Morgunblaðið - 22.07.2015, Síða 2

Morgunblaðið - 22.07.2015, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2015 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Bílaleigubílar aldrei fleiri  Bílaleigubílum hefur fjölgað um 20% frá sama tíma í fyrra og eru um 15.000 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Bílaleigubílum hefur fjölgað um fimmtung á milli ára og hafa þeir aldrei verið fleiri en nú, að sögn Egils Jóhannssonar, forstjóra Brimborgar og Thrifty bílaleigu. „Floti bílaleigubíla virðist vera ríflega 20% stærri á háannatíman- um nú en hann var í fyrra. Þetta er stærsti floti bílaleigubíla sem nokkru sinni hefur verið á Íslandi,“ sagði Egill. Hann sagði bílaleigubíl- um þó hafa fjölgað ívið minna en ferðamönnum fjölgaði á milli ára. Samkvæmt tölum Samgöngu- stofu eru bílaleigubílar nú ríflega 17.500. Egill sagði vitað að villur séu í skráningunni því þegar bílaleigu- bílar séu seldir á haustin gleymi sumir að afskrá þá sem bílaleigu- bíla. Nokkuð er um bílaleigubíla fyrir aðra en ferðamenn Hann kvaðst telja að að meðtal- inni leiðréttingu vegna hugsanlegra skekkja í skráningu séu bílaleigubíl- ar nú til dags ekki færri en 15.000 talsins. Sambærileg leiðrétt tala fyrir fjölda bílaleigubíla á sama tíma í fyrrasumar er þá 12.200 bílaleigu- bílar. Bílaleigurnar kaupa langmest af nýjum bílum og nam sala til þeirra ríflega 40% af sölu nýrra bíla allt ár- ið í fyrra. Egill kvaðst telja að þetta hlutfall verði heldur lægra á þessu ári, en þó nálægt því. Özur Lárusson, framkvæmda- stjóri Bílgreinasambandsins, sagði að umræða hefði verið um það fyrir nokkru að bílar væru skráðir sem bílaleigubílar þótt þeir væru komnir í einkaeigu. Samgöngustofa hefði síðan tekið til í skráningunum og taldi hann að ástandið hefði batnað. Özur benti á að nokkuð margir bílar séu skráðir sem bílaleigubílar þótt þeir séu ekki leigðir ferða- mönnum. Þetta eru t.d. bílar í eigu bílaumboða og bílaverkstæða sem viðskiptavinir þeirra fá lánaða. Ekki náðist í Samgöngustofu í gærkvöld. Egill Jóhannsson Özur Lárusson Aðstandendur fyrirhugaðrar starfsmanna- leigu íslenskra hjúkrunarfræð- inga funduðu í gær og segir Sóley Ósk Geirs- dóttir, forsvars- maður hópsins, vinnu við und- irbúning miða vel áfram. Skráðir þátttakendur í undirbúningsvinnunni séu á bilinu 160 til 170 og komi víða að úr atvinnulífinu, sem veiti ekki af enda verkefnið stórt og flókið. Sjálfs- eignarstofnun verði sett á laggirnar um eða eftir mánaðamótin. Frekari upplýsingar liggi fyrir bráðlega. Skammtímalausn á vandanum Aukafundur var haldinn í gær í vel- ferðarnefnd Alþingis. Þar sat m.a. fyrir svörum Páll Matthíasson, for- stjóri Landspítalans. Páll sagði að ef til uppsagna kæmi yrði fyrst leitað eftir öðrum starfsmönnum í stöð- urnar. Gengi það ekki eftir yrði vænt- anlega leitað til erlendra starfs- mannaleiga, en taldi þær greinilega lakari kost. „Þær leysa vanda til skamms tíma en skammtímastarfs- fólk sem er ekki hollt vinnustaðnum og þekkir ekki til verður aldrei burð- arásinn í þjónustunni,“ sagði Páll. Í máli sínu vék hann ekki að inn- lendum starfsmannaleigum. bso@mbl.is Þróa áfram hjúkrunar- miðlun Fundur Velferð- arnefnd í gær.  