Morgunblaðið - 21.07.2015, Page 30

Morgunblaðið - 21.07.2015, Page 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2015 Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Tónlistarmenn eru náttúrlega hræðilegir í því að lýsa eigin efni. Platan mín inniheldur allavega fjögur lög...,“ segir Unnar Gísli Sigurmundsson, betur þekktur sem Júníus Meyvant, en hann gaf nýverið út ótitl- aða smáskífu sem gefur for- smekkinn af væntanlegri breiðskífu. Smá- skífan inniheldur fjögur lög, „Hail- slide“, „Color Decay“, „Gold Lac- es“ og „Signals“, en Unnar Gísli segir þau nokkuð fjölbreytt. Lögin fjögur ólík innbyrðis „Lagið „Hailslide“ er í útvarps- spilun um þessar mundir. „Color Decay“ náði líka einhverri fótfestu á landinu í fyrra, ég heyri það ennþá af og til í spilun. Það er ekki alveg gleymt. Annars eru þetta allt vel útsett lög með strengjum, lúðrum, slagverki og allskonar hljóðfærum. Ég vildi í raun bara koma elstu lögunum af væntanlegri breiðskífu út sem fyrst. Lögin eru mjög ólík inn- byrðis. „Gold Laces“ er til að mynda mjög ólíkt „Hailslide“ og „Color Decay“, það er miklu meira fólk í því ef svo mætti að orði komast,“ segir hann og bætir við að „Signals“ komi auk þess úr annarri átt. Nokkuð stór og breið- ur hópur hljóðfæraleikara ljáir Júníusi Meyvant tóna sína á smá- skífunni en Unnar segir að hann hafi sankað hópnum að sér á nokk- uð löngu tímabili. „Ég er þarna með allan skalann í strengjum og brassi. Þetta hefur að mestu verið sami stóri hópurinn í upptökunum en svo hef ég kannski verið að túra með allt öðr- um hljóðfæraleikurum,“ segir hann en á meðal hlóðfæraleikara smá- skífunnar má nefna Árna Magn- ússon, Kristofer Rodriguez Svönu- son, Samúel Jón Samúelsson og Hildi Ársælsdóttur. Tónleikaferðalög í Evrópu Talsvert var lagt í plötukápu smáskífunnar en Vinnustofa Erlu & Jónasar á heiðurinn af henni. „Þetta er blanda af ljósmynd og teikningu af mér. Jónas Valtýsson á í raun heiðurinn af kápunni ásamt konu sinni, Erlu Maríu Árnadóttur, en hún hjálpaði hon- um að teikna þetta. Þetta var mjög góð samvinna,“ segir hann. Unnar segir jafnframt að breiðskífan, sem smáskífan gefur forsmekk af, muni að öllum líkindum koma út mjög snemma á næsta ári. „Ég væri alveg til í að hún væri komin út í dag en það er fínt að gefa út smáskífuna fyrst. Breiðskífan á eflaust eftir að koma svolítið á óvart, hún verður allavega mjög frábrugðin smá- skífunni. Það er einnig mjög breiður skali á lögunum á breið- skífunni sjálfri. Á sama tíma verður þetta vonandi heilsteypt verk,“ segir hann. Júníus Meyvant hefur spilað mikið á tónleikum að undanförnu og er Unnar staddur í Danmörku um þessar mundir á tónleika- ferðalagi. Hann segir pakkann fram að jólum mjög þéttan. „Ég er að byrja núna á túr um Danmörku og Þýskaland. Síðan mun ég fara í annan stuttan túr um Danmörku í ágúst. Ég mun auk þess efna til stærri Þýska- landstúrs í september. Í nóvember mun sveitin síðan spila á tón- leikum í Frakklandi og Englandi. Það sama verður upp á teningnum í desember. Það er alltaf að koma meira og meira óvænt inn. Boltinn er því alltaf að verða aðeins stærri. Við munum svo koma fram á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum. Við ætlum að taka „Lífið er yndislegt“ tólf sinnum,“ segir Unnar kíminn áður en hann bætir við að lokum að Júníus Meyvant muni einnig halda tónleika á skemmtistaðnum Húrra í næsta mánuði. Boltinn alltaf að verða stærri  Júníus Meyvant gefur út ótitlaða smáskífu sem gefur tóninn að breiðskífu sem kemur út í vetur  Margt er á sumardagskrá listamannsins og hljómsveit hans og eru tónleikar um Evrópu á döfinni Ljósmynd/Sigríður Unnur Lúðvíksdóttir Smáskífa Tónlistarmað- urinn Unnar Gísli Sig- urmundsson, betur þekktur sem Júníus Meyvant, sendir frá sér smáskífu auk þess sem tónleikaferðalög um Evrópu eru framundan. Djasstríó skipað þeim Sigurði Flosasyni saxófónleikara, danska Hammond-orgelleikaranum Kjeld Lauritsen og trommuleikaranum Pétri Östlund kemur fram á djass- kvöldi Kex hostels í kvöld klukkan 20.30. Til stendur að flytja klass- íska djassstandarda sem hafa kom- ið út á plötum Sigurðar og Kjelds, hjá Storyville-útáfunni í Kaup- mannahöfn, Nightfall og Day- break. Allir meðlimir tríósins eru vel reyndir en Lauritsen er til að mynda með eftirsóttari Hammond- orgelleikurum Danmerkur. Þá er Pétur margreyndur djasstrymbill og lék til að mynda með hinni margrómuðu Monicu Zetterlund á sínum tíma. Sigurð þarf vart að kynna en hann er einn mikilvirk- asti djasslistamaður Íslands. Auk þess að hafa starfað víða um heim er hann einn af forystumönnum Stórsveitar Reykjavíkur. Tónleik- arnir munu standa í um það bil tvær klukkustundir með hléi og það er enginn aðgangseyrir. Djass Kjeld Lauritsen og Sigurður Flosason koma fram á Kex í kvöld ásamt Pétri Östlund. Tónleikarnir koma til með að standa í um tvær klukkustundir. Mikilvirkir djasslistamenn á Kex hosteli í kvöld

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.