Morgunblaðið - 22.07.2015, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. JÚLÍ 2015
• Konica Minolta fjölnotatækin (MFP)
eru margverðlaunuð fyrir hönnun,
myndgæði, notagildi, umhverfisvernd
og áreiðanleika.
• Bjóðum þjónustusamninga,
rekstrarleigusamninga og alhliða
prentumsjón.
• Viðskiptavinir Kjaran eru lítil og stór
fyrirtæki, stofnanir og prentsmiðjur
sem eiga það sameiginlegt að gera
kröfur um gæði og góða þjónustu.
• Kjaran er viðurkenndur söluaðili á
prentlausnum af Ríkiskaupum.
Síðumúla 12 - 510 5520 - kjaran.is
• BLI A3 MFP Line of the Year 2013
• BLI A3 MFP Line of the Year 2012
• BLI A3 MFP Line of the Year 2011
bizhub margverðlaunuð fjölnotatæki
!"#
$
#""
$"$
"$
!#
%%"
"$##
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
! $
!"!
#$$
#%
#
"!
!%$
%$%
"#%"
#
!$%
!"
$
#""#
$!
"!%
!!"
%%%
"$
!"##
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Í lok árs 2014 voru um 13% af fjár-
festingum íslenskra lífeyrissjóða
bundnar í óskráðum bréfum. Þannig
hafði hlutfallið hækkað úr 11% frá
árinu á undan. Þetta kemur fram í nýrri
skýrslu Fjármálaeftirlitsins um stöðu
sjóðanna á síðasta ári. Þar er tekið
fram að með óskráðum bréfum sé átt
við þau verðbréf sem ekki hafa skráð
kaup- og sölugengi á skipulögðum
markaði.
Í sömu skýrslu kemur einnig fram að
gengisbundnar fjárfestingar lífeyr-
issjóðanna námu um 25% af heildar-
eign þeirra og hafði það hlutfall þokast
upp um 1 prósentustig frá fyrra ári.
Hærra hlutfall óskráðra
bréfa hjá lífeyrissjóðum
● Standard & Poor’s tilkynnti í gær að
fyrirtækið hefði hækkað matseinkunn
Tryggingamiðstöðvarinnar úr BBB- í
BBB með stöðugum horfum. Hækkunin
kemur í kjölfar hækkunar á lánshæfis-
einkunn Íslands í síðustu viku.
Í tilkynningu S&P er tekið fram að
fyrirtækið meti stöðu TM að öðru leyti
óbreytta og að einkunnin endurspegli
hóflega áhættu í rekstri fyrirtækisins
og tiltölulega trausta afkomu og fjár-
hagslega stöðu.
Matseinkunn Trygginga-
miðstöðvarinnar hækkar
STUTTAR FRÉTTIR ...
mörkuðunum fyrir saltfisksafurðir
okkar.“
Hluti af stærri vanda
Gríska hagkerfið hefur undanfar-
in ár þurft mikið lánsfé frá evrópska
seðlabankanum til að haldast á floti.
Því hefur gengi evrunnar veikst
talsvert en það er ekki einungis af-
leiðing grísku kreppunnar, að sögn
Gunnars Haraldssonar, forstöðu-
manns Hagfræðistofnunar Háskóla
Íslands.
„Evrusvæðið er mjög stórt og
gríska hagkerfið er aðeins 2% af
stærð þess. Því er hæpið að lán evr-
ópska seðlabankans til grískra
banka, sem hefur veikt evruna, sé
eina ástæða veikingarinnar. Evru-
vandinn er djúpstæðari og víðtækari
og á sér rætur í fleiri löndum í
Evrópusambandinu,“ segir Gunnar.
Veikir útflutning Íslands
Með veikingu evrunnar verður
innflutningur frá evrulöndunum
ódýrari sem getur komið fram sem
eiginleg tekjuaukning neytenda.
Ásgeir segir að þessi veiking þurfi
samt ekki að koma fram einungis
með hækkun verðlags. „Í verslun
með sumar vörur flökkum við á
milli heimsálfa og landa eftir gengi.
Gott dæmi um það eru bílakaup. Ef
dollarinn er veikur þá flytjum við
meira inn af amerískum bílum en
þegar evran veikist skiptum við yf-
ir í innflutning á evrópskum bíl-
um.“
Staða íslensks útflutnings versn-
ar þó á evrópskum mörkuðum með
tekjuskerðingu fyrir íslensk út-
flutningsfyrirtæki en stærstur hluti
útflutnings héðan fer til evrulanda.
Erfiðleikar Grikklands hafa
ekki bein áhrif á Ísland
Viðskipti við Grikkland
» Verðmæti inn- og útflutn-
ings milli Íslands og Grikklands
er vel undir 1% af utanríkis-
viðskiptum Íslands.
» Þjónustuviðskipti landanna
hafa farið ört vaxandi vegna
ferðaþjónustu.
» Útflutningur á þjónustu nam
um 1.200 milljónum árið 2012
en þau eru að mestu gjaldeyr-
istekjur vegna eyðslu grískra
ferðamanna hér á landi.
