Morgunblaðið - 22.07.2015, Side 14

Morgunblaðið - 22.07.2015, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2015 BJÓDUM BÖRNIN VELKOMIN BARNAHORN LEGO BORÐ LESTARBORÐ VÖLUNDARHÚS KÍKTU Á VEFVERSLUN KRUMMA.IS Gylfaflöt 7 112 Reykjavík 587 8700 krumma.is BAKSVIÐ Guðmundur Magnússon gudmundur@mbl.is „Mestu tíðindin voru að finna æð- arfugl í varpinu. Þetta er í fyrsta sinn sem staðfest er að hann verpir þarna. Við höfum aðeins orðið vör við æðarkollu áður, en ekki fundið fyrr en núna sönnun fyrir því að hún hafi verpt í eynni,“ segir Borgþór Magnússon plöntuvistfræðingur á Náttúrufræðistofnun Íslands, en hann var leiðangursstjóri í árlegri ferð vísindamanna til Surtseyjar sem farin var í vikunni sem leið. Leiðangursmenn rannsökuðu gróð- ur, dýralíf og jarðfræði eyjarinnar. Borgþór segir að ekki hafi fundist nýr varpfugl í eynni síðan árið 2009. „Það var heiðlóuhreiður sem þá fannst,“ segir hann, en lóunni virðist ekki hafa tekist að koma ungunum upp. Í leiðangrinum í ár fundust tvær nýjar tegundir háplantna, ljónslappi og stinnastör, og tvær tegundir fiðrilda auk fleiri smádýra. Þá leiddu rannsóknir í ljós að jarð- hiti hefur aukist í Vesturbunka mið- að við síðustu mælingar og nýlegar gliðnunarsprungur fundust undir bunkanum. Greint er frá leiðangrinum á vef Náttúrufræðistofnunar. Voru líf- fræðingar og jarðfræðingar stofn- unarinnar ásamt sérfræðingi frá Landbúnaðarháskólanum við rann- sóknir í eynni dagana 13. til 17. júlí. Með í för voru einnig sérfræðingur Umhverfisstofnunar og bandarískur vísindarithöfundur til að afla efnis um Surtseyjarrannsóknir. Leiðang- urinn var að venju skipulagður í samvinnu við Surtseyjarfélagið. Með þrjá nýskriðna unga Að sögn Borgþórs dvöldu leiðang- ursmenn í skála Surtseyjar- félagsins. „Fyrr á árum voru menn þarna heilt sumar í senn, en nú orð- ið eru aðeins farnar ein til tvær ferðir á ári og það látið duga,“ segir hann. Á ljónslappanum sem fannst voru sinublöð frá síðasta ári og stinna- störin hafði skotið upp nokkrum blómstönglum. Telja vísindamenn- irnir því að gera megi ráð fyrir að hún sé eldri en tvævetur. Báðar teg- undirnar eru sagðar lífvænlegar. Allar tegundir fyrra árs fundust á lífi og lækjagrýta sem talin var hafa horfið fyrir nokkrum árum fannst nú á nýjum vaxtarstað. Alls fundust í leiðangrinum 64 tegundir há- plantna á lífi í eynni sem er með mesta móti. Áður höfðu fundist 65 tegundir árið 2007. Fram kemur í skýrslu leiðang- ursmanna að svo virðist sem varp fugla hafi farið seint af stað vegna tafa á sumarkomu. Þeir segja að það hafi samt verið með eðlilegum hætti hjá flestum tegundum. Einna at- hyglisverðast þótti að nýr varpfugl fannst. Æðarkolla með þrjá ný- skriðna unga sást leiða unga sína niður hnullungafjöru til sjávar. Fram kemur að æðarfugl hefur tal- ist líklegur til að reyna varp. Smádýralíf var rannsakað og litu nokkrar nýjungar dagsljósið. Ber þar hæst tvær tegundir fiðrilda. Flikruvefari (Cochylis dubitana) flaug á takmörkuðu svæði í nýrri hluta máfavarpsins. Fundust all- nokkrir einstaklingar. Hin tegundin er smáfiðrildið Scrobipalpa sam- adensis sem lifir á