar og hefur starfað við Tölvulistann á Akureyri frá því árið 2012. Maki: Jóna Maren Magnadóttir, f. 1989, hjúkrunarfræðingur. Foreldrar: Yngvi Þór Kjartansson, f. 1958, starfrækir bílverkstæði í Noregi og Svanhvít Þór- hallsdóttir, f. 1960, hús- freyja og verslunarmaður á Akureyri. Kjartan Þór Yngvason 30 ára Daníel ólst upp í Reykjavík, býr í Kópavogi, lauk atvinnuflugmanns- prófi og er flugmaður hjá Icelandair. Maki: Þórey Huld Jóns- dóttir, f. 1985, nemi. Dóttir: Sylvía Katrín Daníelsdóttir, f. 2014. Foreldrar: Friðrik Frið- riksson, f. 1958, mynda- tökumaður, og Snæbjörg Sigurgeirsdóttir, f. 1963, kennari. Þau búa í Reykja- vík. Daníel Friðriksson Hægt er að sendamynd og texta af nýjum borgara eða brúðhjónum af slóðinni mbl.is/islendingar eða á netfangið islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.