Morgunblaðið - 22.07.2015, Side 15

Morgunblaðið - 22.07.2015, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2015 www.smyrilline.is Stangarhyl 1 · 110 Reykjavík Sími: 570-8600 · info@smyril-line.is Fjarðargötu 8 · 710 Seyðisfjörður Sími: 472-1111 · austfar@smyril-line.is Taktu bílinn með til Færeyja og Danmerkur 2015 Færeyjar 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 34.500 Danmörk 2 fullorðnir með fólksbíl Netverð á mann frá 74.500 Bókaðu núna! Klettagörðum 5, 104 Reykjavík | stolpigamar@stolpigamar.is Gámaleiga Er gámur lausnin fyrir þig? Við getum líka geymt gáminn fyrir þig 568 0100 stolpigamar.is HAFÐU SAMBAND Búslóðageymsla ❚ Árstíðabundinn lager ❚ Lager ❚ Sumar-/vetrarvörur Frystigeymsla ❚ Kæligeymsla ❚ Leiga til skemmri eða lengri tíma „Tengsl Hallgerðar við Þingvelli eru mögnuð,“ segir Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra. Í fimmtudags- göngu á Þingvöllum á morgun, þar sem fróðir menn fjalla jafnan um af- markaða þætti úr sögu staðarins, verður Guðni sögumaður kvöldsins. Þing- vellir eru örlaga- staður í Njáls- sögu en það var á bökkum Öxarár sem Gunnar og Hallgerður hitt- ust í fyrsta sinn. Ferðin hefst klukkan 20 við gestastofuna á Haki. „Þegar kemur að þætti Hall- gerðar í Þingvallasögunni var hún búin að missa tvo eiginmenn sína. Höfðingjadóttirin fer á Þingvelli til þess að vera með ungu fólki, sem skemmti sér meðan á þinghaldi stóð,“ segir Guðni. „Njálssaga er náttúrlega mögnuð þegar því er lýst þegar Gunnar, ný- komin úr mikilli hernaðarför erlend- is, gengur í skartklæðum um vellina með liði sínu og þar mætast þau Hallgerður á fallegu kvöldi. Þar tak- ast með þeim magnaðar ástir svo þau verða bálskotin hvort í öðru og eiga unaðsstundir þarna þó að þeirra bíði seinna mikil örlög.“ Guðni kveðst í frásögn sinni munu reyna að skapa svipmynd af þessum sterku persónum. „Ég vona að við sjáum þau þarna á völlunum í skart- klæðum,“ segir Guðni sem þekkir sögu Hallgerðar vel. Má í því sam- bandi nefna bókina Hallgerður – ör- lagasaga hetju í skugga fordæm- ingar sem kom út fyrir síðustu jól og vakti mikla athygli þá. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þingvellir Þar sem örlagasögur Ís- lands eru við nánast hvert fótmál. Sjáum þau vonandi í skartklæðum  Guðni með fræðsluferð á Þingvöllum Guðni Ágústsson Ísak Rúnarsson isak@mbl.is Stærsta skemmtiferðaskip sem kemur hingað í ár, MSC Splendida, lagðist að Skarfabakka í Reykjavík í gær. Að sögn Gísla Gíslasonar, hafn- arstjóra Faxaflóahafna, markar koma skipsins einn af nokkrum há- punktum ársins en skipið er tæplega 138 þúsund brúttótonn að stærð. Í því eru 3.274 farþegar og 1.313 manna áhöfn. Gísli segir að aðrir hápunktar árs- ins séu þeir að í ár hafi fjögur skip komið til landsins í mars en það er öllu fyrr en hefur verið undanfarin ár. Þá koma fleiri skemmtiferðaskip síðsumars heldur en áður hefur ver- ið og útlit sé fyrir að skipin muni halda áfram að koma svo snemma á næstu árum. Í júní hafi svo verið fimm skip í höfn samtímis, en í þeim voru rúmlega 4.500 farþegar, sem sé býsna óvenjulegt en mest geta í kringum 7-8 skemmtiferðaskip verið í höfn samtímis. „Þetta hefur vaxið jafnt og þétt hjá okkur undanfarin ár og fleiri skip koma í ár heldur en komu í fyrra. Okkur sýnist það ætla að verða svipað næsta og þarnæsta ár, en í þessum bransa skipuleggja menn sig eitt til tvö ár fram í tím- ann,“ segir Gísli en bætir við að þó það sé sjaldgæft geti einstaka skip boðað komu sína með litlum fyrir- vara. Í ár munu 59 skemmtiferða- skip leggjast 106 sinnum að bryggju en að sögn Gísla voru komurnar um 95 í fyrra. Í heildina eru það 102.298 farþegar og 43.333 áhafnarmeðlimir. Nú þegar hafa 49 skip boðað 94 komur á næsta ári með 102.117 far- þega og 40.500 manna áhafnir. „Það hefur sýnt sig í þeim könn- unum sem við höfum gert að efna- hagsáhrifin eru meiri heldur en margir halda þannig að koma skip- anna skilar töluverðu til samfélags- ins,“ segir Gísli. Stærsta skemmtiferðaskip sem komið hefur hingað til lands er Ro- yal Princess sem kom hingað í fyrra- sumar en það er 141.000 brúttótonn og getur flutt 3.600 farþega. Lengd þess, 330 metrar, jafnast á við þrjá fótboltavelli. Kate Middleton, her- togaynja af Cambridge og eiginkona Vilhjálms Bretaprins, gaf skipinu konunglegt nafn sitt árið 2013 þegar það var tekið í notkun. Reykjavík er ekki eini viðkomu- staður skemmtiferðaskipa en í ár munu samtals 100 skemmtiferðaskip hafa viðkomu á Akureyri eða í Grímsey, 84 á Akureyri sjálfri og um 16 hafa eingöngu viðkomu í Gríms- ey. Stærsta skipið kom til hafnar  MSC Splendida lagðist að bryggju í gær  Það er 138 þúsund tonn og með því eru um 4.500 manns með áhöfn  Skemmtiferðaskipin fyrr á ferðinni en áður og einnig koma nú fleiri skip síðsumars Morgunblaðið/Styrmir Kári Í Sundahöfn MSC Splendida er stærsta skemmtiferðaskipið sem kemur til landsins á þessu sumri.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.