Morgunblaðið - 22.07.2015, Síða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2015
Hvern ætlar þú að
gleðja í dag?
Nokkuð bar á kvörtunum í gær
vegna malbikunar á Suðurlands-
vegi en hann var lokaður á kafla.
Guðbrandur Sigurðsson, aðalvarð-
stjóri umferðardeildar lögregl-
unnar, sagði merkingum hafa verið
ábótavant og að hann hefði komið
því áfram til verktaka, sem lofað
hefði úrbótum.
Í dag verða framkvæmdir á
Reykjanesbraut milli brúa við
Stekkjarbakka og Breiðholtsbraut.
Þrenging verður á Reykjanesbraut
milli 5.00 og 18.00. Þá verður mal-
bikaður þjóðvegur 1 við Hellu og
umferðarstýring á hringtorgi.
Umferðartafir vegna
gatnaframkvæmda
Malbik Þrenging verður á Reykjanesbraut
í dag og umferðarstýrt hringtorg við Hellu.
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
Vel hefur bæst í flota hópbifreiða
eða rúta á undanförnum árum í
kjölfar fjölgunar ferðamanna. Þann-
ig hefur skráðum hópbifreiðum
fjölgað um rúmlega fimm hundruð
frá árinu 2010 þegar 1.916 rútur
voru skráðar en þær eru 2.423 í dag.
Þar af eru 1.879 sem eru í umferð
en ekki liggja fyrir tölur um það hve
margar rútur voru í umferð árið
2010 samkvæmt upplýsingum frá
Samgöngustofu.
Fjölgun rúta hefur ekki haldist
algjörlega í hendur við fjölgun
ferðamanna. Engu að síður eru for-
svarsmenn þeirra fyrirtækja sem
Morgunblaðið ræddi við sammála
um það að nýting á hópbifreiðum sé
mun betri nú en áður auk þess sem
bílar hafi bæst í flotann. „Það sem
er einnig jákvætt við þennan vöxt er
það að hann er ekki bara á háönn
heldur er hann að koma yfir allt ár-
ið,“ segir Kristján Daníelsson, fram-
kvæmdastjóri Reykjavík Ex-
cursions – Kynnisferða sem er með
80-90 bifreiðar á sínum vegum.
Hann segir að slíkt auðveldi
rekstrarumhverfi mjög frá því sem
var þegar sumartíminn var lang-
ábatasamasti tíminn. Hann segir að
það sé reynsla Kynnisferða að haust
og vor séu sá tími sem minnst er að
gera. Tyrfingur Guðmundsson, eig-
andi og framkvæmdastjóri Guð-
mundar Tyrfingssonar ehf., segir
hins vegar að minna sé að gera hjá
hans fyrirtæki yfir vetrarmánuðina,
frá nóvember til febrúar. Kristján
segir að fyrirtækið hafi fundið fyrir
þessari aukningu árið 2011 en síðan
þá hafi verið mikill stígandi í rekstr-
inum. Hann segir allar forsendur
fyrir frekari vexti ef hugað er að
uppbyggingu innviða.
Vilja vera á eigin vegum
Guðmundur Tyrfingsson ehf. er
með 50 rútur á sínum snærum. „Við
höfum bætt við og endurnýjað flot-
ann. Við höfum bæði losað okkur við
bíla og fengið nýja en í heild höfum
við bætt við um tíu bílum á síðustu
fimm árum,“ segir Tyrfingur. Þrátt
fyrir að meira sé að gera hjá rútu-
fyrirtækjum nú en áður telur hann
að mestur vöxtur sé hjá bílaleigum.
„Það hefur ekki orðið jafn brjál-
æðislega mikil aukning hjá okkur og
tölur um ferðamannastraum gefa
tilefni til. Það er vegna þess að
ferðamenn í dag vilja margir vera á
eigin vegum og keyra bílaleigubíla,“
segir Tyrfingur. Ólíkt Kristjáni seg-
ir Tyrfingur að hann líti enn á sum-
arið sem helstu vertíðina. Hann seg-
ir að nokkur munur geti verið eftir
fyrirtækjum hvenær ársins þau
sinni ferðamönnum. Þannig sé
meira að gera hjá fyrirtækjum sem
sinna norðurljósaferðum og dags-
ferðum á veturna. „Við höfum ekki
mikið verið að sinna þessu,“ segir
Tyrfingur.