» Innflutningur á þjónustu
nam um 1.000 milljónum sama
ár sem er að mestu eyðsla Ís-
lendinga úti í Grikklandi.
Viðskipti á milli landanna lítil Áhrifin koma helst í gegnum veikingu evrunnar
Vöruviðskipti við Grikkland 1999-2014
3.000
2.500
2.000
1.500
1.000
500
0
-500
-1.000
-1.500
1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 2014
FOB: Verð vöru komin um borð CIF: FOB verð að viðbættum kostnaði
Heimild: Hagstofa Íslands
Í millj. kr. Útflutningur FOB Innflutningur CIF Vöruskiptajöfnuður
BAKSVIÐ
Sigurður Tómasson
sigurdurt@mbl.is
Áhrif efnahagserfiðleikanna í Grikk-
landi á Ísland koma ekki fram í gegn-
um bein vöru- og þjónustuviðskipti á
milli landanna heldur fyrst og fremst
í gegnum veikingu evrunnar, að sögn
Ásgeirs Jónssonar, dósents í hag-
fræði við Háskóla Íslands. „Veikara
gengi evrunnar minnkar verðmæti
útflutnings til evruríkjanna og eykur
að sama skapi innflutning á vörum
frá svæðinu.“
Vöruviðskipti milli Íslands og
Grikklands eru ekki umfangsmikil,
samkvæmt tölum frá Hagstofu Ís-
lands. Þau hafa fyrst og fremst falist
í saltfisksútflutningi en heildarút-
flutningur Íslendinga til Grikklands
var 0,17% af heildarútflutningi Ís-
lands árið 2014.
Þjónustuviðskipti hafa undanfarin
ár aukist töluvert og eru núna á
stærð við vöruviðskiptin. Þar er
aðallega um að ræða ferðaþjónustu
og ljóst er að með veikara gengi evr-
unnar minnkar kaupgeta grískra
ferðamanna hér á landi en að sama
skapi mun Grikkland ef til vill verða
fýsilegri kostur fyrir íslenska ferða-
menn.
Vanefndir á greiðslum
„Einhverjar vanefndir hafa verið
á greiðslum af hálfu grískra kaup-
enda en vonir standa til þess að það
fari að lagast og að vöruskiptin fari
aftur í eðlilegan farveg,“ segir Ólaf-
ur Sigurðsson, sendifulltrúi hjá ut-
anríkisráðuneytinu. Hann bendir á
að mikilvægt sé fyrir útflytjendur að
hafa sem flesta markaði fyrir sínar
vörur þó viðskiptin séu ekki stór.
„Grikkland er einn af hefðbundnu
Matsfyrirtækið Standard & Poor’s,
S&P, hefur hækkað lánshæfiseink-
unnir viðskiptabankanna þriggja,
Arion banka, Landsbankans og
Íslandsbanka. Langtíma lánshæfis-
einkunnir bankanna þriggja fóru úr
BB+ í BBB- með stöðugum horfum
hjá Íslandsbanka og Arion banka og
jákvæðum horfum hjá Landsbanka.
Bankarnir eru þar með komnir úr
spákaupmennskuflokki í fjárfesting-
arflokk (e. investment grade) sem
stækkar verulega þann hóp fjárfesta
sem getur keypt skuldabréf útgefin
af þeim. Lánshæfiseinkunn til
skamms tíma hækkaði hjá öllum
bönkunum úr B í A-3. Hækkunin
kemur í kjölfar hækkunar á lánshæfi
ríkissjóðs í síðustu viku, en S&P
byggði þá hækkun á aðgerðaáætlun
stjórnvalda um losun fjármagns-
hafta. Lánshæfi ríkissjóðs fór úr
BBB- í BBB.
S&P metur það svo að rekstrar-
umhverfi íslenska bankakerfisins
hafi styrkst og áhætta minnkað. Þá
megi búast við minni afskriftum lána
og meiri stöðugleika í framtíðinni.
Í tilkynningu er haft eftir Stein-
þóri Pálssyni, bankastjóra Lands-
bankans, að það auki traust til bank-
ans á mörkuðum að hann sé kominn í
fjárfestingarflokk og styðji við fjár-
mögnun hans í nánustu framtíð.
Höskuldur H. Ólafsson, bankastjóri
Arion banka, segir aukið aðgengi að
erlendum fjármagnsmörkuðum geri
bankann betur í stakk búinn til að
þjónusta viðskiptavini sem þurfi á
erlendri fjármögnun að halda. Birna
Einarsdóttir, bankastjóri Íslands-
banka, segir að lánshæfismat í fjár-
festingarflokki hafi jákvæð áhrif á
aðgengi bankans að erlendu fjár-
magni, en bankinn fékk einnig BBB-
lánshæfiseinkunn frá matsfyrirtæk-
inu Fitch í lok apríl.
Samsett mynd/Eggert
Lánshæfi S&P hefur fært viðskipta-
bankana þrjá í fjárfestingarflokk.
S&P hækkar ein-
kunnir bankanna
Viðskiptabank-
arnir þrír komnir í
fjárfestingarflokk