kattartungu við sjávarsíðu landsins. Kattartunga er í mikilli aukningu og segja vís- indamennirnir að aðstæður fyrir fiðrildið séu kjörnar á eynni. Hiti fer hækkandi Í jarðfræðiþætti leiðangursins voru nákvæmar hitamælingar gerð- ar í sprungum á yfirborði móbergs- ins í Austur- og Vesturbunka Surts- eyjar. Hiti var mældur á 10-20 cm dýpi frá yfirborði og mældist vel yf- ir 90°C, efst í bunkunum. Sérstaka athygli vakti að hitastig hafði hækk- að talsvert í flestum sprungum á Vesturbunka, en var svipað og und- anfarin ár í Austurbunka. Æðarfugl verpir loks í Surtsey  Vísindamenn halda áfram rannsókn á gróðri, dýralífi og jarðfræði Surtseyjar  Nýr varpfugl í fyrsta sinn frá 2009  Tvær nýjar tegundir háplantna  Jarðhiti hefur aukist í Vesturbunka Ljósmynd/Erling Ólafsson Þátttakendur Í ferðina fóru menn frá Náttúrufræðistofnun, Landbún- aðarháskólanum og Umhverfisstofnun auk bandarísks vísindarithöfundar. Ljósmynd/Erling Ólafsson Nýr varpfugl Æðarkolla með unga sína vakti óskipta athygli í Surtsey. Nýtt varp hefur ekki sést í eynni frá því að heiðlóa verpti þar árið 2009. Ljósmynd/Lovísa Ásbjörnsdóttir Landmótun Tanginn norðan á Surtsey er síbreytilegur. Oddi hans hefur nú sveigt aðeins til vesturs vegna ríkjandi öldugangs frá austri. Heimsleikarnir í Crossfit hefjast í dag í Carson, Los Angeles í Banda- ríkjunum. Íslenska þjóðin mun eiga nokkra fulltrúa á leikunum en fremst í flokki er Annie Mist Þór- isdóttir, heimsmeistari í Crossfit 2011 og 2012 og silfurverðlaunahafi 2010 og 2014 sem gerir hana að sig- ursælustu konunni í sögu leikanna. Ásamt henni keppa í kvennaflokki þær Ragnheiður Sara Sigmunds- dóttir, sem sigraði á Evrópu- og Afr- íkuleikunum og Katrín Tanja Dav- íðsdóttir. Í boði fyrir keppendur frá Evrópu og Afríku voru fimm sæti í kvennaflokki en þetta þýðir að Ís- lendingar muni skipa fjögur þeirra sem verður að teljast býsna góður árangur. Björgvin Karl Guðmundsson er eini íslenski keppandinn í karla- flokki á Heimsleikunum. Björgvin Karl hafnaði í öðru sæti á Evrópu- og Afríkuleikunum og tryggði sér þar með rétt til þátttöku á heims- leikunum í Crossfit. Þetta verður í annað skipti sem Björgvin Karl keppir á heimsleikum í Crossfit. Í liðakeppninni er það lið Crossfit Reykjavíkur sem er mætt til leiks. Þar eru nokkrir þaulvanir Heims- leikakeppendur, þau Anna Hulda Ólafsdóttir, Jakobína Jónsdóttir og Arnar Sigurðsson, ásamt þremur nýliðum, þeim Hinriki Inga Ósk- arssyni, Hörpu Dögg Steindórs- dóttur og Þresti Ólasyni. Þau voru í 3. sæti í liðakeppnina á Evrópuleik- unum og eru með sterkt lið sem nær vonandi að blanda sér í heimsmeist- arabaráttuna. Hægt verður að fylgj- ast með leikunum á heimasíðu heimsleikanna www.games.cross- fit.com. Þar má horfa á æfingarnar í rauntíma, finna upptökur af fyrri æfingum sem þegar hafa farið fram og fylgjast með stöðu keppenda. Leikarnir hefjast klukkan 14 að ís- lenskum tíma. isak@mbl.is Ljósmynd/Reebok Annie Mist Fjórar íslenskar konur keppa á heimsleikum í Crossfit. Heimsleikar Cross- fit hefjast í dag  Fjórar íslenskar konur verða með

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.