Hópbifreiðum fjölgað um
fimm hundruð á fimm árum
Búið að yngja upp flotann Aukning ekki fylgt fjölda ferðamanna
Morgunblaðið/RAX
Fjallabaksleið Verulega hefur fjölgað í rútuflotanum og hafa rúmlega 500 bifreiðar verið skráðar á undanförnum
fimm árum. Þrátt fyrir það er enn notast við rútur sem eru yfir 25 ára aldri því þær komast um fjallvegi.
Eimskipafélagið hefur flutti inn tvo
nýja hafnarkrana til landsins, en
þeir eru þeir stærstu á Íslandi og
geta lyft tveimur 20 feta gámum
samtímis. Fjárfestingin er hluti af
endurnýjun og uppbyggingu á inn-
viðum félagsins.
Annar krananna verður stað-
settur á Grundartanga, m.a. til þjón-
ustu við álver Norðuráls, en hinn
verður staðsettur á Mjóeyrarhöfn á
Reyðarfirði. Þar leysir hann eldri
krana af hólmi sem leysir sjálfur af
Jakann í Sundahöfn. Jakinn fer í
reglulegt viðhald og verður síðan
fluttur til Færeyja vegna aukinna
umsvifa þar.
Í tilkynningu Eimskipafélagsins
kemur fram að kranarnir séu raf-
knúnir og samræmist því umhverf-
isstefnu fyrirtækisins, sem miði að
því að lágmarka koltvísýringsút-
blástur við starfsemina, einnig felist
í kaupunum rekstrarhagræði fyrir
Eimskip.
Heildarfjárfesting vegna kran-
anna nemur um 8 milljónum evra
eða 1,2 milljörðum íslenskra króna.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hafnarkranar Flutningaskip kom með kranana til Reykjavíkur í gær.
Flytja inn stærstu
hafnarkrana landsins
Síðdegis í gær lagði varðskipið Þór
af stað til aðstoðar flutningaskipinu
Lagarfossi sem var með bilað stýri
um 90 sjómílur suðvestur af Dyr-
hólaey.
Ráðgert var að Þór yrði hjá Lag-
arfossi um fimmleytið í nótt og
myndi draga hann til Reykjavíkur.
Lagarfoss er um 10.100 tonn að
stærð og í eigu Eimskipa.
Í tilkynningu frá Landhelgis-
gæslunni segir að gott veður hafi
verið á svæðinu og engin hætta á
ferðum.
Þór fór og kom Lag-
arfossi til aðstoðar
„Endurnýjun á rútum hefur verið mjög mikil en hún var
líka mjög þörf og meðalaldur bílanna hefur lækkað mik-
ið á síðustu árum,“ segir Kristján Daníelsson. Sam-
kvæmt tölum frá Samgöngustofu var meðalaldur hóp-
ferðabíla um 14 ár árið 2010. Meðalaldur bílanna er nú
hins vegar 12,51 ár og er 9,51 ár hjá þeim hópbifreiðum
sem eru í umferð. Bílar á skrá sem eru orðnir eldri en 25
ára eru 297 og þar af eru 94 í umferð en það er um 5%
hópbifreiða í umferð. Til gamans má geta þess að bílar
eldri en 25 ára eru skilgreindir sem fornbílar samkvæmt
Fornbílaklúbbi Íslands. Tyrfingur Guðmundsson segir að
flestar hópbifreiðar sem séu svo gamlar séu svokallaðir grindarbílar. „Við
eigum einn sem við notum í Þórsmörk. Þessir grindarbílar eru eftirsóttir
til að geta farið um Fjallabak og Sprengisand. Þeir eru hærra smíðaðir en
götubílarnir og eru nær ófáanlegir nýir í dag. Þeir komast yfir árnar og
erfiða vegi en götubílar geta það ekki. Það er orðinn skortur á þessum bíl-
um í dag,“ segir Tyrfingur.
Fornbílar notaðir til fjalla
MIKIL ENDURNÝJUN Á UNDANFÖRNUM ÁRUM
Kristján
Daníelsson
Fyrsta driftmótið
var 2009
Í greininni Drift-feðgar í heimsókn
frá Danmörku í Bílablaði Morg-
unblaðsins í gær var skrifað að
fyrsta Íslandsmótið í drifti hefði far-
ið fram á síðasta ári. Hið rétta er að
fyrsta Íslandsmótið í akstursíþrótt-
inni fór fram árið 2009. Eru lesendur
og hlutaðeigendur beðnir afsökunar
á þessari villu.
LEIÐRÉTT