Erlendar leigur „skammtímalausn“ Íslensk stjórnvöld hafa lýst yfir vilja sínum við ráðherraráðið í Brussel um að taka á móti 50 flóttamönnum samtals á þessu og næsta ári. Ísland verður þannig þátttakandi í sam- vinnu Evrópuþjóða um móttöku kvótaflóttafólks, samkvæmt frétt á vefsíðu velferðarráðuneytisins. Þessi yfirlýsing stjórnvalda er birt með fyrirvara um samþykki Al- þingis fyrir fjármögnun verkefn- isins. Með kvótaflóttafólki er átt við flóttafólk sem hefur fengið viður- kenningu á stöðu sinni sem flótta- fólk og kemur í boði ríkisstjórn- arinnar. Móttaka fólksins verður ákveðin í samráði við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, líkt og ávallt er gert þegar tekið er á móti kvóta- flóttafólki. Á vefsíðu ráðuneytisins segir að vilji standi til þess að létta á miklum straumi flóttamanna til Grikklands og Ítalíu. Hér á landi annast flóttamannanefnd undirbún- ing að móttöku kvótaflóttafólks í samvinnu við einstök sveitarfélög hverju sinni, auk þess sem Rauði kross Íslands hefur hlutverki að gegna. Í yfirlýsingu segir Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðis- málaráðherra, að það sé bæði rétt og skylt að Íslendingar leggi sín lóð á vogarskálarnar. Vilja taka á móti 50 flótta- mönnum AFP Flóttafólk Fólkið á myndinni hefur þurft að flýja heimili sín í Sýrlandi. Sautján vegvísar hafa verið settir upp í þinghelginni á Þingvöllum að und- anförnu. Þar hafa ekki verið vegvísar í mörg ár og eru þeir kærkomnir, að sögn Einars Á.E. Sæmundsen, fræðslufulltrúa þjóðgarðsins. Vegvísarnir eru hluti af stærra verkefni við merkingar á helstu áfanga- stöðum gesta í þjóðgarðinum. Unnið er að gerð kortaskilta sem verða á upphafsstöðum gönguleiða og eins þematengdra fræðsluskilta. Veg- vísarnir voru hannaðir til að falla vel inn í umhverfi Þingvalla í lit og útliti, en vera samt vel áberandi þegar komið er að þeim. Þau Annetta Scheving, grafískur hönnuður, og Árni Jón Sigfússon arki- tekt hönnuðu skiltin ásamt Einari Á.E. Sæmundsen fræðslufulltrúa. Skilti vísa veginn um þinghelgi Þingvalla Ljósmynd/Einar Á.E. Sæmundsen Ingvar Smári Birgisson isb@mbl.is Fyrirhugað er að gera upp barinn í kvikmyndahúsinu Smárabíói í Smáralind og færa hann nær lúxus- salnum. Eiga breytingarnar að skapa „lounge“-stemningu, eins og tíðkast í sumum kvikmyndahúsum erlendis, þar sem fólk getur mætt tímanlega, fengið sér bjór eða vín- glas og farið inn í lúxussalinn með drykkina. Smárabíó hefur boðið upp á léttvín í 13 ár og segir Björn Sig- urðsson, framkvæmdastjóri Senu, reynsluna af því hafa verið mjög góða. „Þó að allir séu velkomnir á bar- inn sem hafa aldur til, hefur neyslan aðallega verið tengd við gesti lúxus- salarins. Þeir sem nýta sér þetta eru þeir sem vilja gera alvöru kvöld- stund úr bíókvöldinu og gera vel við sig í leiðinni. Þetta eru oftar en ekki vinahópar sem hittast og eru að fara saman. Félagarnir eða vinkonurnar á stráka- og stelpumyndir. Svo eru þetta líka pör og blandaðir vinahóp- ar sem vilja gera sér glaðan dag og létta stemninguna,“ segir Björn. Betri upplifun á öllum sviðum „Það sem við erum að spá í að gera í Smárabíói er að gera upplif- unina betri á öllum sviðum bíósins. Við höfum nýlega skipt um sæti í öllu bíóinu og nú eru glæsileg leður- sæti í öllum sölum. Það sama á við um lúxussalinn, þar er búið að skipta um öll sæti og í kjölfarið á því höfum við hugsað okkur að færa barsvæðið nær salnum og gera svona „lounge“-stemningu þar sem fólk getur mætt tímanlega, fengið sér bjór eða vínglas og farið inn í lúxussalinn enda eru öll sæti núm- eruð þannig að það þarf ekki að vera í neinu stressi. Auðvitað eru aðrir bíógestir sem hafa aldur til einnig velkomnir á barinn,“ segir Björn. „Það má segja að það sé varla opnað nýtt bíóhús í Evrópu öðruvísi en að það séu barsvæði og einhverskonar lúxus-stemning tengd því.“ Aðspurður segir hann ekki á planinu að hefja vínveitingasölu í Háskólabíói og Borgarbíói, sem eru einnig í eigu Senu, en aldrei sé þó að vita hvað gerist á næstu miss- erum. „Lounge“-stemning í Smárabíói  Framkvæmdastjóri Senu segir reynslu af áfengissölu í bíóinu góða Lounge-bar Myndin er dæmi um þá stemningu sem Smárabíó vill ná fram með fyrirhugaðri setustofu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.