Morgunblaðið - 21.07.2015, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 21.07.2015, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. JÚLÍ 2015 TILBOÐSDAGUR TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR –BARA LÚXUS www.laugarasbio.is ÍSLENSKT TAL SÝND MEÐ ENSKU TALI Í 2D SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI Í 2D OG 3D EIN STÆRSTA FJÖLSKYLDUMYND ÁRSINS POWERSÝNING KL. 10:30 Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Sími: 553-2075 www.laugarasbio.is SÝNINGARTÍMA MÁ NÁLGAST Á LAUGARASBIO.IS, MIDI.IS EINNIG Á SÍÐUNNI HÉR TIL VINSTRI - bara lúxus Íslenska kvikmyndin Hrútar er búin að vera sjö vikur á vinsældalistanum og er nú að vinna sig upp listann á nýjan leik. Myndin var í 8. sæti í síðustu viku en er komin upp í 4. sætið eftir góða helgi. Teiknimyndin Minions eða Skó- sveinarnir er enn í efsta sæti listans, aðra vikuna í röð. Myndin segir sögu skósveina Gru, sem flestir ættu að þekkja úr myndunum Despicable Me 1 og 2. Ant-Man kemur ný á listann og fer strax í annað sætið en hér er á ferð- inni nýjasta ofurhetjumyndin frá Marvel. Ant-Man var upphaflega hluti af Avengers-hópnum en af ein- hverjum ástæðum kaus Marvel ekki að kynna hetjuna til sögunnar fyrr en nú og hefur henni því verið sleppt í myndunum um Avengers. Hvort hún bætist í hópinn í næstu mynd um of- urhetjuhópinn verður fróðlegt að sjá. Næst á eftir ofurhetjumyndinni kemur mynd eftir Íslandsvininn Channing Tatum, Magic Mike XXL, og síðan íslenska myndin Hrútar. Bíólistinn 17. - 19. júlí 2015 Nr. Var síðast Vikur á listaKvikmynd Minions Ant-Man Magic Mike XXL Hrútar Inside Out Ted 2 Terminator Genisys Jurassic World Webcam Spy 1 Ný 2 7 5 4 3 6 Ný 8 2 Ný 2 8 5 4 3 6 Ný 7 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Hrútar sækja í sig veðrið Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Fyrir rúmum þremur árum hittust nokkrir vinir til að syngja saman und- ir fögrum píanóleik. Hugmyndin var að skemmta sjálfum sér og njóta þess að syngja saman en hópurinn þróað- ist smátt og smátt og í dag hafa strákarnir, sem kalla sig Olga Vocal Ensemble, farið í tónleikaferð um Frakkland og stefna á sína þriðju tónleikaferð um Ísland að sögn Pét- urs Oddbergs Heimissonar, söngvara og meðlims sönghópsins Olgu. „Undir lok ársins 2012 fékk hóp- urinn nafnið Olga og þá færðum við okkur meira í áttina að a cappella- söng. Á þessum tíma voru í hópnum Bjarni Guðmundsson, Haraldur Sveinn Eyjólfsson, Pétur Oddbergur Heimisson og Philip Barkhudarov. Olga Vocal Ensemble hélt síðan sína fyrstu tónleika í mars 2013 í sendi- ráðsbústaðnum í Brussel,“ segir Pét- ur. Sungið í Hollandi og fangelsi Strákarnir kynntust í Tónlistar- skólanum í Utrecht og voru allir í söngnámi hjá Jóni Þorseinssyni. Þeir hafa flestir lokið þar námi og segir Pétur markmiðið að geta stundað sönginn sem fullt starf. „Núna þegar námið er búið gefst okkur meiri tími til að einbeita okkur að sönghópnum en við höfum þrátt fyrir að vera allir í skóla haft töluvert að gera í vetur. Við héldum fjölda tónleika í vetur í Hollandi, við vorum með nokkra kvöldverðartónleika þar sem við þjónuðum til borðs og sung- um fyrir gesti. Við héldum einnig fjölda tónleika á vegum samtaka sem heita Live Music Now þar sem við syngjum fyrir fólk sem hefur ekki tækifæri til að sækja venjulega tón- leika. Við sungum meðal annars í fangelsi sem var ansi áhugavert fyrir okkur alla.“ Tónleikaferð þeirra um Ísland hefst í kvöld með tónleikum í Iðnó en síðan ferðast strákarnir um landið. Að því loknu fá þeir langþráð sum- arfrí en koma svo aftur saman í haust. „Æfingar hefjast aftur hjá okkur í haust þegar við komum úr sumarfríi en við munum syngja á Grachten- festival í Amsterdam, stefnum á tón- leikaferð til Bandaríkjanna og erum bókaðir á tólf Kunst in de Kamer- tónleika. Það er því nóg að gera hjá okkur á næstu mánuðum en núna er- um við að einbeita okkur að tónleika- röðinni á Íslandi.“ Fannst áhugavert að syngja í fangelsi  Keyra hringinn frá 21. júlí til 3. ágúst og syngja á vel völdum stöðum  Komu fyrst saman árið 2012 til að skemmta fyrst og fremst sjálfum sér  Stefna á tónleikaferð um Bandaríkin Söngur Strákarnir í sönghópnum Olgu hefja í dag tónleikaröð sína á Íslandi. Fyrstu tónleikar þeirra verða í Reykjavík en síðan er stefnan tekin á landsbyggðina þar sem þeir verða með nokkra tónleika.  21. júlí – Kvöldverðartónleikar í Iðnó kl. 18.00  22. júlí – Félagsheimilið Hvoll, Hvolsvelli, kl. 20.00  24. júlí – Djúpavogskirkja, Djúpavogi, kl. 20.00  26. júlí – Tjarnarborg, Ólafsfirði, kl. 20.00  27. júlí – Kvöldverðartónleikar í Iðnó kl. 18.00  29. júlí – Háteigskirkja, Reykjavík, kl. 20.00  30. júlí – Leikfimihúsið á Hvanneyri kl. 20.00  1. ágúst – Flateyjarkirkja, Flatey á Breiðafirði, kl. 18.00  27. júlí – Kvöldverðartónleikar í Iðnó kl. 18.00 Dagskrá Olgu á Íslandi TÓNLEIKAFERÐ OLGU UM ÍSLAND FRÁ 21. JÚLÍ TIL 1. ÁGÚST

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.